Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Litríkar myndir eftir listamanninn Ethorio prýða matarvagninn Taco bless Litríkasti matar- vagn landsins brátt opnaður í Keflavík „Ég verð var við mikla spennu meðal bæjar- búa. Það eru margir búnir að spyrja hvenær við opnum og sjálfur er ég orðinn spenntur að fara að láta verkin tala,“ segir Elías Örn Frið- finnsson matreiðslumaður. Elías er að undirbúa opnun matarvagnsins Taco bless sem er að finna við Hafnargötu 38 í Keflavík. Vagninn fer ekki framhjá neinum sem á leið þar um – litríkar myndir eftir lista- manninn Ethorio prýða vagninn og telur Elías óhætt að fullyrða að þetta sé litríkasti matar- vagn landsins. Maturinn verður heldur ekkert slor ef marka má kokkinn. „Hér verður allt gert frá grunni. Við erum með maístortillur og bjóðum fjórar mismunandi týpur; með chor- izo-hakki, djúpsteiktum þorski, djúpsteiktu blómkáli og með appelsínukjúklingalærum.“ Elías segir að vagninn verði opnaður síðar í mánuðinum en aðdragandinn er langur. „Þetta er hugmynd sem hefur verið að gerjast í ábyggilega tvö eða þrjú ár með góðum hópi af fólki. Ég átti heima í bænum í átta ár, lærði kokkinn og vann á veitingastöðum eins og Grillinu og Kopar. Ég flutti svo heim til Kefla- víkur til að flýja háa leigu og langaði að gera eitthvað nýtt,“ segir Elías sem stefnir á að Taco bless verði opinn allan ársins hring ef viðtökur verða góðar. hdm@mbl.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Samgöngustofa hefur gefið út far- þegaleyfi fyrir nýja Herjólf. Það nær til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafn- ar eða Þorláks- hafnar. Einhverjir dag- ar eru þar til ferj- an hefur áætlun- arferðir, að sögn Guðbjarts Ellerts Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Herjólfs ohf. Hann segir að lagfæra þurfi ekju- brýr. Gera þarf minni háttar breyt- ingar í Landeyjahöfn og Þorlákshöfn og örlítið meiri breytingu í Vest- mannaeyjum þar sem lengja þarf ekjubrúna. Einnig þarf að aðlaga far- þegabrýr. Þá þarf að prófa að aka inn í ferjuna háum ökutækjum, t.d. dráttarbílum með gáma, við mismun- andi sjávarstöðu. Gera á fyrstu pruf- una í dag. Unnið er að því að gera skipið klárt til að taka á móti farþeg- um og þjónusta þá. Ekki er búið að setja upp raf- hleðslubúnað fyrir skipið í Vest- mannaeyjahöfn. Hluti búnaðarins er kominn til landsins og annað er á leiðinni. Guðbjartur gerir ráð fyrir að uppsetning og tenging búnaðarins verði fljótlega boðin út og að verklok verði í september. Ferjan mun því keyra á rafmagni frá ljósavélum til að byrja með. Flytur fleiri farþega Farþegaleyfið heimilar að nýja ferjan flytji allt að 540 farþega í hverri ferð milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja yfir sumarið. Sá Herjólfur sem nú er í notkun má flytja mest 517 farþega á sömu leið og sama tíma. Þetta er því aukning um 23 farþega í hverri ferð. Nýja ferjan má flytja allt að 400 farþega þegar siglt er í Þorlákshöfn að vetri. Eldri ferjan má ekki flytja nema 288 farþega til og frá Þorláks- höfn að vetri. Guðbrandur segir að farþegaleyfið taki mið af því á hvaða hafsvæði er siglt, hve björgunarför geta borið marga, þótt það stærsta komi ekki að notum, og einnig er tekið tillit til þess yfir veturinn hvað eru mörg sæti fyr- ir farþega innandyra. Í nýju ferjunni eru 400 sæti og 32 kojur en í þeirri gömlu eru 288 sæti og 90 kojur. Farþegamet í júní Nýtt farþegamet var sett í júní síð- astliðnum þegar Herjólfur flutti 62.545 farþega milli lands og Eyja eða um 5.400 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Farþegafjöldinn hefur aldrei áður farið yfir 60.000 í júní. Guðbjart- ur segir nokkra þætti skýra þetta. „Í fyrsta lagi hefur veðurfarið ver- ið einstaklega gott. Einnig höfum við tekið upp nýja siglingaáætlun milli Landeyja og Vestmannaeyja. Við fjölguðum ferðum í sjö alla daga vik- unnar. Dreifing ferða yfir daginn er jafnari en áður og meira laust þannig að það er auðveldara að komast að með stuttum fyrirvara,“ segir Guð- bjartur. Fjölmennar hátíðir Tvö fjölsótt fótboltamót voru hald- in í júní, TM-mótið eða Pæjumótið og Orkumótið eða Peyjamótið. Um næstu helgi er haldin Goslokahátíð og haldið upp á 100 ára kaupstaðar- afmæli Vestmannaeyja. Í byrjun ágúst verður svo hin árlega Þjóðhá- tíð. Guðbjartur segir að það sé til skoðunar að nota báðar ferjurnar til farþegaflutninga um Þjóðhátíðina. Endanleg ákvörðun hefur þó ekki verið tekin. Nýi Herjólfur flytur fleiri farþega  Farþegaleyfið komið  Styttist í fyrstu áætlunarferð  Ekju- og farþegabrýr aðlagaðar  Raf- hleðslubúnaður í september  Nýtt farþegamet sett í júní  Í skoðun að báðar ferjur sigli um Þjóðhátíð Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Nýi Herjólfur Einhverjir dagar eru þar til ferjan hefur áætlunarsiglingar. Guðbjartur Ellert Jónsson Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Á síðasta ári greindust 45 með lifr- arbólgu B á Íslandi, þar af fjórir með bráða sýkingu, að því er fram kemur í gögnum embættis Landlæknis. 68 greindust árið 2017, þar af fimm með bráða sýkingu og 61 með viðvarandi lifrarbólgu. Að því er fram kemur í skýrslu Sóttvarnarstofnunar Evrópu greindust hlutfallslega flestir í Evr- ópu á Íslandi árið 2017, eða 20,1 á hverja 100 þúsund íbúa. Næst í röðinni eru Bretland með 15,9 og Lettland með 14,6. Alls greindust 26.262 í Evrópu með lifr- arbólgu B árið 2017 og meðal tíðni greininga í löndum ESB og EES ár- ið 2017 var 6,7 á hverja 100 þúsund íbúa. Í skýrslu stofnunarinnar kemur fram að í löndum vestur- og norður- hluta Evrópu séu flestar greiningar tilkomnar vegna innflytjenda. Und- anfarna áratugi hafi innflytjendur í Evrópu komið frá löndum þar sem tíðni lifrarbólgu B sé há. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir að þetta sé raunin hér á landi. „Það má skipta þessu í tvennt. Annars vegar er það sú króníska og langvarandi og síðan bráð sýking. Tölur um bráðasýkingu hafa verið stöðugar á undanförnum árum, frá engu og upp í fjögur til fimm tilfelli á ári. Við höfum séð aukningu í lang- varandi, krónískum sýkingum sem er afleiðing af því að fólk hefur flutt hingað til lands með sýkingu, t.d. frá Asíu og fleiri stöðum. Það skýrir svolítið þær tölur,“ segir hann. Langflestir sem eru með krón- íska sýkingu hafa fengið hana í fæð- ingu frá móður að sögn Þórólfs. Fullorðnir sem fái lifrarbólgu B hreinsi sig yfirleitt af henni og fái ekki króníska sýkingu. „Hér á landi eru þungaðar kon- ur skimaðar fyrir lifrarbólgu B á meðgöngu og ef þær reynast vera með króníska sýkingu og eru smit- andi, þá fær barnið strax bóluefni við fæðingu sem minnkar líkurnar alveg gríðarlega á því að það smit- ist,“ segir Þórólfur, en mjög litlar líkur eru á því að skimunin geti far- ist fyrir að hans sögn. Hlutfallslega flestir greindir hér  45 greindust með lifrarbólgu B í fyrra og 68 árið 2017  Flestar greiningar í V- og N-Evrópu vegna innflytjenda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.