Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 58

Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 58
3-4-3 Lið júnímánaðar hjá Morgunblaðinu Pepsi Max-deild karla 2019 Beitir Ólafsson KR Hilmar Árni Halldórsson Stjörnunni Aron Bjarnason Breiðabliki Ásgeir Börkur Ásgeirsson HK Kolbeinn Birgir Finnsson Fylki Andri Rafn Yeoman Breiðabliki Ólafur Karl Finsen Val Marcus Johansson ÍA Finnur Tómas Pálmason KR Óskar Örn Hauksson KR Kristinn Jónsson KR Fjöldi sem leikmaður fékk í mánuðinum5 2 3 4 4 4 5 5 4 4 44 Morgunblaðið/Hari vel um mig eftir þrítugt, eins og margir gera, heldur hef ég alltaf gert það,“ segir Óskar. Hann var sem sagt frá unga aldri í Njarðvík í íþróttum alla daga, en Ingibjörg J. Þorsteinsdóttir móðir hans vinnur í íþróttahúsinu þar og Haukur Örn Jóhannesson faðir hans er leikja- hæsti leikmaður í sögu Njarðvíkur. „Ég er bara alinn upp í íþrótta- húsi, og hef verið í fótbolta og körfu- bolta síðan ég var 4-5 ára. Mamma er búin að vinna þarna í 30 ár þann- ig að ég er bara alinn upp í þessu umhverfi og líður mjög vel uppi í íþróttahúsi, hvort sem það er í Njarðvík eða í KR-heimilinu. Ég fer mikið þangað einn í „gymið“ eða eitthvað að dunda mér bara þegar það er ekki æfing.“ Staðan ætti ekki að koma neinum á óvart Lið KR hefur endað í 3.-4. sæti síðustu ár, alveg frá því að liðið varð Íslandsmeistari 2013. Nú virðist lið- ið nánast óstöðvandi, með sjö sigra í röð og til að mynda 13 stigum á und- an Íslandsmeisturum Vals og FH nú þegar mótið er hálfnað. „Kjarninn í þessu liði er búinn að vera saman í 2-3 ár og ég held að það skipti máli. Það kom svolítið rót á þetta hjá okkur fyrir nokkrum ár- um. Það tekur tíma að byggja upp stöðugleika, menn þurfa að kynnast og fá tíma til að mynda réttu blönd- una saman, og ég held að það sé lyk- ilatriði. En það er helmingurinn eft- ir af mótinu. Það eru einhvern veginn allir að tala um þetta [að KR eigi titilinn vísan] en við þurfum að átta okkur á því að það er svo langt, langt frá því að eitthvað sé í húsi núna. Við erum alveg slakir og vit- um að það er svo mikið eftir af mótinu,“ segir Óskar, en tekur undir að honum hafi í vor fundist liðið vel í stakk búið til að berjast um titilinn. JÚNÍ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég er nú bara að gera nákvæmlega það sama og ég hef alltaf gert,“ seg- ir Óskar Örn Hauksson, leikmaður júnímánaðar í úrvalsdeild karla í fótbolta hjá Morgunblaðinu. Þessi magnaði kantmaður á ríkan þátt í því að KR skuli vera með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar og komið í undanúrslit bikarkeppn- innar, í vænlegri stöðu til að bæta við þann fjölda titla sem Óskar hef- ur unnið með KR. Óskar varð Íslandsmeistari með KR 2011 og 2013, og bikarmeistari fjórum sinnum á árunum 2008-2014. Hann er markahæsti leikmaður í sögu KR og hefur skorað fjögur mörk í sumar, síðast í toppslagnum mikilvæga gegn Breiðabliki. Alls hefur hann skorað 72 mörk í 298 leikjum í efstu deild en er lítið að hugsa út í það að í næsta mánuði verði hann 35 ára, þó að ýmsir aðrir velti fyrir sér hvort hann hafi gert eitthvað sérstakt til þess að eiga svo gott tímabil kominn á þennan aldur. „Ég átti kannski ekki mitt besta tímabil í fyrra en ég er ekki að gera neitt nýtt. Jú, jú, maður er búinn að fá einhverja athygli í sumar og það er bara gaman, og jú, maður er kominn á einhvern aldur en ég er sjálfur minnst að pæla í því,“ segir Óskar. Því er hins vegar ekki að neita að sjaldgæft er að menn búi yfir þeim sprengikrafti sem hann hefur, orðnir hálffertugir. Hver er lykillinn? „Ég hef æft eins og maður síðan ég var bara krakki. Ég hef alltaf hugsað vel um mig og fótboltinn hef- ur alltaf verið númer eitt hjá mér, og ég held að það sé bara að skila sér. Ég byrjaði ekki bara að hugsa „Já, og mér fannst það í rauninni í fyrra líka. Við töpuðum náttúrlega ekki leik í vetur, fórum í úrslitaleik Lengjubikarsins, Reykjavíkurmóts- ins og Bose-mótsins, og þetta telur allt. Sjálfstraust og trú eykst með því að vinna leiki, og maður finnur það alveg í hópnum. Þegar maður horfir til baka ætti það því þannig lagað ekki að koma neinum á óvart að við séum á þeim stað sem við er- um á í dag,“ segir Óskar. Mikilvægt fyrir félagið að endurheimta Rúnar Inn í allt saman spilar auðvitað að Rúnar Kristinsson tók aftur við þjálfun KR haustið 2017, en það er undir hans stjórn sem Óskar hefur unnið flestalla sína titla: „Auðvitað skiptir það hrikalega miklu máli að hann skyldi koma aft- ur inn. Það var algjörlega „krúsjal“ bara fyrir KR sem félag. Eftir höfð- inu dansa limirnir og hann er hrika- lega góður þjálfari sem smitar bæði trú og ró í mannskapinn,“ og stuðn- ingsmenn KR virðast einmitt hafa smitast með: „Fyrir síðasta leik var stúkan full fyrir upphitun og það er frábært að finna fyrir stemningunni svona beint í æð. Það hefur ekki gerst lengi. Auðvitað er það bara þannig að þegar vel gengur þá mæt- ir fólk, og þannig hefur það alltaf verið,“ segir Óskar. Hefði átt að vera lengur heima Flestir eru sjálfsagt sammála því að Óskar, sem er kvæntur fyrirsæt- unni Thelmu Þormarsdóttur og starfar hjá Sparibílum meðfram fót- boltanum, hafi haft hæfileikana til að tolla betur í atvinnumennsku en raunin varð. Hann fór að láni í skamman tíma til Sandnes Ulf í Noregi 2012 og til Edmonton í Kan- ada 2015, en ætlaði sér meira og vildi hafa gert hlutina öðruvísi þegar hann fór sem ung- lingur og reyndi fyrir sér í Noregi í tvígang. Óskar hóf fer- ilinn með Njarðvík og lék einnig með Grinda- vík áður en hann fór til KR fyrir tímabilið 2007. „Auðvitað stefndi ég á að verða atvinnu- maður í fótbolta. Það er ekkert leyndarmál. Það hvernig þau mál þróuð- ust var kannski blanda af ýmsu. Maður tók ekki allt- af réttar ákvarðanir og eftir á að hyggja valdi maður ekki alltaf staði sem hentuðu. Ég tel Edmonton ekki með í þessu, það var bara smá ævintýra- mennska þegar ég var orðinn eldri. Ég fór 16 ára gamall til Molde og 18 ára til Sogndal, og kom fljótlega heim í bæði skiptin, og kannski fara félög að efast þegar þau sjá að mað- ur hefur farið tvisvar út og aftur heim. Eftir á að hyggja hefði ég átt að sleppa því að fara til Sogndal og vera lengur heima. Ég var fenginn til Molde til að vera í ung- linga- og varaliðsleikjum, þó að ég hafi æft eitthvað með aðalliðinu. Þegar ég kom til Sogndal hafði ég verið að spila í 1. deildinni á Ís- landi, en Sogndal var í Evrópubar- áttu. Ég fór til reynslu og þeir voru þvílíkt ánægðir með mig, svo að þó að ég vildi ekki sérstaklega fara þá var þrýstingur á það. Ég mætti þarna úr 1. deildinni með Njarðvík og það var svolítið stórt skref,“ segir Óskar. Eins gafst honum tækifæri til að fara til Vålerenga í ágúst 2014 en félagaskiptaglugginn lokaðist nokkrum mínútum eða klukkutím- um of snemma til þess. „Það var hrikalega svekkjandi, því þar hefði ég komist í tiltölulega stórt og stöðugt lið í efstu deild,“ segir Óskar, sem nokkrum dögum síðar varð í staðinn bikarmeistari með KR með sigri á Keflavík. Heiður að vera hér svona lengi Eins og fyrr segir er Óskar á sínu 13. tímabili með KR, orðin algjör goðsögn hjá félaginu, leikjahæstur og markahæstur, og nú tveimur mörkum frá markameti Ellerts B. Schram fyrir liðið í efstu deild (Ósk- ar hefur skorað 60 fyrir KR þar). Hann kveðst aldrei hafa verið sér- staklega nálægt því að yfirgefa Vesturbæinn fyrir annað íslenskt fé- lag: „Það hafa komið tímapunktar þar sem ég hef verið samningslaus og þá hefur maður heyrt í öðrum félögum, en einhvern veginn aldrei verið neitt rosalega nálægt því að fara. Mér hefur bara liðið vel hérna. KR er sérstakt félag að vera í og það er heiður að hafa verið hérna í allan þennan tíma, og vonandi verð ég eitthvað lengur.“  Auk Óskars eru þrír KR-ingar í úrvalsliði Morgunblaðsins fyrir júní- mánuð sem sjá má hér fyrir neðan. Ég er alinn upp í íþróttahúsi  Óskar Örn Hauksson úr KR er leikmaður júnímánaðar Reyndur Óskar Örn Hauksson leikur sitt sextánda tímabil í efstu deild og hefur skorað á hverju ári. Hann er næstleikjahæstur allra í deildinni frá upphafi og í 14.-16. sæti yfir þá markahæstu. Ein öflugustu meltingarensím ámarkaðnum í dag l Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans. l Betri melting, meiri orka! l Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans), Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase). l Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum. l 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og og í heilsuhillum stórmarkaða Mér finnst gott að fá mér bjór með pizzu en því miður þá verð ég alltaf útþaninn eftir það. Ég að prófaði að taka „Digest Gold“ fyrir máltíðina og viti menn, það bara svínvirkaði! Haraldur Egilsson, 47 ára sjómaður og ævintýragjarn matgæðingur Það bara svínvirkaði! Digest Gold Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem,loftmyndun, uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 58 ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.