Morgunblaðið - 04.07.2019, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Fram kemur á Samráðsgátt stjórn-
valda að frumvarp til laga um breyt-
ingu á ýmsum lögum um skattlagn-
ingu ökutækja er nú til umsagnar og
verður til 15. júlí nk.
Frumvarpið er fram komið vegna
áforma stjórnvalda um breytingu á
ýmsum lögum um skattlagningu
ökutækja er lúta að skattalegum
ívilnunum og hvötum til að stuðla að
orkuskiptum í samgöngum.
Fram kemur á Samráðsgáttinni
að meginefni frumvarpsins felst í að
greiða fyrir orkuskiptum í sam-
göngum í samræmi við stefnu stjórn-
valda í þeim efnum. Áform um tíma-
bundna lagasetningu eru
eftirfarandi: „Í fyrsta lagi heimild til
að endurgreiða byggjendum og eig-
endum íbúðarhúsnæðis 100% þess
virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt
af vinnu manna við uppsetningu
hleðslustöðva í íbúðarhúsnæði.
Þannig verði núverandi heimild
hækkuð frá 60% upp í 100%.
Í öðru lagi heimild til handa byggj-
endum og eigendum íbúðarhúsnæðis
til fullrar endurgreiðslu virðisauka-
skatts vegna kaupa á hleðslustöðv-
um í íbúðarhúsnæði.
Í þriðja lagi að bílaleigum og
handhöfum leyfa til að stunda eigna-
leigu og/eða fjármögnunarleigu
verði heimiluð endurgreiðsla/undan-
þága frá virðisaukaskatti af útleigu á
ökutækjum sem fallið hafa undir
ívilnun á grundvelli ákvæðis til
bráðabirgða XXIV í lögum um virð-
isaukaskatt (rafmagns-, vetnis- eða
tengiltvinnbifreiðar).“
Þá kemur fram á Samráðsgáttinni
að áætlað tekjutap ríkissjóðs af end-
urgreiðslu virðisaukaskatts vegna
uppsetningar á heimahleðslustöðv-
um er talið nema um 100 m.kr. á ári
og áætlað tekjutap ríkissjóðs af und-
anþágu útleigu vistvænna bílaleigu-
bifreiða er talið nema um 60 m.kr. á
ári. Auk þess næmi áætlað tekjutap
ríkissjóðs af endurgreiðslu á hluta af
vörugjaldi við útflutning bílaleigu-
bifreiða um 300 m.kr. á ári.
agnes@mbl.is
Ívilnanir boðaðar
vegna vistvænna bíla
Óveruleg áhrif á ríkissjóð, segir í frumvarpsdrögum
Morgunblaðið/Hari
Rafbílar Með fjölgun rafbíla eykst
þörfin á fleiri hleðslustöðvum.
Fjármálaeftirlitið segist í bréfi til
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í gær
vegna deilna um afturköllun á um-
boði stjórnarmanna af hálfu VR vera
sammála því mati stjórnar sjóðsins
að stjórnarmenn sem tilkynntir voru
til FME 23. mars sl. séu enn stjórn-
armenn lífeyrissjóðsins og beri
skyldur sem slíkir.
Þá kemst FME að þeirri niður-
stöðu að ef ákvörðun fulltrúaráðs VR
um afturköllum á tilnefningu stjórn-
armanna lífeyrissjóðsins og skipun
nýrra nái fram að ganga megi líta svo
á að um tilraun til beinnar íhlutunar í
stjórn lífeyrissjóðsins sé að ræða og
vegið sé að sjálfstæði stjórnar og
góðum stjórnarháttum, eins og segir
í niðurstöðu FME.
Í bréfi FME er m.a. bent á að
stjórn VR skipaði umrædda fulltrúa í
stjórn lífeyrissjóðsins í mars en af
gögnum málsins megi ráða að aftur-
köllun á umboði þeirra og tilnefning
nýrra stjórnarmanna „stafi frá full-
trúaráði VR en ekki stjórn VR eins
og gildandi samþykktir lífeyrissjóðs-
ins kveða á um“. Ekki sé í samþykkt-
um sjóðsins fjallað um heimildir til að
afturkalla tilnefningar og því sé álita-
mál hvort í tilnefningarréttinum fel-
ist takmarkalaus heimild til aftur-
köllunar. Hugsanlegt sé að
afturköllun geti talist ólögmæt og
þannig bakað bótaskyldu.
Fjallað er ítarlega um skyldur
stjórnarmanna samkvæmt lögum um
lífeyrissjóði og góða stjórnarhætti í
bréfi FME. „Nánar skal kveðið á um
hlutverk stjórnar í samþykktum líf-
eyrissjóðs en í grein 5.5. í samþykkt-
um Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
kemur fram að stjórn beri ábyrgð á
starfsemi sjóðsins og að hún skuli
annast um að skipulag hans og starf-
semi sé jafnan í réttu og góðu horfi.
Þá sé það í höndum stjórnar sjóðsins
að taka stefnumarkandi ákvarðanir,
er varða hag og starfsemi sjóðsins. Í
grein 5.8. kemur ennfremur fram að
stjórn, framkvæmdastjóri og aðrir
þeir er hafa heimild til að koma fram
fyrir hönd sjóðsins mega ekki gera
neinar þær ráðstafanir sem bersýni-
lega eru til þess fallnar að afla
ákveðnum sjóðfélögum, fyrirtækjum
eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna
umfram aðra aðila eða á kostnað
sjóðsins,“ segir þar.
Þá er vitnað í samþykkt stjórnar
VR frá 18. júní þar sem ákvörðun
stjórnar lífeyrissjóðsins um breyti-
lega vexti verðtryggðra sjóðfélaga-
lána var gagnrýnd harðlega og lagt
til að haldinn yrði fundur í fulltrúa-
ráði VR til að afturkalla umboð
stjórnarmannanna.
Stjórn er óheimilt að hafa
aðra hagsmuni í huga
„Stjórn lífeyrissjóðsins skal ávallt
hafa þá hagsmuni í huga sem nefndir
eru í 2. mgr. 1. gr. og 1. mgr. 20. gr.
laga nr. 129/1997 við ákvörðunartöku
fyrir hönd sjóðsins. Að mati Fjár-
málaeftirlitsins er stjórn lífeyris-
sjóðsins óheimilt að hafa aðra hags-
muni í huga við ákvörðunartöku fyrir
hönd sjóðsins, þ.á m. við ákvörðun
vaxta fasteignaveðtryggðra lána til
sjóðfélaga,“ segir m.a. í bréfi FME
um þetta.
„Sé horft til ákvæða laga nr. 129/
1997 um skyldutryggingu lífeyris-
réttinda og starfsemi lífeyrissjóða,
samþykkta, starfsreglna stjórnar og
stjórnarháttayfirlýsingu lífeyris-
sjóðsins verður, í Ijósi orðalags sam-
þykktar stjórnar VR, að líta svo á að
um tilraun til beinnar íhlutunar í
stjórn lífeyrissjóðsins hafi verið að
ræða, sem með óbeinum hætti var
ætlað að færa ákvörðunarvald frá
stjórn lífeyrissjóðsins. Það vegur að
sjálfstæði stjórnar og góðum stjórn-
arháttum,“ segir ennfremur.
Í niðurstöðum FME segir að eftir-
litið geri ekki athugasemd við það
mat lífeyrissjóðsins, sem fram kom í
bréfi sjóðsins 26. júní, er varðar aft-
urköllun umboðs stjórnarmanna og
nýja tilnefningu í stjórn sjóðsins af
hálfu fulltrúaráðs VR. „Er stofnunin
sammála því mati stjórnar lífeyris-
sjóðsins að stjórnarmenn, sem til-
kynntir voru til Fjármálaeftirlitsins
hinn 23. mars sl., séu enn stjórnar-
menn lífeyrissjóðsins og beri skyldur
sem slíkir.“
Stjórn sjóðsins skuli ávallt hafa þá
hagsmuni í huga sem nefndir eru í 2.
mgr. 1. gr. og 1. mgr. 20. gr. laga nr.
129/1997 við ákvörðunartöku fyrir
hönd sjóðsins. „Að mati Fjármálaeft-
irlitsins er stjórn lífeyrissjóðsins
óheimilt að hafa aðra hagsmuni í
huga við ákvörðunartöku fyrir hönd
sjóðsins, þ.á m. við töku um ákvörðun
vaxta fasteignaveðtryggðra lána til
sjóðfélaga.“
Tilraun til beinnar íhlutunar
Ítrekar FME í niðurstöðu sinni að
ef ákvörðun um afturköllum á til-
nefningu stjórnarmanna lífeyris-
sjóðsins og skipun nýrra aðila af
hálfu VR nái fram að ganga megi líta
svo á að um tilraun til beinnar íhlut-
unar í stjórn lífeyrissjóðsins sé að
ræða.
„Fjármálaeftirlitið vill, með hlið-
sjón af þeirri óvissu sem einkennir
málið, beina því til stjórnar lífeyris-
sjóðsins að taka samþykktir sjóðsins
til skoðunar varðandi hvort og þá við
hvaða aðstæður tilnefningaraðilar
geti afturkallað umboð stjórnar-
manna, m.a. til að tryggja sjálfstæði
stjórnarmanna gagnvart hagsmun-
um tilnefningaraðila,“ segir í bréfinu.
Segir vegið að sjálf-
stæði stjórnar sjóðsins
FME segir fulltrúa VR í stjórn LV enn vera stjórnarmenn
Morgunblaðið/Eggert
Hús verslunarinnar FME hefur svarað stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna.
Afmælishappdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið var þann 28. júní 2019
1. Skemmtisigling fyrir tvo í gegnum Úrval Útsýn,
að verðmæti kr. 1.750.000.-
15769
2.-6. Draumaferð að eigin vali hjá Úrvali Útsýn,
hver að verðmæti kr. 600.000,-
18335 27805 30593 37490 42017
7.-14. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu, hver að verðmæti kr. 400.000,-
6411 16668 17016 20533 21523 21593
26747 38227
15.-39. Ferð að eigin vali hjá Úrval Útsýn, hver að verðmæti kr. 350.000,-
1922 1966 4201 11009 13084 14565
14599 16605 20218 20268 20879 21983
28799 30411 30894 31054 33500 36739
37676 39547 40356 41382 46037 47557
49114
40.-59. Vöruúttekt að eigin vali hjá Samsungsetrinu,
hver að verðmæti kr. 200.000,-
1969 4061 5188 6329 7604 12107
12170 17330 20140 20690 23242 29699
35530 36676 39830 42780 45673 45889
46799 47590
60.-125. Vöruúttekt að eigin vali hjá Samsungsetrinu,
hver að verðmæti kr. 100.000,-
2288 2711 3020 5036 6704 8849
8919 8936 9816 10568 10626 10984
11387 11573 12147 12374 12542 12675
12807 12985 14395 15299 16719 18937
19390 19782 20455 20536 20542 21259
24337 25153 25674 26285 26511 26806
27170 27766 28679 28957 29141 29306
29556 29841 30319 31063 31904 33350
34069 34198 34642 35799 38923 38944
40281 40803 41174 41687 42592 43294
43298 43573 45318 47130 47872 49711
Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra að Hátúni 12, 105
Reykjavík, 3. hæð, opið milli kl. 10.00-15.00 virka daga – sími 5500 360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 15. júlí 2019. Vinningaskrá er
einnig birt á vefsíðu samtakanna, www.sjalfsbjorg.is. Sjálfsbjörg
landssamband hreyfihamlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra
þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Vinningar og vinningsnúmer
„Fyrir mér er afstaða FME fulln-
aðarsigur fyrir okkar málstað,“ seg-
ir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, um álit Fjármálaeftirlitsins
(FME) í tengslum við afturköllun á
umboði fulltrúa VR í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna, LV. Hann
segir VR og lögmenn félagsins hafa
metið stöðuna rétt og VR hafi verið
„í fullum rétti“ til að afturkalla um-
boð fjögurra stjórnarmanna í LV.
Niðurstaðan sé fullnaðarsigur.
„Okkar mat og lögmanna félags-
ins er að við getum gert þetta og
FME tekur af allan vafa um það.
Það er ekkert sem bannar okkur
þetta. FME tekur af skarið og segir
að lífeyrissjóðirnir þurfi að vera
með skýrari reglur hvað þetta varð-
ar,“ segir hann.
Stjórnin sitji í óþökk VR
„Stjórnin situr í óþökk okkar og
ef hún ætlar að þrásitja, þá er ein-
faldlega um ákveðið valdarán að
ræða og aftengingu við verkalýðs-
hreyfinguna úr stjórnarkerfi lífeyr-
issjóðanna. Við munum svara þessu
af fullri hörku og höfum metið þetta
með lögmönnum félagsins,“ segir
Ragnar Þór. „Ég lít á þetta sem
freklegt inngrip stjórnar lífeyr-
issjóðsins fram yfir rétt okkar sem
eigum rétt á að skipa þarna full-
trúa,“ segir hann og bætir því við að
það kæmi að líkindum illa við hlut-
hafa eða aðra sem hefðu rétt til
skipunar í stjórn
ef „þeir aðilar
sem þeir skipuðu
sjálfir í stjórn
myndu sjálfir
meta reglur eða
túlkun á sam-
þykktum svo
frjálslega að þeir
teldu sig geta
þrásetið“.
Spurður hvort
VR muni afturkalla umboð stjórn-
armannanna á sömu forsendum og í
fyrra skiptið segir hann að ekki
þurfi að gefa neinar sérstakar
ástæður fyrir því. „Í reglum VR sem
stjórnin samþykkti getur full-
trúaráðið afturkallað umboðið hve-
nær sem er. Það þarf enga ástæðu
til þess. Það er einfaldlega okkar að
ákveða hverjir sitja þarna í stjórn.
Stjórnin sem nú situr situr til bráða-
birgða fram á haust og við munum
einfaldlega skipta þeim fulltrúum út
til bráðabirgða með nýjum bráða-
birgðafulltrúum,“ segir Ragnar
Þór.
Spurður hvort boðað verði til
stjórnarfundar eða fulltrúaráðs-
fundar til að afturkalla umboð
stjórnarmannanna segir Ragnar
Þór að það hafi ekki verið ákveðið.
„Mér er skapi næst að fara lengra
með þetta og láta á þetta reyna. Við
munum væntanlega ráðfæra okkur
um þetta á morgun,“ segir hann.
„Um valdarán að ræða,
þrásitji stjórn LV“
Ragnar Þór
Ingólfsson