Morgunblaðið - 04.07.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.07.2019, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt sam- hljóða að ganga til samninga við Knattspyrnufélagið Víking um að fé- lagið taki við rekstri íþróttamann- virkja í Safamýri þegar Fram hefur alfarið flutt starfsemi sína í Úlfars- árdal á allra næstu árum. Núverandi grasæfingasvæði í Safamýri verða tekin til annarrar þróunar, eins og það er orðað í samþykkt borgarráðs. Það var einróma álit stýrihóps um íþróttastefnu að ganga skuli til samninga við Knattspyrnufélagið Víking um að þjónusta Safamýri til framtíðar. Litið var til samgangna, hverfis- skiptinga og sterkrar framtíðar- sýnar félagsins fyrir Safamýrar- svæðið. Jafnframt væri tryggt jafnvægi milli hverfisfélaga. Til- lagan skapi einnig svigrúm til ann- arrar uppbyggingar á svæðinu. Nauðsynlegt sé að Knattspyrnu- félagið Fram, Knattspyrnufélagið Víkingur, fulltrúar íbúa, ÍBR og íþrótta- og tómstundasvið hefji þeg- ar þessa breytingu á íþróttastarfi í Safamýri. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráði er falið að sinna stefnumótun og eftirliti með verk- efninu af hálfu borgarinnar. Undanfarin misseri hafa fram- kvæmdastjóri ÍTR og fulltrúar ÍBR átt samráð við fulltrúa íþróttafélaga, fulltrúa Fram og íbúa í Safamýri um framtíðarfyrirkomulag íþróttastarfs í hverfinu eftir að Fram flytur starf- semi sína í Grafarholt og Úlfars- árdal. Af hálfu íbúa hafa skoðanir aðeins verið skiptar um hvaða félag væri best til að þjóna svæðinu en samstaða hefur verið um að því fyrr sem það liggi fyrir, því betra. Stýrihópur um framtíðarstefnu í íþróttamálum, sem settur var á lagg- irnar í kjölfar samþykktar borgar- stjórnar sl. haust, hefur haft málið til umfjöllunar og m.a. hitt fulltrúa félaga sem áhuga hafa haft á að þjóna Safamýri, ásamt því að hitta fulltrúa íbúa á svæðinu. Það voru fyrst og fremst Valur og Víkingur sem sýndu því áhuga að taka verk- efnið að sér. Í áfangaskýrslu hópsins er það einróma niðurstaða hans að leggja til að gengið verði til samninga við Víking. „Ef tryggja á jafnvægi milli íþróttafélaga þegar kemur að íbúa- tölu á bak við hvert félag er heppi- legra að stækka svæði þeirra félaga sem minni eru, í þessu tilfelli svæði Víkings,“ segir í tillögu borgar- stjóra, sem samþykkt var í borg- arráði sl. fimmtudag. Með því að semja við Víking um þjónustu við Safamýrarsvæði falli allt skólahverfi Háaleitisskóla undir þjónustusvæði sama hverfisíþróttafélags, sem myndi teljast kostur við þá ráð- stöfun, að mati borgarstjóra. Íþróttamannvirki Víkings eru við Traðarland í Fossvogsdal. Hverfi Víkings hefur til þessa fyrst og fremst verið Fossvogurinn og Smá- íbúða- og Bústaðahverfi. Eftir stækkun mun Víkingssvæðið mark- ast af Suðurlandsbraut í norðri, Kringlumýrarbraut í vestri, sveitar- félagsmörkum við Kópavog í suðri og Reykjanesbraut í austri. Staða íþróttafélaga í Reykjavík er sem hér segir:  Í núverandi hverfi Víkings eru um 9.000 íbúar og samkvæmt áætl- unum munu þeir verða 14.500 miðað við nýja hverfaskiptingu.  Til samanburðar eru Valur, KR, Þróttur, Ármann, ÍR og Fjölnir með á bilinu 17.000 til 21.000 íbúa. Fylkir og Fram eru með færri íbúa bak við sig eða 8.000–12.000.  Ef Valur tæki yfir núverandi Fram-hverfi yrði Vals-hverfið með 24.000 íbúa. Að auki er umtalsverð uppbygging væntanleg á Hlíðarenda sem myndi hækka íbúatölu í hverfi Vals umtalsvert en uppbygging af sambærilegri stærðargráðu er ekki fyrirsjáanleg á núverandi svæði Vík- ings. Víkingur tekur við Safamýri  Tekur við íþróttamannvirkjum af Fram og hyggst reka öflugt íþróttastarf í hverfinu  Litið var til samgangna, hverfisskiptinga og sterkrar framtíðarsýnar Víkings  Áfram verður starfsemi í Víkinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íþróttasvæðið í Safamýri Þarna er stórt íþróttahús með löglegum keppnisvelli í handknattleik. Einnig gervigrasvöllur með aðstöðu fyrir áhorfendur. Framtíðarheimasvæði Víkings Kortagrunnur: OpenStreetMap Suðurlandsbraut R eykjanesbraut MiklabrautK ringlum ýrarbraut R EY K JAV Í K K Ó PAVO GU R Íþróttasvæði Fram í Safamýri sem Vík- ingur mun taka yfi r Íþróttasvæði Vík- ings við Traðarland í Fossvogi Heimasvæði Víkings mun markast af Kringlumýrarbraut, Suðurlandsbraut, Reykjanes- braut og mörkum Reykja- víkur og Kópavogs Borgarráð ákvað á síðasta fundi sínum að heimila um- hverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna uppbyggingar íþróttamann- virkja í Úlfarsárdal. Þær eru samkvæmt samn- ingi Reykjavíkurborgar við Fram sem samþykktur var í borgarráði 2017. Kostnaðar- áætlun hljóðar upp á rúma 4,6 milljarða króna. Framkvæmdir eiga að hefjast í ágúst 2019 og þeim skal verða lokið í maí 2022. Úlfarsárdalur verður svæði Framara til framtíðar. Félagið er nú þegar með öflugt starf í hverfinu, meðal annars barna- og unglingastarf. Fram fær ný mannvirki BYGGT Í ÚLFARSÁRDAL „Við lýstum strax yfir miklum áhuga á að taka að okkur þetta verkefni. Íþróttastarf Víkings er mjög öflugt í öllum aldursflokkum og rómað af öllum sem til þekkja,“ segir Björn Einarsson, formaður Víkings. Björn segir að stjórn félagsins hafi markað ákveðna stefnu til framtíðar með stækkuðu félagsvæði og Reykja- víkurborg hafi litist afar vel á hana. Samlegð núverandi Víkingshverfis og Safamýrar sé mjög mikil og stefnan sé að vinna öflugt íþróttastarf undir merkjum Víkings. „Það er mikilvægt fyrir okkur Víkinga að stækka okkar hverfi og því skiptir miklu að fá Safamýrina sem viðbót.“ Hann segir að samtalið við Reykjavíkurborg hafi tekið eitt og hálft ár. „Við lögðum höfuðáherslu á að vinna þetta verkefni mjög náið með öllum sem eiga hagsmuna að gæta. Þar á ég við Fram, Reykjavíkurborg, íbúasamtökin og ÍBR. Við höfum lagt áherslu á að sterkt flæði milli Safamýrar og okkar starfsemi í Víkinni,“ segir Björn. Hann segir að horft sé til þess að aðalleikvangur fyrir knattspyrnu verði í Víkinni en handboltinn verði leikinn í Safamýri, enda mikið og öflugt handboltahverfi. Einnig verði lögð áhersla á að barna- og unglingastarfið verði öfl- ugt á báðum stöðum og gott samstarf þar á milli. Björn bendir á að fyrir margt löngu, þegar Fram var enn þá með starfsemi fyrir neðan Sjómannaskólann, þ.e. við Skipholt, hafi margir Víkingar komið þaðan sem síðar var Framhverfið, t.d. Stóragerði, Hvassaleiti og Háleiti. Því megi segja að nú sé Víkingur að hasla sér völl í þessu hverfi á nýjan leik. „Þetta er gríðarlega stórt skref fyrir okkur Víkinga og við erum afar glaðir yfir því að borgin skuli fela okkur þetta mikilvæga verkefni. Það eru allir Víkingar stoltir í dag,“ segir Björn. Víkingur rekur sjö deildir í dag, þ.e. knattspyrnu, hand- knattleik, borðtennis, skíði, karate, tennis og öfluga al- menningsíþróttadeild. Björn segir að félagið sé opið fyrir þeim möguleika að stofna körfuknattleiksdeild í framtíð- inni. Ef svo færi myndi hún verða í Safamýri. Gríðarlega stórt skref  Lögð áhersla á að barna- og unglingastarfið verði öflugt Ljósmynd/HarHar Í Víkinni Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Björn Einarsson, formaður Víkings, að lokinni undirskrift.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.