Morgunblaðið - 04.07.2019, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Kríta hf. er nýtt fjármögnunarfyrirtæki sem þjónustar lítil og
meðalstór fyrirtæki. Kríta sérhæfir sig í fjármögnun reikninga
fyrirtækja og nýtir til þess nýjustu tæknilausnir.
Kríta leitar að drífandi og kraftmiklum viðskiptastjóra í teymi
fyrirtækisins. Í starfinu felst að bjóða fyrirtækjum að stofna
til viðskipta við Kríta og fylgja eftir viðskiptasamböndum
til framtíðar.
Ef þú ert að leita þér að lifandi vinnustað, býrð yfir drifkrafti
og þrautseigju til að ná árangri, láttu okkur endilega vita af
þér og sendu okkur ferilskrá þína.
Hafðu samband við framkvæmdastjóra Kríta á netfangið
freyr@krita.is ekki síðar en 22. júlí ef þú telur að við séum
að leita að þér. Öllum erindum verður svarað.
Bergstaðarstræti 10a | 101 Reykjavík | 419 5800 | krita.is
Viðskiptastjóri
Helstu verkefni
• Sala á vörum fyrirtækisins á Íslandi.
• Byggja upp sterkan hóp viðskiptavina og viðhalda góðu viðskiptasambandi við þá.
• Miðla upplýsingum um vörur fyrirtækisins og fræða viðskiptavini um ávinning þess
að nýta sér vörur fyrirtækisins.
• Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra.
Hæfniskröfur
• Söluhæfileikar, sérstaklega á sviði fjármálavara, reynsla á því sviði er kostur.
• Frábærir samskiptahæfileikar og geta til að starfa í hóp.
• Ánægja af notkun síma og tölvupósts til samskipta, mjög góð rit- og talfærni.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði og/eða lögfræðimenntun er kostur.
Kríta býður
• Góð laun fyrir réttan aðila.
• Vinnustað með framúrskarandi aðbúnaði.
• Spennandi, skemmtilegan og fjölbreyttan vinnudag.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari