Morgunblaðið - 04.07.2019, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
geti stundað ræktun á repju til olíu-
framleiðslu þurfi að koma upp verk-
smiðju til að taka við fræjum af stóru
svæði og framleiða bíódísil úr henni.
Bíódísill er nú þegar fluttur inn og
notaður til íblöndunar í dísilolíu.
Ólafur segir að slík verksmiðja gæti
flutt inn fræ til að nota í framleiðsl-
una til að koma henni strax í fulla
framleiðslu og þegar uppskera er
minni hér heima. Hann segir að slíkt
verkefni sé ekki á færi einstaklinga
og telur að stjórnvöld þurfi að hafa
frumkvæðið. „Er ekki betra að
leggja peninga í þetta og styrkja
innviðina hér heima en greiða kol-
efnisskatt?“
„Við höfum sýnt fram á það að
hægt er að rækta repju hér. Landið
er kjörið til þess. Mikið er til af landi,
tilbúnu til ræktunar, landi sem búið
er að þurrka upp og ekki er lengur
þörf á fyrir matvælaframleiðslu.
Best er að nota 2. eða 3. flokks rækt-
unarland fyrir repjuna, 1. flokks
land hentar síður.“
Spurður að því hvort repjan sé
örugg ræktun svarar Ólafur: „Það er
með hana eins og annað í landbúnaði.
Uppskeran er misjöfn á milli ára og
það á við um korn og gras, eins og
repju. Þetta á einnig við um sjávar-
útveginn. Var ekki loðnubrestur í
vetur? Hvað gerðu útgerðarmenn?
Seldu þeir skipin? Nei, þeir leita að
öðrum verkefnum og bíða eftir næstu
vertíð.“
Sumarafbrigði repju sem sáð er að
vori og uppskorið að hausti hentar að
sögn Ólafs þar sem vetur eru harðir
en vetrarafbrigði sem sáð er síðari
hluta sumars og skorið næsta sumar
henti ágætlega á hans svæði.
Hugsa um sjálfbærni
Bændurnir á Þorvaldseyri sáðu í
vor repju í 5 hektara og stendur ak-
urinn í blóma nú. Ólafur hyggst sá í
10 hektara í næsta mánuði, vetrar-
afbrigði sem skorið verður næsta
sumar. Bændurnir hafa mikið hugsað
um sjálfbærni búrekstursins. Rækta
meðal annars korn til fóðurs fyrir
kýrnar. Ólafur segir þá geta fram-
leitt alla olíu á dráttarvélar búsins
með repju á 12-15 hekturum. En þá
þurfi að vera einhverjir afsetning-
armöguleikar.
Þarf að byggja upp innviði
Repjufræ og olía safnast upp á Þorvaldseyri þar sem litlir afsetningarmöguleikar eru fyrir afurðir
Ólafur Eggertsson bóndi reiknar með að sá repju í síðasta skipti í haust eftir tilraunaræktun í 11 ár
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gulir akrar Repjan myndar skærgul blóm sem standa í skamman tíma því þau breytast í skálpa sem geyma fræin. Ólafur Eggertsson kannar repjuakurinn.
Kornrækt Byggið er að skríða á Þorvaldseyri og vel lítur út með uppskeru í
haust. Páll Eggert Ólafsson var ánægður með uppskeruna þetta haustið.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki hafa verið byggðir upp innviðir
til að skapa bændum sem stundað
hafa tilraunaræktun á repju mögu-
leika á að afsetja repjufræ eða olíu.
Það vantar síðasta skrefið, verk-
smiðju til að framleiða bíódísil í stað
sambærilegrar olíu sem nú er flutt til
landsins.
„Ég sái í síðasta skipti í haust og
hætti þessari ræktun á næsta ári,“
segir Ólafur Eggertsson, bóndi á
Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, sem
stundað hefur tilraunaræktun með
repju til olíuframleiðslu í ellefu ár.
Afurðirnar safnast upp
„Mikið er rætt um loftslagsmálin
og hvað sé til ráða. Það liggur fyrir að
þessi planta er ákjósanleg til að binda
kolefni úr andrúmsloftinu. Nóg er til
af landi til ræktunar og þekking á
ræktuninni hefur byggst upp. Málið
strandar á því að við getum ekki fjár-
fest í vélbúnaði til að fara alla leið,
framleiða bíódísil,“ segir Ólafur.
Repja hefur verið ræktuð á Þor-
valdseyri í ellefu ár. Keypt var lítið
tæki til að pressa olíuna úr fræjunum.
Olían hefur í einhverjum mæli verið
notuð á vélar á bænum og tilraunir
voru gerðar með að setja bestu olíuna
á brúsa og selja sem matarolíu í
verslunum. Ólafur segir að lágt verð
sé á þessum afurðum. Verslunin stýri
verðlagningunni og salan standi ekki
undir kostnaði við framleiðsluna.
Hratið sem til fellur er notað í fóður
fyrir kýrnar.
Þótt ræktunin sé ekki stórfelld hef-
ur safnast upp fræ í nokkur ár. Ólafur
hefur ekki talið ástæðu til að pressa
fræin þar sem ekki sé markaður fyrir
olíuna. Auk þess er til nóg af olíu á
tönkum úr fyrri framleiðslu. „Það er
ekki von að við aukum við þegar stað-
an en þessi.“
Þarf verksmiðju
Nokkur umræða er í samfélaginu
um orkuskipti vegna aðgerða í lofts-
lagsmálum og hefur repjan verið talin
aðgengilegust til að knýja fiskiskipa-
flotann. Sú umræða hefur ekki farið
fram hjá bændunum á Þorvaldseyri
og hafa þau lengi við í samvinnu við
Jón Bernódusson, verkfræðing hjá
Samgöngustofu, sem staðið hefur fyr-
ir rannsóknum á þessu sviði. Ólafur
saknar þess að þeir stjórnmálamenn
sem hafa verið að hreyfa við málinu
og ráðherrar sem bera ábyrgð á
málaflokknum komi í heimsókn og
kynni sér ræktunina.
Hann segir að til þess að bændur
Páll Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri, hefur gert
upp nærri hálfrar aldar gamla dráttarvél. Tilgangurinn
er að nota hana við búreksturinn og nota repjuolíu af
eigin ökrum til að knýja hana áfram.
Tvær International 100 Hydro-dráttarvélar voru flutt-
ar til landsins árið 1973 og fóru báðar í Mýrdalinn. Páll
Eggert segist hafa séð mynd af vélinni þegar hann var
barn eða unglingur og alltaf haft áhuga á henni. Fyrir
nokkrum árum fékk hann aðra vélina til að gera upp og
varðveita. Hann fann mótor úr jarðýtu sem passaði í
dráttarvélina en þurfti að gera hana upp. Síðasti vetur
fór síðan í að gera upp sjálfa dráttarvélina og mynd-
arlegt hús hennar.
Páll segir að þessi dráttarvél sé með stiglausum gír-
kassa, eins og nýjustu dráttarvélarnar í dag. Þá sé hús-
ið vandað, hljóðeinangrað og standist allar kröfur fyrir
ökumann og vélar í dag.
„Við notum hana sennilega mest í jarðvinnslu. Hún
stenst alveg samanburðinn við nýjar vélar í ákveðnum
verkefnum, eins og til dæmis við tætingu og herfun,
sem þurfa mikið afl. Þá kemur skiptingin sterk inn. Þú
getur valið þann ökuhraða sem þú vilt,“ segir hann.
Unnið er að því að kolefnisjafna rekstur búsins. Hægt
er að nota repjuolíu á þessa dráttarvél. Að vísu þarf að
hita hana upp og þess vegna er henni startað með dísil-
olíu en skipt yfir á repjuolíu þegar vélin er orðin heit.
Vélin gengur fyrir repjuolíu af ökrum búsins
PÁLL EGGERT ÓLAFSSON HEFUR GERT UPP 46 ÁRA GAMLA INTERNATIONAL-DRÁTTARVÉL
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Uppgerð Nallinn á Þorvaldseyri er 140 hestafla, heldur stærri
en meðaltraktorinn í dag. Eftir er að setja húsið á vélina.