Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Hérna er ein með lykli í,“ segir
Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir,
deildarstjóri umhverfis- og fræðslu-
deildar Sorpu, og snýr lyklinum í fal-
lega grænni innihurð með gylltu
gægjugati. Hurðin er ein af mörgum
í stafla af innihurðum í gáminum.
Fyrir utan gáminn er viðlíka stafli af
útidyrahurðum. Úr skránni dregur
Ragna lykilinn sem er merktur með
myndum af íslenska fánanum.
„Þá er hægt að láta smíða eftir
honum og nota sílinderinn,“ segir
hún glöð í bragði. „Útidyrahurðir
koma oft með lykli,“ skýtur Haf-
steinn Unnar Hallsson, verslunar-
stjórinn á svæðinu, inn í og bætir við:
„Ég hef séð það sex-sjö sinnum.“
Við erum stödd á endur-
vinnslustöð Sorpu á Sævarhöfða þar
sem efnismiðlun Góða hirðisins er
rekin nú annað sumarið í röð. Þar
kennir ýmissa grasa. Þegar blaða-
mann ber að garði eru til sölu bíl-
dekk af ýmsum toga, inni- og úti-
hurðir í öllum regnbogans litum,
reiðhjól, timbur, vaskar og margt
fleira.
Ekkert aukavesen
„Við byrjuðum í maí í fyrra,“ segir
Ragna, standandi við um tug vöru-
bretta með bíldekkjum á. „Það var
vegna vilja stjórnarinnar að við kom-
um þessu verkefni í gang í fyrra, og
sömuleiðis ástæðan fyrir því að við
ákváðum að halda áfram með þetta í
ár.“
Efnismiðlun Góða hirðisins er
markaður fyrir notað byggingarefni
og ýmsar vörur sem geta nýst til
framkvæmda og listsköpunar. Til-
gangur markaðarins er að koma efni
í endurnýtingu áður en það fer til
endurvinnslu. Auk ofannefndra hluta
má á markaðnum finna innréttingar,
hellur, flísar o.fl., en það fer allt eftir
því hvað er til hverju sinni.
Spurður hvernig fyrirkomulagið
gengur fyrir sig, og hvort þetta sé
ekki mikil aukavinna fyrir mann-
skapinn, segir Hafsteinn versl-
unarstjóri að hlutunum sem eru til
sölu á Sævarhöfða sé aðallega safnað
saman á stöðinni þar en völdum hlut-
um safnað á öðrum stöðum og flutt á
Sævarhöfða. „Starfsmennirnir á hin-
um stöðvunum tína þetta til og svo
sækir bíllinn þetta,“ segir hann og
segir því að þetta sé ekki mikið
aukavesen fyrir hann og hans fólk.
Spurð hvort viðskiptavinir Sorpu fái
að gefa frítt til efnismiðlunarinnar
segir Ragna að megnið af hlutunum
sé losað frítt en hluti af efnunum falli
undir gjaldskylt í gjaldskrá sorpu og
þá þurfi að greiða eitthvert smáræði
fyrir. „Ef fólk stendur í fram-
kvæmdum þarf það að greiða fyrir
förgun,“ segir hún og útskýrir að það
sem kemur í efnismiðlunina sé því
einfaldlega heilir hlutir sem berast
Sorpu til förgunar sem viðskiptavinir
gefi svo áfram. Hún segir að almennt
sé fólk þó mjög viljugt að greiða fyrir
þjónustuna, og oft og tíðum ánægt að
vita að hlutirnir sem það hendir end-
urnýtist fremur en að þeir fari beint í
endurvinnslu eða urðun.
„Alls kyns fólk“
Spurð um gengi efnismiðlunar-
innar segir Ragna að hún hafi gengið
vel og að aukin ásókn í sumar frá því
sem var síðasta sumar beri vitni um
það. En hver er markhópurinn?
„Það er bara alls kyns fólk, heimili,
fólk í framkvæmdum og breytingum,
listamenn,“ svarar Ragna og Haf-
steinn samsinnir því. „Þetta eru mik-
ið fjölskyldur,“ segir hann en þar að
auki getur notað byggingarefni nýst
einstaklingum sem eru í húsnæð-
isbreytingum, skólum o.fl. Þá segir
Ragna frá því að Sorpu hafi nýlega
borist skemmtileg sending efnis-
miðluninni tengd. „Við fengum send-
ar myndir af kofa sem var að nánast
öllu leyti byggður úr endurnýttu efni
sem fékkst hér í efnismiðluninni,“
segir hún og í sömu andrá sést einn
starfsmaður stöðvarinnar byrja að
flokka endurnýtanlegt timbur til
þess að setja í efnismiðlunina. Þá
segir hún frá því að sala reiðhjóla
hafi einnig gengið vel, sér í lagi fyrir
börn. „Börn geta vaxið upp úr hjól-
um á innan við ári svo við höfum
fengið fjölda fjölskyldna hingað sem
koma og kaupa reiðhjól fyrir börn-
in,“ segir hún og Hafsteinn bætir við:
„Það kom hingað fjölskylda nokkr-
um sinnum, örugglega fjórum til
fimm sinnum, og keypti reiðhjól því
hjólunum þeirra var alltaf stolið.“
Segir Ragna að með þessum hætti
sé hægt að gera kjarakaup. Barna-
hjólin fáist keypt á nokkra þús-
undkalla og sumir bæti svo nokkrum
þúsundköllum við til að lappa upp á
það sem þarf. „Herða bremsur og
svoleiðis.“
Eins og nafnið gefur til kynna er
efnismiðlun Góða hirðisins eins kon-
ar framlenging á Góða hirðinum,
sem hefur um árabil verið starf-
ræktur af Sorpu en þar er tekið við
endunýtanlegum húsbúnaði og hús-
gögnum sem síðan eru seld. Efnis-
miðlunin tekur við stærri hlutum og
segir Ragna að stofnun hennar sé í
takt við þá stefnu innan EES-
svæðisins að lágmarka úrgang.
„Endurnot eru alltaf í forgangi.“
„Þrjú þúsund kall“
Blaðamaður gengur um geymsl-
urnar hjá Hafsteini, m.a. gáminn þar
sem hurðir og vaskar eru geymdir og
segist hrifnastur af innihurðunum,
sem eru jafn mismunandi í útliti og
þær eru margar. Hafsteinn svarar á
þá leið að þær séu meðal þess sem
stoppar styst í gáminum og minnist á
fésbókarsíðu efnismiðlunarinnar,
þar sem hann og aðrir starfsmenn
eru duglegir að svara fyrirspurnum
fólks. Ljóst er að fleiri eru spenntir
fyrir hurðunum, en á fésbókarsíð-
unni má sjá að barist er um bestu bit-
ana.
Spurður hvernig verðlag á varn-
ingnum sé ákveðið segja Hafsteinn
og Ragna að skoðað sé hvað sam-
bærilegir hlutir kosta nýir, og miðað
við að verðið sé: „lítill hluti af ný-
virði“. Við lok túrsins bregður fyrir
stórum íburðarmiklum vaski með
áfastri dökkri steinplötu. Blaðamað-
ur spyr hvort Hafsteinn smyrji ekki
hressilega ofan á verðið á svona fín-
um varningi og hann svarar að
bragði: „Neinei. Þú færð hann á þrjú
þúsund kall.“
Efninu miðlað í endurnot á Höfða
Fjöldi fólks verslar við efnismiðlun Góða hirðisins Útidyrahurðir með lykli og sílinder til sölu
Morgunblaðið/Hari
Allir velkomnir Verslunarstjórinn Hafsteinn Unnar og deildarstjórinn Ragna Ingibjörg segja að margir sem versla
við efnismiðlunina séu fjölskyldufólk. Hægt er að fá vaska, hurðir og timbur allt á sama stað og fyrir lágt verð.
Nóg til Stafli af innihurðum í gámi efnismiðlunarinnar. Á bak við sjást hill-
ur sem svigna undan eldhús- og baðvöskum. Jafnt stórum sem smáum.
Fákar Margir kaupa hjól á nokkra þúsundkalla. Sumir oftar en einu sinni.
MÍA/MÁR Tveggja laga regnjakki
kr. 18.990.-
icewear.is