Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 15-20% afsláttur af ÖlluM AEG VÖruM OrMssOn DAGAR RUSLAFÖTUR Lágmúla 8 - 530 2800 OG BÚSÁHÖLD 20% afsláttur 20-25% afsláttur POTTAR OG PÖnnUR 15% afsláttur 15% afsláttur 20% afsláttur 15% afsláttur ÞVOTTAVÉLAR HELLUBORÐ VEGGOFnAR OG FLEIRI HEIMILISTÆKI ÞURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLAR Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ökutækjum sem fóru Gullna hringinn fækkaði um rúm 13% á milli ára í maí og júnímánuði sam- kvæmt upplýsingum frá Vegagerð- inni. 164.397 ökutæki óku fram og til baka um veginn á milli Gullfoss og Geysis samanlagt í maí og júní í fyrra en 142.411 ökutæki óku veg- inn fram og til baka á sama tíma- bili þessa árs. Svavar Njarðarson, annar af tveimur eigendum Gullfosskaffis sem stendur við Gullfoss, segir að þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fækkað sé „áfram pressa á öllu kerfinu, bílastæðunum, plássinu og öllu saman. Þótt það fækki aðeins núna þá er alveg nóg að gera.“ Treysta á Íslendinga Ferðaþjónustuaðilar sem Morg- unblaðið ræddi við höfðu allir til- finningu fyrir því að ferðamenn væru færri hérlendis en síðasta sumar. Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hot- els, segir keðjuna finna fyrir því að færri erlendir ferðamenn séu á landinu. Icelandair Hotels starf- rækir einnig Eddu Hótel sem eru staðsett víðs vegar um landið ásamt þremur hótelum í Reykjavík í sérleyfi við vörumerki Hilton Worldwide. Minna er bókað hjá hótelkeðjunum á landsbyggðinni en vant er. Magnea vonast til þess að Íslendingar muni í auknum mæli ferðast um landið þegar nóg er af lausum hótelherbergjum. „Júní var verr bókaður en í fyrra en maí gekk betur en í fyrra. Apríl var ósköp dapur en hann er almennt daprasti mánuðurinn hjá okkur. Svo er enn óútséð með júlí og ágúst.“ Aðspurð segir Magnea að það fari eftir veðri hvar sé mest bókað. „Um leið og sólin fer að skína lifna bókanir við. […] Við vonumst auð- vitað til þess að allir noti tækifærið og heimsæki landið eitthvað. Við tökum mið af bæði veðurspá og nýtingu okkar hótela á lands- byggðinni í verðlagningu og erum dugleg við að setja út góð verð- tilboð á netið þegar svo ber undir.“ Hjá Ferðaþjónustunni Jökulsár- lóni, sem staðsett er við lónið sjálft, fækkaði ferðamönnum að meðaltali um 40 daglega í júnímán- uði. „Við erum þá til dæmis að fara 40 ferðir á hjólabátunum okkar í staðinn fyrir 42. Það er allt og sumt. Ég er bara frekar bjartsýnn, það er mikið pantað og mikið bók- að,“ segir Ágúst Elvarsson, rekstrarstjóri ferðaþjónustunnar. Hann segir fækkunina litla í stóra samhenginu. „Það skiptir litlu máli hvort það séu 1.100 manns eða 1.150 hjá okkur dag- lega,“ segir Ágúst sem telur ekki ástæðu til að tala um hrun. „Mér finnst alla vega galið að tala um hrun í ferðaþjónustunni þó að þetta sé aðeins minna. Það gæti vissulega þýtt hrun fyrir ein- hverja þó að það þýði það ekki fyrir okkur.“ Ekkert lúsmý í Ásbyrgi Mestar áhyggjur hefur Svavar af vetrinum. „Apríl og maí voru náttúrulega alveg skelfilegir en júní var ágæt- ur og við sjáum ekki alveg inn í júlí. Stóra spurningarmerkið er haustið og veturinn, hversu hárri þjónustu fyrirtækin halda uppi.“ Í Ásbyrgi hefur ferðamönnum fækkað lítillega að mati Guðmund- ar Ögmundssonar þjóðgarðsvarð- ar. Hann segir minna um Íslend- inga en vant er. „Þeir flykkjast hingað þegar það er sól og sumarylur en þegar það liggur í norðanáttinni eins og núna þá halda þeir sig annars staðar. En það er ekkert lúsmý hérna,“ segir Ögmundur glað- beittur. Hvað varðar Friðland að Fjalla- baki segir Matthildur Philippus- dóttir, eigandi ferðaskrifstofunnar Fjallabaks, að samdráttur sé í bókunum og færra fólk á svæðinu. 13% færri aka um Gullna hringinn  Ferðaþjónustuaðilar víðs vegar um landið telja að ferðamönnum hafi fækkað  Mesti samdrátturinn á landsbyggðinni, samkvæmt bókunarstöðu Icelandair- og Edduhótela  „Áfram pressa á öllu kerfinu“ Morgunblaðið/Ómar Gullfoss Kona snýr baki við fossinum fræga rétt eins og einhverjir ferðamenn hafa nú gert við land elds og ísa. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslandsmótið í hestaíþróttum sem nú stend- ur yfir á félagssvæði Fáks í Víðidal er þriðja og síðasta mótið sem knapar geta sýnt sig og sannað fyrir landsliðsþjálfurum sem eru að velja landslið Íslands fyrir Heimsleika íslenska hestsins sem haldnir verða í Berlín í ágúst. Sigurbjörn Bárðar- son landsliðsþjálfari og þjálfarar annarra liða sitja í brekkunni og fylgjast með frammistöðu þátttakenda. Íslandsmótið er eitt stærsta hestamót ársins enda er móti í barna- og unglinga- flokkum slegið saman við Íslandsmót full- orðinna og ungmenna. Þórdís Anna Gylfa- dóttir mótsstjóri segir að rúmlega 700 skráningar séu í mótið. Menn geta skráð sig í fleiri en eina grein og áætlar hún að um 400 knapar taki þátt með um 500 hesta. 1.000 vinnustundir sjálfboðaliða Mótið hófst í fyrradag og lýkur á sunnu- dag. Dagskráin er frá morgni til kvölds. Þessa dagana er forkeppni í ýmsum keppn- isgreinum og kappreiðar og fleira á kvöldin. B-úrslit verða á laugardag og aðaldagur mótsins er á sunnudag þegar keppt er til úrslita í öllum flokkum. Framkvæmd slíks móts kostar mikla vinnu. Þórdís Anna segir að unnar séu 1.000 klukkustundir í sjálfboðavinnu, fyrir utan dómara og fleiri starfsmenn sem eru á laun- um og fyrir utan undirbúningsvinnuna. Hún segir að vel hafi gengið að manna allar stöður og þakkar það því að sex félög á suð- vesturhorni landsins standa saman að móts- haldinu. Mikill mannauður sé í þessum fé- lögum og margir tilbúnir að hjálpa. Síðasti möguleiki til að vinna sæti í landsliðinu  Íslandsmót í hestaíþróttum haldið í Víðidal Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hvammsvöllur Þetta var stemningin á Íslandsmótinu í gær. Áhorfendur og dómarar skýldu sér fyrir vætunni í bílum og skýlum. Dembur gætu komið í dag en spáð er góðu veðri um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.