Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 61

Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 Árið 1896 flutti Björn Þorláksson bóndi áVarmá inn vélar til að vinna ull og notaði til þess vatnsorku úrÁlafossi. Verksmiðjan átti stóran þátt í stofnun og vexti byggðar íMosfellsbæ Álafoss , Álafossvegi 23 Mosfellsbæ, Laugavegi 4-6, alafoss.is Eitt ogannað  Jón Daði Böðvarsson landsliðs- maður í knattspyrnu virðist vera á leið frá enska liðinu Reading. Blaðamaður staðarmiðilsins Get Reading sagði á Twitter í gær að Jón fari ekki með lið- inu í æfingaferð til Spánar um næstu helgi og muni æfa í Reading ásamt öðrum leikmönnum sem séu á förum frá félaginu í sumar. Ekki náðist í Jón í gær til að bera þetta undir hann.  Handknattleiksmaðurinn Ísak Rafnsson er kominn aftur heim úr at- vinnumennsku og mun spila með FH á nýjan leik. Ísak var lánaður til aust- urríska liðsins Schwaz Tirol í fyrra, með möguleika á að vera áfram úti, en staðfesti við mbl.is í gær að hann myndi taka upp þráðinn með uppeldis- félagi sínu í Hafnarfirði næsta vetur.  Benjamin Prah, knattspyrnumaður frá Gana, er nú löglegur með liði ÍBV og getur spilað næsta leik gegn KR á sunnudaginn. Prah kom til Eyja í apríl en fékk ekki leikheimild áður en lokað var fyrir félagaskiptin um miðjan maí. Hann verður 25 ára á morgun, er miðjumaður og var síðast hjá Berek- um Chelsea í efstu deild í Gana.  Englandsmeistarar Manchester City hafa virkjað klásúlu í samningi spænska miðjumannsins Rodri hjá Atlético Madrid. Kaupverðið er 70 milljónir evra sem gerir hann að dýr- asta leikmanni í sögu félagsins, sam- þykki hann kaup og kjör við City.  Þá hefur Manchester City keypt spænska vinstri bakvörðinn Angelino af PSV Eindhoven fyrir 5,3 milljónir punda, ári eftir að hafa selt hann til hollenska félagsins. HLÍÐARENDI/GARÐA- BÆR/SELFOSS Bjarni Helgason Jóhann Ingi Hafþórsson Guðmundur Karl Valur og Breiðablik skiptu með sér stigunum þegar liðin mættust í toppslag 8. umferðar úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max- deildarinnar, á Origo-vellinum á Hlíðarenda í gær en leiknum lauk með 2:2-jafntefli í hörkuleik. Margrét Lára Viðarsdóttir kom Valsliðinu yfir á 11. mínútu og Hlín Eiríksdóttir tvöfaldaði forystu Valskvenna fimmtán mínútum síð- ar. Berglind Björg Þorvaldsdóttir minnkaði muninn fyrir Breiðablik undir lok fyrri hálfleiks og staðan því 2:1 í hálfleik. Það var svo Alex- andra Jóhannsdóttir sem jafnaði metin fyrir Blika á 88. mínútu. Eftir að Valskonur komust yfir stjórnuðu þær ferðinni frá A til Ö. Þær voru sterkari aðilinn í leiknum og varnarmenn liðsins réðu við vel flestar sóknaraðgerðir Blika. Vals- liðið sofnaði hins vegar illilega á verðinum þegar Blikar jafna metin og það getur verið dýrt í toppslag. Blikar byrjuðu leikinn vel en eft- ir að liðið lenti undir hrundi leikur liðsins. Þær voru of lengi að jafna sig og loksins þegar þær virtust vera að ná vopnum sínum á nýjan leik fengu þær annað mark á sig. Blikaliðið sýndi hins vegar mikinn karakter að koma til baka, eftir að hafa lent 2:0-undir í leiknum, og að ná að jafna metin á útivelli gegn af- ar sterku Valsliði segir mikið um gæðin. Valur var með unninn leik í höndunum, allt þangað til á 88. mínútu og það var ekkert sem benti til þess að Blikar væru að fara að jafna. Valur hefur á að skipa einu reynslumesta liði Ís- landssögunnar og liðið á ekki að glutra niður unnum leik. Breiðablik sýndi það í gær af hverju liðið er Íslandsmeistari. Þær neituðu að gefast upp, voru slakari aðilinn í leiknum en tókst samt að kreista fram stig. bjarnih@mbl.is Einn hausverkur lagaður Stjarnan náði í sterkt marka- laust jafntefli gegn Þór/KA á heimavelli. Stjörnunni hefur gengið mjög illa að undanförnu; skorað lít- ið og fengið mikið af mörkum á sig. Stjarnan fann lyf við öðrum haus- verknum í gær. Stjörnukonur vörð- ust mjög vel og er ljóst að end- urkoma Önnu Maríu Baldursdóttur Seiglustig meistaranna  Valur betri aðilinn í uppgjöri toppliðanna en Blikar unnu upp tveggja marka forskot á Hlíðarenda  Alexandra jafnaði rétt fyrir leikslok  Liðin áfram jöfn Morgunblaði/Arnþór Birkisson Toppslagur Miðjumennirnir Dóra María Lárusdóttir og Hildur Antonsdóttir eigast við á Hlíðarenda í gærkvöld. gerir mikið. Hún var eins og drottning í ríki sínu og flestallt sem Þór/KA reyndi endaði á henni. Hinum megin var Stjarnan hins vegar aldrei líkleg til þess að skora, með Snædísi Maríu Jör- undsdóttur eina frammi. Hún er kornung og var að spila sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Stephany Mayor var í strangri gæslu allan leikinn og þegar hún nær sér ekki á strik vantar gæði í sóknarleik Þórs/KA. johanningi@mbl.is Hólmfríður afgreiddi KR Selfoss vann seiglusigur á KR í Pepsi Max-deild kvenna í knatt- spyrnu í kvöld. Lokatölur urðu 1:0 og það sem skildi liðin að var mark frá Hólmfríði Magnúsdóttur, fyrr- verandi leikmanni KR. Sigurmarkið kom á 20. mínútu þegar Anna María Friðgeirsdóttir tók góða aukaspyrnu inn á vítateig KR og Hólmfríður kom á sigling- unni á fjærstöng og renndi sér á boltann. Vel klárað hjá Hólmfríði gegn sínum gömlu félögum. KR fékk dauðafæri til að jafna seint í leiknum. Sandra Dögg Bjarnadótt- ir fékk þá boltann á góðum stað í vítateignum og hamraði hann í stöng. gk@sunnlenska.is 1:0 Margrét Lára Viðarsdóttir 11. 2:0 Hlín Eiríksdóttir 26. 2:1 Berglind B. Þorvaldsdóttir 39. 2:2 Alexandra Jóhannsdóttir 88. I Gul spjöldBerglind Björg (Breiðabliki). Dómari: Egill A. Sigurþórsson, 8. Áhorfendur: 828. MM Fanndís Friðriksdóttir (Val) VALUR – BREIÐABLIK 2:2 M Margrét Lára Viðarsdóttir (Val) Hallbera Guðný Gísladóttir (Val) Dóra María Lárusdóttir (Val) Guðný Árnadóttir (Val) Hlín Eiríksdóttir (Val) Alexandra Jóhannsd. (Breiðab.) Karólína Lea Vilhjálmsd. (Breið.) Selma Sól Magnúsdóttir (Breið.) Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki) Berglind Björg Þorvaldsd. (Breið.) 1:0 Hólmfríður Magnúsdóttir 20. I Gul spjöldLaufey Björnsdóttir, Bojana Kristín Besic (KR). Dómari: Helgi Ólafsson, 7. Áhorfendur: 203. SELFOSS – KR 1:0 M Anna María Friðgeirsd. (Selfossi) Karitas Tómasdóttir (Selfossi) Þóra Jónsdóttir (Selfossi) Hólmfríður Magnúsd. (Selfossi) Cassie Boren (Selfossi) Betsy Hassett (KR) Tijana Krstic (KR) Lilja Dögg Valþórsdóttir (KR) I Gul spjöldArna Sif Ásgrímsdóttir, Andr- ea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) Dómari: Þórður Már Gylfason, 8. Áhorfendur: 110. MM Anna María Baldursdóttir (Stjörn.) STJARNAN – ÞÓR/KA 0:0 M Edda María Birgisdóttir (Stjörn.) Dilja Ýr Zomers (Stjörnunni) Viktoría V. Guðrúnardóttir (Stjör.) Birta Guðlaugsdóttir (Stjörnunni) Bianca Sierra (Þór/KA) Lára Kristín Pedersen (Þór/KA) Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) Þórdís H. Sigfúsdóttir (Þór/KA)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.