Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði í gærkvöldi eftir að minnsta
kosti 44 létust og um 130 særðust í
loftárás á flóttamannabúðir í ná-
grenni Trípolí, höfuðborgar Líbýu.
Sagði Ghassan Salame, sérstakur
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í land-
inu, að árásin væri mögulega stríðs-
glæpur þar sem hún hefði verið
óvænt og beinst að óbreyttum borg-
urum sem bjuggu við illan kost og
gátu því ekki leitað sér skjóls.
Hvatti Salame til þess að þeim
sem bæru ábyrgð á árásinni yrði
refsað, en þetta er í annað sinn sem
búðirnar verða fyrir árás.
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, for-
dæmdi árásina harðlega og sagði að
báðum stríðsaðilum hefði verið gerð
kunn staðsetning búðanna til þess að
koma í veg fyrir að þær yrðu fyrir
árás.
Sjónarvottar sögðu að aðkoman
eftir árásina hefði verið ömurleg, þar
sem lík hefðu legið sem hráviði á
gólfi flugskýlis, sem notað hefur ver-
ið sem tímabundnar búðir fyrir
flóttamenn sem hyggjast fara yfir
Miðjarðarhafið. Um 600 manns eru
sagðir hafast þar við að jafnaði.
Saka Haftar um ódæðið
Enginn hafði lýst yfir ábyrgð sinni
í gær, en ríkisstjórnin í Trípolí, sem
nýtur viðurkenningar Sameinuðu
þjóðanna, var fljót að beina spjótum
sínum að stríðsherranum Khalifa
Haftar, en hersveitir hans hófu stór-
sókn í átt að höfuðborginni í apríl
síðastliðnum, án þess þó að ná þar
fótfestu.
Sagði í sérstakri yfirlýsingu
stjórnvalda í Trípolí að árásin væri
„hrikalegur glæpur“, sem „stríðs-
glæpamaðurinn“ Khalifa Haftar
bæri alla ábyrgð á. Tyrkir, sem hafa
stutt við bakið á Trípolístjórninni,
kölluðu sömuleiðis eftir því að al-
þjóðasamfélagið léti rannsaka árás-
ina, sem væri skýlaus glæpur gegn
mannkyni. Talsmenn Haftars viður-
kenndu hins vegar enga ábyrgð en
sögðu að flugher hans hefði gert
árásir á skotmörk í Trípolí og ná-
grenni.
Haftar, sem stjórnar meginhluta
landsins frá borginni Tobrúk, nýtur
stuðnings nágranna sinna í Egypta-
landi, auk þess sem Sádí-Arabía og
Sameinuðu arabísku furstadæmin
hafa veitt honum stuðning.
Talsmaður flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna sagði AFP-
fréttastofunni að stofnunin hefði
krafist þess fyrir nokkrum vikum að
flóttamannabúðirnar yrðu rýmdar,
en þá var gerð árás á búðirnar, sem
hæfði þó ekki skotmark sitt.
Vopn geymd í búðunum?
Sagði talsmaðurinn að grunur léki
á að búðirnar hefðu verið notaðar til
þess að geyma vopn og skotfæri, en
slíkt væri brot á alþjóðlegum mann-
réttindalögum.
Samkvæmt upplýsingum Samein-
uðu þjóðanna eru um 3.500 flótta-
menn geymdir í áþekkum búðum í
Líbýu nálægt átakasvæðum, en
flestir þeirra sem koma til landsins
hyggjast halda yfir Miðjarðarhafið.
Mannréttindasamtök hafa bent á
að flóttamenn í landinu verði fyrir
umtalsverðum mannréttindabrot-
um, en ástandið í Líbýu hefur verið
brothætt allar götur síðan einræð-
isherranum Múammar Gaddafí var
steypt af stóli árið 2011.
Árásin sögð „hrikalegur glæpur“
Sameinuðu þjóðirnar fordæma loftárás á búðir flóttamanna í Líbýu Meira en 40 manns sagðir hafa
látist í árásinni Öryggisráðið fundaði samdægurs vegna árásarinnar Haftar sagður eiga sökina
AFP
Loftárás Fulltrúar stjórnvalda í Trípolí skoða verksummerki eftir árásina.
Undirbúningur fyrir þjóðhátíðardag Bandaríkj-
anna hefur verið í fullum gangi síðustu daga, en
þess er minnst í dag að 243 ár eru liðin frá því að
nýlendurnar 13 lýstu yfir sjálfstæði sínu frá
Bretum og Georgi þriðja Bretakonungi. Donald
Trump Bandaríkjaforseti hefur lofað „sýningu
aldarinnar“ að þessu sinni, en stefnt er að því að
halda hersýningu í miðborg Washington-borgar
þar sem Abrams-skriðdrekar eins og sá sem ver-
ið er að þrífa á myndinni verði í fararbroddi.
Andstæðingar Trumps hafa gagnrýnt áform
hans og segja þau ekki í takt við þær hefðir sem
skapast hafi um þjóðhátíðardaginn, en hersýn-
ingar eru fátíðar í Bandaríkjunum. Trump hefur
hins vegar sagt á samfélagsmiðlinum Twitter að
dagurinn gefi fullkomið tækifæri til þess að
fagna því að efnahagur og hernaðarmáttur
Bandaríkjanna sé í fremstu röð.
AFP
Búa sig undir þjóðhátíðardaginn
Íranar tilkynntu
í gær að frá og
með næstkom-
andi sunnudegi
myndi landið
hefja auðgun úr-
ans umfram þau
3,67% sem því er
heimilt að gera
samkvæmt skil-
málum kjarn-
orkusamkomulagsins frá árinu
2015. Fyrr í vikunni fór landið fram
úr því magni, 300 kílógrömmum,
sem samkomulagið heimilar því að
eiga af auðguðu úrani.
Hassan Rouhani, forseti Írans,
sagði að ákvörðun Írana væri svar
þeirra við því að önnur ríki hefðu
ekki staðið við samkomulagið, en
Bandaríkjastjórn dró sig úr því í
fyrra. Tók Rouhani fram að Íranar
myndu skipta um skoðun ef refsi-
aðgerðum sem settar hafa verið á
landið yrði aflétt.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
sagði á mánudaginn var að Íranar
væru að leika sér að eldi og lýstu
fulltrúar Breta, Frakka og Þjóð-
verja yfir áhyggjum sínum af
ákvörðunum Írana. Rouhani sagði
hins vegar að allar þjóðir ættu að
virða samkomulagið ef það væri
nógu gott, ekki bara Íran.
Auðga úran
umfram
heimild
Segja Írana „leika
sér að eldinum“
Hassan Rouhani