Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán.–Fös. 09–17 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Ýmsum þykir gott að skreyta sigmeð orðunum umburðar- lyndur og frjálslyndur. Sumir sem þetta gera gefa svo gjarnan þeim sem eru þeim ósammála einkunnir, sem eru síður huggulegar, svo sem þröngsýnn, einangrunarsinni og jafnvel eitthvað þaðan af verra.    Veru-leik- inn er svo gjarnan allt annar. Í The Economist var á dögunum fjallað um hvernig Brexit hefði breytt Bretlandi og dregið fram hversu klofin þjóðin væri í afstöðu sinni.    Athygli vakti í þeirri umfjöllunhve ESB-sinnarnir eru heift- ræknir og hatrammir, ólíkt stuðn- ingsmönnum Brexit.    Könnun sem gerð var fyrr áárinu sýndi til dæmis að ein- ungis 9% af stuðningsmönnum Brexit hefðu eitthvað á móti því að náinn ættingi giftist eindregnum andstæðingi Brexit. Hjá andstæð- ingum Brexit var þetta hlutfall fjórfalt hærra, 36%, þegar spurn- ingunni var snúið við.    Þá sýndi sig að stuðningsmennESB-aðildar voru líklegri en hinir til að búa í bólu eða berg- málshelli eigin skoðana. Þeir voru mun líklegri til að eiga einungis vini sem voru sammála þeim.    Vonandi verða slíkar kannanirhinum „umburðarlyndu“ um- hugsunarefni.    En það er reyndar ekki víst aðþær séu vinsælt lesefni í bergmálshellinum. Öfugsnúið umburðarlyndi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tillaga frá áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins þess efnis að árlega verði valið jólahverfi í Reykjavík var felld af meirihlutaflokkunum á síðasta fundi í umhverfis- og skipulagsráði. Það var Ásgerður Jóna Flosadóttir, Flokki fólksins, sem lagði það til að jólahverfi borgarinnar yrði valið ár hvert í nóv- ember. Tillagan felur í sér að Reykjavíkurborg velji, eða láti kjósa, eitt hverfi árlega sem „Jólahverfi Reykjavíkur“. Með slíku vali sé verið að vekja at- hygli á umræddu hverfi og gera því hátt undir höfði. Reykjavíkurborg sjái um skreytingar í hverfinu og lýsi hátt og lágt. Þá verði ýmsar uppá- komur í jólamánuðinum í samvinnu við starfandi félög á svæðinu. Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata lögðu til að tillögunni yrði vísað frá og samþykktu það með fjórum atkvæðum. Þeir bókuðu vegna til- lögunnar: „Nú þegar er starfrækt umfangsmikil starfsemi í miðborginni um jólin, auk þess sem skreytingar eru settar upp í öllum hverfum borg- arinnar.“ Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. sisi@mbl.is Meirihlutinn vill ekki jólahverfi  Lagt var til að slíkt hverfi yrði valið árlega Morgunblaðið/Kristinn Ben. Jólalegt Mörg bæjarfélög keppast við að skreyta fyrir jólin ár hvert. Myndin er tekin í Keflavík. Umhverfisstofnun hefur borist um- sókn ArcticLAS ehf. um leyfi til af- markaðrar notkunar erfðabreyttra rotta (Rattus Norvegicus) í rann- sóknarhúsnæði sínu að Krókhálsi 5d í Reykjavík. Starfsemin sem hér um ræðir fellur undir lög um erfða- breyttar lífverur og reglugerð um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera. Frá þessu er greint í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Umhverfisstofnun hefur einnig borist tilkynning um flutning á af- markaðri starfsemi erfðabreyttra músa á vegum Lífvísindaseturs Há- skóla Íslands í Krókhálsinn. Í umsókn kemur fram að ráðgert er að nýta tilraunarotturnar við rannsóknir á arfgengri heilablæð- ingu sem greinst hefur á Íslandi. Rotturnar bera stökkbreytingu sem veldur aukningu á amyloid-magni og gætu því verið sjúkdómsmódel fyrir arfgenga heilablæðingu en dýrin eru fengin úr evrópsku stökk- breytiverkefni. ArcticLAS ehf. mun ekki framkvæma erfðabreytinguna heldur sjá um rannsóknir með þeg- ar breyttar rottur. sisi@mbl.is Erfðabreyttar rottur og mýs í Krókhálsinn Ljósmynd/Reykjavíkurborg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.