Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 hafið að ógeðfelldu martraðarsam- félagi sem nú þegar er daglegt brauð fyrir tugmilljónir Kínverja. Lágt sómaskor mun útiloka þá frá vel borgaðri vinnu, gerir þeim ókleift að fá fasteigna- eða bílakaupalán eða bóka hótelherbergi. Yfirvöld hægja á nettengingum þeirra, útiloka börn þeirra frá einkaskólum og birta jafn- vel lífsprófíl þessa fólks á opinberum svörtum listum, fyrir alla að sjá, yfir fólk sem fallið hefur í ónáð. Að sögn áströlsku fréttastofunnar ABC News hafa stjórnvöld í Peking látið smíða smáforrit, app, með „slæpingjakorti“ sem birt var á kínverska samfélags- vefnum WeChat sem á annan millj- arð manna notar að staðaldri. Eins og um ratsjárskerm væri að ræða sýnir appið hvern einn og einasta „slæp- ingja“ í nágrenni við notanda appsins. „Með því að ýta á einstakling á kortinu birtast persónulegar upplýs- ingar um hann, þar á meðal fullt nafn, dómstólanúmer og ástæður þess að viðkomandi hefur verið stimplaður ótraustur. Nafnskírteinisnúmer og heimilisfang eru einnig sýnd en þó bara að hluta til,“ sagði í frásögn ABC News. Kerfið verður virkt árið 2020 Fregnir hafa farið af handtökum fólks með of lága sómastöðu og að það sé sent í endurhæfingarbúðir. Ekki vegna þess að það hafi í raun framið glæp, heldur vegna þess að það er álitið líklegt til að gera það. Hlutar kerfisins eru þegar komnir til framkvæmda um gjörvallt Kína samfara því sem unnið er að endur- bótum á algríminu. Búist er við að sómastöðukerfið verði fullskapað og virkt um land allt á næsta ári, 2020. Ríkisstjórnin heldur fram að til- gangur þess sé að auka traust og fé- lagslegan stöðugleika með því að skapa „kúltúr einlægni“ sem mun „endurreisa samfélagslegt traust“. Í greininni í New York Post segir að þetta muni í raun og veru kalla yfir almenning andrúmsloft ótta og hræðslu og samfélag uppljóstrara, en ein leiðin sem fólk getur notfært sér til að bæta eigin sómatölu er að gefa skýrslur um ætlaðar misgjörðir ann- arra. Einstaklingar geta unnið stig fyrir til dæmis að benda á þá sem hunsa nýjar takmarkanir á ástundun trúarbragða. Svo sem kristið fólk sem hittist á einkaheimilum til bæna- gjörða, sem er andstætt lögum í Kína. Eða bendir á úýgúra-múslima og Ka- zakka vestast í Kína sem það sér leggjast á bæn á almannafæri, fasta á ramadan-föstunni eða láta sér vaxa skegg. Vitaskuld er það svo að eftir því sem ríkinu miðar nær takmarkinu um að hafa eftirlit með öllum borg- urunum 24 stundir á sólarhring, sjö daga vikunnar, verður samfélagið að raunverulegu fangelsi. Á Vestur- löndum hefur nýja kerfið sætt ákafri gagnrýni og lýsir stofnunin Human Rights Watch því sem „hrollvekju“. Bent er á að með því sé að rætast spá- dómar George Orwell um einræðis- kerfið 1984. Stefni í hreint alvald að fornum kínverskum sið, guðsvald keisarans yfir þegnum sínum. „Ofar skilningi vestrænna ríkja“ Málgögn Kommúnistaflokks Kína hafa haft aðfinnslurnar að háði og spotti og sagt að Vesturlandabúar séu of miklir einfeldningar til að átta sig á undrum nýja kerfisins. Þannig sagði til dæmis kínverska dagblaðið Global Times „tilgátukenningar Vestur- landabúa grundvallast á fáfræði þeirra“. Það bætti við að hið umfangs- mikla sómastöðukerfi væri „ofar skilningi vestrænna ríkja“. Hið umfangsmikla lögregluríki Kínverja hefur verið uppfært með gríðarlega gagnamiklu vélkerfi gervi- greindar sem les andlitsdrætti fólks og þekkir það úr á þeim. Þykir það vera skelfileg mælitækni ógnvekjandi ríkiseftirlits. Hefur Kommúnista- flokkur Kína með stuðningi hátækni alið af sér heimsins fyrsta stafræna einræðisveldi. Hermt er að yfirvöld- um í Kína þyki ekki nóg að stinga eig- in þegnum í sýndarfangelsi. Munu þau hafa falboðið þóknanlegum ein- ræðisríkjum kerfið og að fyrsti við- skiptavinurinn sé sósíalistinn Nicolas Maduro Moros, einræðisherra í Venesúela. Hátæknin nýtt út í ystu æsar Í grein í New York Times er því haldið fram að Kínverjar séu að und- irbyggja framtíðarskipulag valdboðs- stjórnar sinnar. Til að fylgjast með 1,4 milljörðum þegna sinna nýti þeir milljónir eftirlitsmyndavéla og millj- arða kóðalína. „Á lestarstöð í kínversku borginni Zhengzhou kom lögreglumaður auga á heróínsmyglara með sérstökum gleraugum sem greina og þekkja fólk úr frá andlitssvip þess. Í Qingdao auðvelduðu gervigreindarmynda- vélar lögreglumönnum að hafa hend- ur í hári tveggja meintra glæpa- manna á miðri árlegri bjórhátíð sem þar var haldin að þýskri fyrirmynd. Og í Wuhu þekktu myndavélar meintan morðingja á flótta er hann keypti sér skyndibita hjá götusala,“ segir þar. Þjóðareftirlitskerfið mikla á sér engin fordæmi og nýta Kínverjar sér möguleika hátækni út í ystu æsar. Engrar undankomu verður auðið breyti menn ekki rétt. „Hér áður fyrr snerist þetta um eðlishvötina. Færi eitthvað fram hjá þér þá misstirðu af því,“ sagði Shan Jun, aðstoðaryfirlög- reglumaður járnbrautarstöðvarinnar í Zhengzhou, þar sem heróínsmygl- arinn var gómaður. Eru Kínverjar sagðir vera að hafa endaskipti á kenningunni að nýtækn- in sé mikið lýðræðisafl er auki á frelsi fólks og samskipti þess um allar jarð- ir. Í Kína hefur tæknin verið brúkuð til að auka á tök yfirvalda á lýðnum. Í nokkrum borgum leita mynda- vélar lestarstöðva að eftirlýstum að- ilum. Á stórum skjáum birtast andlit manna sem hafa ekki farið að reglum. Nöfn þeirra eru birt og líka fólks sem ekki hefur staðið í skilum með skuldir sínar og lán. Andlitsskannar vakta inngang húsaþyrpinga. 200 milljónir eftirlitsmyndavéla Þykir nærri lagi að í Kína sé að finna 200 milljónir eftirlitsmyndavéla, eða fjórum sinnum fleiri en í Banda- ríkjunum. Notkun þeirra kemur til viðbótar öðrum kerfum sem fylgjast með netnotkun almennings og sam- skiptum þess á netinu, fylgjast með hótelgistingu, ferðum fólks með lest- um og flugvélum og – á nokkrum stöðum – jafnvel bílaferðalögum. Þrátt fyrir allt er metnaður Kín- verja fyrir eftirlitinu umfram getu þeirra. Tækni sem er til staðar á einni lestarstöð eða gangbraut yfir götu fyrirfinnst ekki í öðrum borgum eða jafnvel næstu húsasamstæðu. Óskil- virk skriffinnska tefur fyrir sköpun þjóðarnets sómastöðukerfisins. Það gildir einu fyrir kommúnistaflokkinn. Með reglulegu millibili skýrir hann frá getu kerfisins en er sagður taka of djúpt í árinni. En það eitt að fólk fái á tilfinninguna að njósnað sé um það dugar til að almenningur haldi sig á mottunni. Þróunin er komin misjafn- lega langt eftir svæðum. Viðamikið tölvunet fjöldaeftirlits hefur verið sett upp vestast í Kína til að fylgjast með innbyrðis samskiptum Úýgúra- múslima við vini eða fjölskyldulimi. Hafa fulltrúar New York Times kom- ist í kynni við kerfið. „Þetta er mögulega algjörlega ný leið fyrir ríkisstjórnir að stýra hag- kerfinu og samfélagsgerðinni,“ segir Martin Chorzempa við hugveituna Peterson Institute for International Economics í Washington DC í Bandaríkjunum. „Takmarkið er al- grímsk stjórnun,“ bætti hann við. AFP „Sómastöðukerfi“ ný martröð Kínverja AFP Myndavélar Gestir gervigreindarsýningar í Peking gómaðir í linsur myndavéla sem skanna og greina andlitsdrætti í leit að vandræðagemsum. Við eftirlitsstörf Lögreglukona við eftirlit á járnbrautarstöð borgarinnar Zhengzhou í febrúar síðastliðnum. Hún ber snjallgleraugu sem borið geta kennsl á fólk út frá andlitsdráttum til að hafa hendur í hári meintra brotamanna.  Lítið samfélagstraust getur eyðilagt daglegt líf Kínverja á margvíslegan hátt  Fylgst með fólki í „slæpingjaforriti“  Móðgandi hringitónn, flugbann, útilokun barna og hægfara farþegalestir SVIÐSLJÓS Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Ímyndaðu þér að þú hringir í vin þinn og í stað þess að heyra hringitóninn kveður við sírenuhljóð og svo rödd sem tónar „farðu varlega í sam- skiptum við þessa persónu“. Myndi það letja þig í sambandi ykkar? Sá er tilgangurinn. Velkomin til lífsins í nýja sóma- stöðukerfinu í Kína þar sem lítið sam- félagstraust getur eyðilagt líf manna á margvíslegan hátt. Um þetta kerfi er fjallað í nýlegri grein í New York Post. Þar segir m.a.: „Segjum til dæmis að þú komir út á flugvöllinn í Peking og áformir að ná flugi til Canton 2.000 kílómetrum sunnar. Maðurinn í farmiðasölunni vísar þér frá – þú gast þér til um það – sómastaða þín er of lág. Þú ert ekki bara niðurlægður í miðasöluröðinni heldur ertu neyddur til að fara með hægfara lest í staðinn. Það sem átti að verða þriggja stunda ferð varð að 30 stunda margra stoppa martröð. Allt vegna þess að stjórnvöld hafa skil- greint þig sem ótraustan einstakling. Kannski léstu lán fara í vanskil, gerð- ir þau mistök að gagnrýna einhver áform ríkisvaldsins á samfélags- miðlum eða hékkst of lengi í tölvu- leikjum á netinu. Hegðun af þessu tagi og margs konar öðru geta valdið því að sómastaðan þín hrynur og neyðir borgarana niður á skelfileg- asta þrep kínverska stéttakerfisins, laolai.“ Í þessu lægsta þrepi stéttakerfisins munu um 13 milljónir manna vera en þeir sem þar hafna líta yfirvöld á sem letingja, slæpingja og sníkjudýr svo eitthvað sé nefnt. Refsingar sem fylgja nýja sómastöðukerfinu eru með ólíkindum. Algóritmi ríkisstjórnar- innar mun ganga það langt að setja niðurlægjandi hringitón í síma laolai- fólksins, smána það í hvert sinn sem hringt er í það á almannafæri. Upphaf að martraðarsamfélagi Móðgandi hringitónn, flugbann og hægfara farþegalestir eru aðeins upp- Þurr augu! Fæst í öllum helstu apótekum. Tvöföld virkni Sex sinnum lengri ending Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks sem sækir innblástur beint til náttúrunnar. Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við náttúrulegu efnin trehalósa sem verndar frumurnar á yfirborði hornhimnunnar og hýalúronsýru sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka. Augnheilbrigði TREHALÓSI Finnst í mörgum jurtum og hjálpar þeim að þrífast við þurrar aðstæður. Trehalósi verndar frumurnar og gerir þeim kleift að starfa með fullum afköstum. HÝALÚRONSÝRA Er að finna í augunum og hefur einstaka getu til að binda vatn. Hjálpar til við að smyrja og viðhalda táravökvanum á yfirborði augans. Án rotvarnarefna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.