Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samfélag er tekið að myndast í nýju
Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði, en
fyrstu fjölskyldurnar eru nú fluttar
inn í nýbyggð hús þar. Hverfið er í
flata og brekku sunnan og vestan til í
Ásfjalli og norðan við svonefnt Valla-
hverfi. Í heild er gert ráð fyrir 516
íbúðum í Skarðshlíð um 1.500 íbúum.
Fjölbreytt byggð
Uppbygging hverfisins skiptist í
þrjá áfanga og þar verður reist blönd-
uð byggð einbýlis- og parhúsa og lág-
reistra fjölbýlishúsa. Í 1. áfanga eru
lóðir fyrir 26 fjölbýlishús með 231
íbúð og í 2. áfanga eru 73 lóðir með
165 íbúðum. Allar lóðir í 1. áfanga eru
seldar og sömuleiðis fjöldi lóða í 2.
áfanga og bygging húsa á nokkrum
komin vel á veg.
Í 3. áfanga verða 54 lóðir, ætlaðar
raðhúsum og parhúsum neðst og ein-
býlishúsum ofar þar sem landhalli er
meiri. Þegar eru tólf þessara lóða
seldar en þær verða tilbúnar til af-
hendingar 15. september nk.
Skóli fullbyggður að ári
Að mörgu þarf að huga við skipulag
og uppbyggingu í nýju íbúðahverfi.
Starfsemi Skarðshlíðarskóla, sem
þjóna mun hinni nýju byggð og Valla-
hverfi að hluta, er þegar hafin. Nem-
endur í 1.-5. bekk hófu þar skóla-
göngu sína síðastliðið haust og í haust
bætast 6.-8. bekkur við. Þannig hefur
skólinn verið byggður upp í áföngum
og hver hluti hans tekinn í notkun
þegar tilbúinn er.
Að ári, sumarið 2020, verður skól-
inn svo fullbyggður og verður þá
heildstæður grunnskóli frá 1.-10.
bekk, leikskóli, tónlistarskóli og
íþróttahús. Starfsemi í sambyggðum
leikskóla hefst nú snemma í ágúst
næstkomandi.
Liggur vel við samgöngum
Skarðshlíðarhverfi liggur vel við
samgönguæðum, svo sem Reykjanes-
brautinni sem nú er verið að tvöfalda
frá Kaldárselsvegi suður fyrir mislæg
Krýsuvíkurgatnamót. Ásvallabraut
með tengingu við Kaldárselsveg, sem
lögð verður á næstu árum, mun greiða
enn frekar fyrir umferð til og frá
Skarðshlíðar- og Vallahverfi. Í ná-
grenni þeirra er Helluhverfið hvar all-
mörg fyrirtæki til dæmis í iðnaði hafa
nú starfsemi sína.
Háspennulínur fluttar
Uppbygging í Skarðshlíðarhverfi
hefur haldist í hendur við tilfærslu á
háspennulínum af Sandskeiði í
Hamranes sem er rétt sunnan við
Hafnarfjörð. Lengi var nokkur reki-
stefna um það mál en nú er niðurstaða
fengin og nýlega hófust tilfæringar
sem Ístak hf. hefur með höndum.
Með flutningi línanna verður rýmra
um allt í Skarðshlíðinni og Hamra-
nesi, nýju íbúahverfi sem liggur sam-
hliða Skarðshlíðarhverfi og er nú á
teikniborðinu og í mótun. Má gera ráð
fyrir að framkvæmdir þar hefjist eftir
tvö til þrjú ár. Frumhugmyndir að
skipulagi liggja fyrir og gerir skipulag
ráð fyrir fjölbreyttri byggð þar sem
ríkt tillit er tekið til umhverfissjónar-
miða og orkusparnaðar.
Landnám
Skarðshlíð í Hafnarfirði Íbúar
verða um 1.500 Fólkið er mætt
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Skarðshlíð Götur voru lagðar fyrir alllöngu, búið er að reisa hús og fleiri eru í byggingu. Allt fram streymir.
Fyrstu íbúarnir í Skarðshlíð voru hjónin Pálína Þór-
unn Pálsdóttir og Víðir Ingi Ívarsson sem þangað
fluttu með börnum sínum þremur, 23, 16 og 10 ára,
í Móbergsskarð 4. maí síðastliðinn. „Komin á nýjan
stað fórum við að líta í kringum okkur og sáum þá
að við vorum frumbyggjar í hverfinu sem er auðvit-
að skemmtileg tilviljun. Fólkinu hér er þó óðum að
fjölga og meðan framkvæmdir standa enn yfir
megum við búast við vélagný og hamarshöggum.
Slíkt finnst mér nú bara vera jákvætt,“ segir Pál-
ína.
Kosti hverfisins telur Pálína marga. Þar nefnir
hún nánd við náttúruna, verið sé að reisa nýjan og
glæsilegan grunnskóla, stutt sé í góða íþrótta-
aðstöðu og þá sé ein og bráðum tvær lág-
vöruverðsverslanir í nágrenninu.
„Við bjuggum áður lengi í Vallahverfinu hér í
Hafnarfirði en ákváðum að fara að byggja og feng-
um þá þessa fínu parhúsalóð alveg í næsta ná-
grenni. Þar hófum við framkvæmdir 20. júní á síð-
asta ári. Því leið innan við eitt ár frá því jarðvinna
hófst uns við fluttum inn í húsið sem snýr þannig
að hér nýtur nánast alltaf sólar. Úr Móbergsskarði
er síðan frábært útsýni yfir hverfið og fram á
Reykjanesið,“ segir Pálína að síðustu.
Vélagnýr og hamarshögg í hverfinu
LANDNEMARNIR PÁLÍNA OG VÍÐIR FLUTTU INN 4. MAÍ
Frumbyggjar Hjónin Pálína Þórunn Pálsdóttir og Víðir Ingi
Ívarsson fyrir utan húsið sitt nýja með Marinó Leó syni sínum.
Gert er ráð fyrir að uppbyggingin í
hinu nýja Skarðshlíðarhverfi kosti í
heild á bilinu 5-6 milljarða króna og
stendur sala á lóðum undir því að
mestu leyti. Að mörgu er líka að
hyggja í svona verkefni; byggja þarf
skóla, setja lagnir í jörð og leggja
götur svo nokkuð sé nefnt af því
ótalmarga sem gera þarf.
Tekur vel á móti öllum
„Sala á lóðum í Skarðshlíð hefur
farið hægar af stað en við gerðum
ráð fyrir; svo sem vegna Hamranes-
línu, samgöngumál hafa haft áhrif,
skipulagsbreytingar og annað sem
við erum farin að sjá fyrir endann á
nú,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, í samtali
við Morgunblaðið.
Við skipulag og hönnun á Skarðs-
hlíðarhverfis hefur verið lögð
áhersla á vistvænt skipulag, sjálf-
bærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt
útisvæði „Við viljum búa til hverfi
með blandaðri byggð sem opnar
tækifæri fyrir alla, allt frá ein-
staklingum upp í stærri fjölskyldur,“
segir Rósa og heldur áfram:
„Tvíbýlishúsalóðirnar opna til að
mynda á tækifæri fyrir þá sem vilja
hafa aldraða for-
eldra sína í næsta
nágrenni eða að-
stoða unga fólkið
sitt við að stíga
fyrstu skrefin
sjálfstætt búandi.
Við viljum með
blandaðri byggð
og þessum sveigj-
anleika koma til
móts við eftir-
spurn á markaði, sem hefur verið
mjög breytileg. Við erum mjög sátt
við núverandi skipulag sem er til
þess fallið að taka vel á móti öllum.“
Glimrandi flott
Nafnið Skarðshlíðarhverfi er sótt
í staðhætti þar sem nú er verið að
reisa húsin nýju. Gatan sem liggur í
gegnum allt hverfið og skólinn
stendur við heitir Hádegisskarð,
sem er örnefni á svæðinu. Forskeyti
húsagatna er svo sótt í íslenska
steina, steindir og jarðmyndanir og
má þarna nefna Apalskarð, Drang-
skarð, Móbergsskarð og Glimmer-
skarð. Hafa nafngiftir þessa vakið
eftirtekt og sumum þótt þær umdeil-
anlegar.
„Skipulags- og byggingarráð árin
2010-2014 fékk það skemmtilega
verkefni að ákveða nöfnin. Ég sat í
ráðinu á þessum tíma og minnist
þessa verkefnis með bros á vör. Það
höfðu margir skoðun á nafngiftunum
og þótti Glimmerskarð til að mynda
helst til glysgjarnt og ekki samræm-
ast nafnahefðum á meðan okkur
þótti það glimrandi flott,“ segir
Rósa.
Blönduð byggð sem
opnar öllum tækifæri
Rósa
Guðbjartsdóttir
Skarðshlíðarhverfi
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Ástjörn
SKARÐSHLÍÐAR-
HVERFI
ÁSAR
VELLIR
HAFNARFJÖRÐUR
Reyk
jane
sbra
ut
Ásvall
abrau
t
Ásbra
ut
Vistvænt skipulag og grænt yfirbragð
„Sennilega líða fimm til sex ár uns
Skarðshlíðarhverfið verður fullbyggt
þannig að hefðir og siðir fari að
myndast meðal íbúa hér,“ segir
Borghildur Sverrisdóttir. Þau Jó-
hann Bjarni Kjartansson, eigin-
maður hennar, og börnin þeirra þrjú,
þriggja ára tvíburar og sex ára dótt-
ir, fluttu í parhús við Móbergsskarð
um sl. helgi.
Þau hjónin bjuggu áður við Arnarhraun og vildu í leit að nýju húsnæði
halda sig við Hafnarfjörð. „Þegar kom að því að byggja hentaði okkur
best að fá lóð í Skarðshlíð og byggja nýtt eftir okkar höfði,“ segir Borg-
hildur sem kannast við það sjónarmið að Skarðshlíðin sé nokkuð úrleiðis
miðað við aðrar byggðir. Með nýjum vegi sem verður tenging við Set-
bergshverfi það breytast. „Að búa hér þýðir kannski að við þurfum tvo
bíla en þá verður annar þeirra að vera rafbíll, enda ódýrt og umhverfis-
vænt. Sjálf er ég kennari í Flensborgarskóla og Jói vinnur í Kópavogi og
fer mikið á hjóli þangað. Því er mikilvægt að fram komi að útbúa þarf
góðar göngu- og hjólaleiðir á þessu svæði, malbika þær og hafa teng-
ingar við önnur hverfi,“ segir Borghildur.
Skarðshlíðin hentaði best
HVERFIÐ FULLBYGGT Á FIMM ÁRUM
Fjölskyldan Heima er best.