Morgunblaðið - 04.07.2019, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 04.07.2019, Qupperneq 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 stjóri í viðskiptaráðuneytinu um árabil og var mjög vel liðinn í því starfi. Atli var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Halina, fædd í Krakow í Póllandi. Þau kynntust er þau voru við nám við háskólann í Nott- ingham á Englandi. Halina er jarðeðlisfræðinur að mennt. Skömmu eftir að þau fluttu til Ís- lands hóf hún störf hjá Orkustofn- un. Halina varð fljótt altalandi á íslenska tungu og talar málið enn lýtalaust þrátt fyrir áralanga bú- setu í Bandaríkjunum. Seinni kona Atla er Þorgerður Jónsdóttir, læknaritari, fædd á Borgarhóli í Eyjafirði. Þau hjón bjuggu fyrst á Skólavörðustíg, en fluttu í nýja íbúð í Lindahverfi í Kópavogi skömmu fyrir andlát Atla. Þau áttu einnig íbúð á Ak- ureyri, en þaðan var stutt að keyra á æskuslóðir Þorgerðar. Að leiðarlokum þakka ég mági mínum fyrir skemmtilegar sam- verustundir og tíð heimboð á heimili þeirra hjóna. Far þú í friði, kæri mágur. Daníel Guðnason. Við Atli Freyr kinkuðum kolli hvor til annars í áravís áður en til góðrar vináttu dró. Hittumst stundum á fundum; á vettvangi Samvinnuhreyfingarinnar sem eitt sinn var og á krossgötum Stjórnarráðsins – fundum eða stígum Arnarhóls. Atli Freyr var maður sem tekið var eftir; virðu- legur í fasi, klæðaburði og tali; kunni sig meðal þjóða. Prótokoll- inn kunni hann utan að. Atli Freyr var mikill félags- málamaður og lærður í þeim fræð- um frá University of Nottingham og Háskóla Íslands. Félagsmálin sem og áhugi Atla á landi og þjóð leiddu sjálfkrafa til þess að í hinni daglegu umræðu um menn og málefni var hann hafsjór af fróð- leik. Hann hafði gaman af góðum sögum en lék sér einnig að því að segja sjálfur frá og hverja sögu bætti hann með orðkynngi og græskulausum húmor. Lengst af var Atli Freyr skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu – allt þar til það ráðuneyti og önn- ur runnu saman og/eða sundruð- ust. Þá fannst Atla Frey dags- verki sínu sæmilega lokið og kaus að draga sig í hlé. Það var á þessum tímapunkti, þegar ráðuneyti hans flutti inn á landbúnaðarráðuneytið, það var tímabundið, að til vináttu dró með okkur Atla, sem báðir nutu. Þessir umbrotatímar kölluðu á alls konar breytingar á húsnæði, vinnu- brögðum og afgreiðslu mála sem gamalreyndir, skildu oft lítið í. Eftir nokkrar prufur á einhverju nýju rann þetta nú samt oftast aft- ur í sama farveginn. Atla mínum leist stundum ekki á blikuna, hafði samt lúmskt gaman af þessu öllu en fannst stundum prótokollinn vanta. Þetta voru samt á margan máta ánægjulegir tímar og á kaffi- stofunni voru málin rædd og kruf- in. Þá naut Atli Freyr sín vel. Flugmælskur á gullaldarmáli, vitnaði í gamla karla, spakar kon- ur, sérvitringa og stórskáld og frá honum runnu orðtök og meitlaðar setningar. Talaði gjarnan þvert um hug sér til þess eins að ganga fram af þeim sem á hlýddu en brosti svo og skellti upp úr. Gott var að líta inn hjá Atla Frey og frú Þorgerði – eins og hann kallaði jafnan konu sína, hvort heldur það var á Skóla- vörðustígnum, Akureyri eða nú síðast í Kópavoginum. Sest að kaffi, sagðar fréttir og spekúlerað um dægurmálin eða liðna tíð. Skiptst var á bókum og einstakar bækur sem Atli taldi mér hæfa, áritaði hann og gaf. Við hjónin heimsóttum þau Þorgerði og Atla í nýja og fallega íbúð þeirra á Ak- ureyri. Nutum ríkulegs kvöld- verðar, spjölluðum og svo beið uppbúið gestaherbergið. Við nut- um þess að fá þau norður í Nýhöfn á Melrakkasléttu og geta launað næturgreiðann; aka um Sléttuna og fá að kynna þeim sögu hennar, búendur og býli. Síðustu misserin hrakaði heilsu Atla Freys – samt hress er ég kom fyrir ekki löngu og leit málverkum skreytta nýja íbúð þeirra í Lind- unum, hvar sólarlags lífsins skyldi notið. Því kom mér það á óvart er Þorgerður sagði mér lát hans. Atli Freyr kvaddi of fljótt og hans sakna ég og fleiri af lífsins sviði. Þorgerði og fjölskyldunni send- um við Kristjana okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Farðu sæll, kæri vinur. Friður Guðs þig blessi. Níels Árni Lund. Ég kynntist Atla Frey Guð- mundssyni, ungum manni, snöfur- legum og glaðbeittum, þá fram- kvæmdastjóra Sambands ungra framsóknarmanna. Fljótlega bundumst við vináttuböndum sem stóðu allt til hinsta dags Atla. Það sem mér fannst einkenna Atla öðru fremur var lífsgleðin sem var förunautur hans alla tíð þótt stundum bjátaði ýmislegt á rétt eins og gerist og gengur. Það var sama hvað það var, alltaf gekk hann keikur frá þeim lífsins leikj- um, bognaði kannski um stund en brotnaði aldrei. Það má segja að við höfum verið nánast í stöðugu sambandi alla tíð, hvort heldur með því að heilsa upp á hvor ann- an eða hringjast á. Sama var, yfir- leitt fór ég alltaf léttari í lund af þeim fundum og eftir þau samtöl. Atli hafði þannig lag á því með húmor sínum, orðheppni og fyndni að létta mönnum lífið. Ég var vissulega ekki sá eini sem þessa hefur notið því að hann var vinmargur, umgekkst og þekkti fjölda fólks. Um skeið áttum við hesta, stunduðum hestamennsku eins og stundum er kallað. Þar kom og mjög við sögu sameigin- legur vinur okkar Þorgeir Örlygs- son. Við höfðum um skeið aðstöðu á Teigi í Mosfellssveit og stund- uðum þaðan útreiðar um nágrenn- ið vetur og vor. Eigum við allir margar góðar minningar frá þeim dögum. Atli aðstoðaði reyndar um árabil Íshestamenn, einkum Guð- mund Birki Þorkelsson, í ferðum þeirra yfir Kjöl norður í Skaga- fjörð en aðallega voru það útlend- ingar sem í þeim ferðum voru. Hann var vel mæltur á ensku eftir nám sitt á Englandi og átti því létt með að umgangast hina erlendu ferðamenn og líta til með þeim. Það má nefna til marks um vin- sældir Atla að þegar dró að fimm- tugsafmæli hans stóð svo á að hestar hans voru komnir að fótum fram. Við vinir hans efndum þá til fjársöfnunar, undir forystu Sigur- jóns Björnssonar sálfræðings, til að kaupa hest handa honum í af- mælisgjöf. Var ekki að sökum að spyrja að svo mikið fé safnaðist að við gátum keypt tvo hesta í stað eins sem ætlunin hafði verið. Ekki var það verra. Atli var tvígiftur. Fyrri kona hans er pólsk, Halina Bogadóttir. Þau eignuðust tvö börn, Svövu Maríu og Guðmund Pál. Halina fluttist til Bandaríkjanna skömmu eftir skilnaðinn með bæði börnin, þar sem þau öfluðu sér góðrar menntunar og hafa búið síðan. Atli hafði alltaf náið samband við börn- in, og lagði áherslu á að þau héldu íslenskunni við. Síðari kona Atla er Þorgerður Jónsdóttir frá Borg- arhóli í Eyjafirði og á hún eina dóttur Sigríði Örnu. Ég veit ekki hvort hægt er að kalla það svo að Atli hafi gengið henni í föður stað, en víst er að ágætt samband var á milli þeirra alla tíð. Atli átti við mikil veikindi að stríða síðustu mánuðina og stóð Þorgerður alltaf sem klettur í því erfiða stríði. Nú er þessi góði drengur og vildarvin- ur allur og söknuðurinn og minn- ingarnar komnar í hans stað. Við Margrét og dætur okkar sendum Þorgerði og dóttur hennar, börn- um Atla og öllum ættingjum og venslamönnum beggja innilegar samúðarkveðjur. Friðgeir Björnsson.  Fleiri minningargreinar um Atla Frey Guðmunds- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ OddgeirBjörnsson fæddist í Reykjavík 27. janúar 1957. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 21. júní 2019. Foreldrar hans voru Sigrún Odd- geirsdóttir, f. 18. maí 1937, d. 12. ágúst 2012, og Björn B. Kristjánsson, fyrrver- andi kaupmaður, f. 25. mars 1933. Oddgeir var elstur fimm systkina. Systkini hans eru: Matthías, f. 26. febrúar 1960, maki Anna Elínborg Gunn- arsdóttir; Birna Rún, f. 29. maí Jón Leópold, f. 23. október 1980. Oddgeir ólst upp í Álfheimum til unglingsáranna og síðan í Skriðustekk í Neðra-Breiðholti. Hann lauk gagnfræðanámi frá Breiðholtsskóla. Oddgeir stund- aði nám við Iðnskólann í Reykja- vík og lauk þaðan sveinsprófi í múraraiðn. Oddgeir starfaði mestan hluta starfsævi sinnar við múraraiðn og sjómennsku. Helstu áhugamál hans á yngri árum voru júdó, skíði og golf. Oddgeir var einnig virkur í skátunum á unglingsár- unum. Hann stundaði síðar hestamennsku og veiði, útivera í náttúrunni með fjölskyldunni átti hug hans allan. Oddgeir var búsettur í Reykjavík. Oddgeir verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 4. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. 1966; Hildur Rún, f. 27. október 1969; Kristján, f. 5. maí 1972, d. 11. sept- ember 2000. Eftirlifandi maki Oddgeirs er Rósa Ingibjörg Jóns- dóttir, f. 31. mars 1963. Þau gengu í hjónaband hinn 20. júlí 1985. Börn Odd- geirs og Rósu eru: Sigrún, f. 12. september 1985, sambýlismaður hennar er Ólafur Friðrik, og Oddgeir Hlífar, f. 10. maí 1994. Sonur Oddgeirs er Sigurður Björn, f. 29. júní 1981. Sonur Rósu og stjúpsonur Oddgeirs er Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hinsta kveðja, elsku drengur- inn minn, þinn pabbi. Þegar ég byrjaði að huga að þessum texta datt mér fyrst í hug að rifja upp fyrstu minningu mína um pabba. Hún er sennilega af okkur í sumarbústaðaferð þar sem ég fann villt jarðarber ná- lægt eldfjalli, en eflaust á ég eldri minningar. Mörgum árum síðar kaupum við smálandskika með útsýni yfir fyrrnefnt eldfjall þar sem ég sá fyrir mér að heim- sækja pabba minn háaldraðan í faðmi mömmu. En svo varð ekki, því miður. Í vetur komu upp aðstæður sem leiddu til þess að ég ákvað að taka mér námshlé frá skólanum. Það var sama hvað ég reyndi að halda mig við efnið; það gekk ekki. Vegna þessa gafst mér tími með pabba uppi í hesthúsi á hverjum degi. Ég sá svolítið eftir ákvörðuninni þegar leið á vorið, en núna skil ég hvers vegna þetta átti að vera svona, öðru hefði ég tekið nærri mér. Við þessi skrif hef ég velt fyrir mér hvort ég ætti að beina orðum mínum að pabba sjálfum eða til ykkar sem enn eru hér. Pabbi vissi hversu mikið mér þykir vænt um hann og hef nú þetta að segja við hann: Ég vona að himnaríki sé uppi á kaffistofu eftir að við höfum tekið húsið saman. Sigrún. Ástkær bróðir minn er látinn, langt um aldur fram. Hoggið er aftur skarð í systkinahópinn og verður líf okkar aldrei samt héð- an í frá. Það er ekkert sem fyllir skarðið fyrir stóra bróður. Mig langar minnast þín í nokkrum orðum, elsku bróðir. Þú varst mín stoð og styrkur í gegnum farinn veg og þegar ég lít til baka þá varst það þú sem ég leitaði til þegar eitthvað bjátaði á. Styrkur þinn var einstakur og þolið mikið, bæði andlega og lík- amlega. Þú bjóst yfir ótrúlegu þreki og þrautseigju. Það var stundum nóg að heyra rödd þína ef eitt- hvað bjátaði á og allt féll á réttan stað að nýju. Þú varst ávallt verndandi og umvefjandi þegar á þurfti að halda. Ég veit að söknuðurinn á eftir að verða mikill, því tenging okkar var sterk. Það rann oft í gegnum hugann hvað ég væri rík að eiga öll þessi systkini og stolt var ég af elsta bróður mínum. Þú hafðir einstaklega góða nærveru og laðaðir að þér fólk, því það var yfir þér ró og friður. Það var auðvelt að nálgast þig og þú varst alveg laus við að dæma aðra. Það var líka stutt í glettnina og húmorinn og oft gaman að spjalla við þig yfir kaffibolla. Þú varst alltaf hreinskiptinn og án þess þó að særa aðra og speglaðir sannleikann, sem er mikil kúnst. Það var engin tilgerð til staðar, að vera sannur var þitt hjartans mál. Það bjó í þér villt orka sem þér tókst að temja fallega með ár- unum. Mér þykir mjög vænt um að hafa þitt fallega handverk allt í kringum mig núna á heimili mínu. Það kom aldrei neinn ann- ar til greina til að sinna því verki. Þú fékkst þinn skerf af mótlæti og áföllum, þannig að manni fannst alveg nóg um. Kannski var þol þitt meira en líkaminn þoldi. Þegar þú varst búinn að ákveða að taka eitthvað að þér, þá skoraðist þú aldrei undan þeim verkefnum sem þessi jarð- vist færði þér. Nú er þessu lífs- hlaupi lokið, elsku bróðir. Það er sárt að horfa á eftir systkinum sínum, en svona er lífsgangurinn. Við fjölskyldan höfðum orð á því að andlát þitt væri nú ekki tímabært, kallið þitt kom snemma og það eina sem við getum gert er að takast á við sorgina með æðruleysi. Megir þú yfirgefa þessa jarð- vist með frið og sætti í hjarta, elsku bróðir, þar til við hittumst á ný. Þú elskaðir og varst elskaður, taktu það veganesti með þér. Megi börnin þín og aðrir ná- komnir þér öðlast styrk til að tak- ast á við sorgina. Eigðu þakkir og blessun fyrir að vera mér sá bróðir sem þú varst. Þín systir Birna Rún Oddgeir Björnsson ✝ Jón Gústafssonfæddist í Reykjavík 30. júní 1948. Hann varð bráðkvaddur 25. júní 2019. Foreldrar hans voru Gústaf Pálm- ar Símonarson prentari, f. 29. október 1922, d. 28. ágúst 2017, og kona hans Lilja Ingibjörg Sigurjónsdóttir hús- móðir, f. 31. mars 1927. Systk- ini Jóns eru Sveinn Þórir, prentari, f. 5. maí 1945, Mar- grét, prentsmiður og svæða- nuddari, f. 16. júní 1953, Rík- harður, húsgagnasmiður, f. 3. febrúar 1957, og Ólafía, prent- smiður og leikskólakennari, f. 12. mars 1965. Jón kvæntist Sigrúnu Sighvats- dóttur, f. 19. febr- úar 1946, kennara í Reykjavík, 5. júní 1976. Foreldrar hennar voru Sig- hvatur Gunnars- son, f. 31. ágúst 1915, d. 4. nóv- ember 1990, hús- gagnasmiður, og Ása Gísladóttir, f. 11. desember 1917, d. 18. des- ember 2005, bókari. Sigrún og Jón eignuðust þrjá syni. Þeir eru: 1) Sighvatur, f. 27. janúar 1977, kvæntur Eddu Selmu Márusdóttur, f. 3. september 1977. Synir þeirra eru Brynj- ar, f. 2004, Eyþór Ingi, f. 2008, og Viggó Darri, f. 2011. 2) Gústaf, f. 26. janúar 1980. 3) Gylfi, f. 7. ágúst 1982, sam- býliskona og unnusta er Guðný Ásgeirsdóttir, f. 15. janúar 1982. Sonur þeirra er Benja- mín Ásgeir, f. 11. febrúar 2019. Sonur Gylfa úr fyrri sambúð er Jón Árni, f. 4. sept- ember 2008. Jón gekk í Langholtsskóla og síðan í Iðnskólann í Reykja- vík þaðan sem hann lauk meistaranámi í prentiðn, off- setiðn, skeytingu og plötugerð. Hann starfaði í ýmsum prent- smiðjum í Reykjavík og rak Prentsmiðjuna Rún með föður sínum og bróður um nokkurra ára skeið. Hann stofnaði og rak hreingerningafyrirtæki í Reykjavík, síðast Bónbræður ásamt Ómari Valgeirssyni. Jón gegndi félags- og trúnaðar- störfum í prentiðninni um margra ára skeið. Útför Jóns fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 4. júlí 2019, klukkan 13. „Sjá, tíminn, það er fugl sem flýgur hratt, hann flýgur máske úr augsýn þér í kveld.“ Niðurlag þessa vísubrots úr Rubayat datt mér í hug er ég frétti af andláti svila míns Jóns Gústafssonar sem lést 25. júní sl. Kynni mín af Jóni hófust árið 1976 en Jón hafði þá kynnst Sigrúnu eiginkonu sinni. Fljót- lega komumst við að því að við vorum nokkuð skyldir því ég og Gústaf, faðir Jóns, vorum þre- menningar. Ég vissi skv. frá- sögn móður minnar að Sigríður Halldórsdóttir (f. 1835) formóð- ir okkar hafði verið sagnafróð mjög og kunnað ógrynni af vís- um sem hún miðlaði til afkom- enda sinna. Kvaðst móðir mín sem barn muna óljóst eftir sagnafróðleik hennar og vísna- kunnáttu þar sem hún ólst upp við kné hennar á Breiðabólstað á Skógarströnd á sínum tíma. Ég held að Jón hafi á margan hátt erft sagnagáfu áðurnefndr- ar formóður okkar, því ávallt þegar maður hitti hann hafði hann frá einhverju nýju að segja og þá með sínum sérstaka frásagnarmáta. Hann hafði ákveðnar skoðanir á málefnum líðandi stundar og lét þær óspart í ljós þegar maður hitti hann. Jón byrjaði ungur að vinna fyrir sér og vann við sveitastörf fyrstu árin og var á sjó um tíma. Hann hóf síðan prentnám en faðir hans, Gústaf Símonar- son var prentari og hafði unnið við þá iðngrein í fjölda ára. Jón var áhugasamur varðandi iðn- grein sína og miðlaði oft af þekkingu sinni til okkar á þeim vettvangi. Þegar hann var á miðjum aldri urðu miklar breyt- ingar í prentiðnaðinum með til- komu tölvutækninnar og ljóst að miklar breytingar voru í vændum. Jón tók æðrulaus og fagnandi á móti nýrri tækni á þeim vettvangi þegar tölvur komu fram. Fljótlega þrengdi þó það mikið að starfandi prenturum að þeir urðu að hasla sér völl á öðrum vettvangi. Þegar svo var komið ákvað Jón að venda sínu kvæði í kross og stofna hrein- gerningarfyrirtæki. Hóf hann rekstur á þeim vettvangi ásamt félaga sínum og gekk sú starf- semi nokkuð vel. Í þeirri starfs- grein var auðvitað líka hart bar- ist og byggðist starfsemin mikið á vinnu fyrir opinber og stærri fyrirtæki og þar þurfti oft fara í gegnum flóknar útboðsreglur og skilmála. Þrátt fyrir harða samkeppni hélt hann sínu striki og veit ég ekki annað en þar hafi Jón og félagar skilað góðu verki. Fyrir um hálfum mánuði fór- um við Ólöf í sumarbústað okk- ar fyrir austan fjall og í baka- leiðinni komum við við hjá Jóni og Sigrúnu í bústað þeirra við Reykjavelli í Biskupstungum. Það var einstaklega gott veður og var okkur boðið upp á kaffi á veröndinni þar sem við sátum drykklanga stund og ræddum málin. Jón var eldhress og hafði verið við smíðar og dyttað að bústaðnum og síst hefði manni dottið í hug að hann ætti aðeins fáeina daga eftir í þessari jarð- vist. Á þessum sólríka degi kvaddi ég Jón þetta síðdegi þarna á sólpallinum við bústað- inn með þéttu handtaki og bjóst við að við myndum sjást innan ekki svo langs tíma. Það fór á annan veg en ég þykist vita að í þeim veruleika sem við tekur að loknu þessu jarðlífi munum við hittast aftur í sólskini. Blessuð sé minning Jóns Gústafssonar. Þorvaldur Bragason. Jón Gústafsson Ástkæra eiginkona mín, móðir, dóttir og tengdadóttir, BIRNA SIF BJARNADÓTTIR, skólastjóri Ölduselsskóla, varð bráðkvödd á heimili sínu fimmtudaginn 27. júní. Útförin verður frá Grafarvogskirkju 15. júlí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Bjarki Þórarinsson Ronja Ruth Birgitta Sigríður Birta Dís Sigríður Ólafsdóttir Bjarni Þ. Bjarnason Birgitta Guðnadóttir Þórarinn Þórarinsson og fjölskylda
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.