Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.07.2019, Qupperneq 12
danshöfundur en ég samdi dansana fyrir Bláa
hnöttinn og Slá í gegn. Í Billy Elliot var Lee
Proud danshöfundur en ég aðstoðaði. Ég er
mjög þakklát þessum tækifærum,“ segir hún.
„Í Bláa hnettinum var skemmtilegt að taka
þátt í því að þróa dans í glænýjum söngleik og
ég fann frábæra krakka í hlutverkin. Og sagan
er dásamleg,“ segir hún.
„Svo fór ég í Þjóðleikhúsið og samdi dansa
fyrir Slá í gegn og lærði allt um Stuðmenn. Nú
er ég að vinna með Röggu Gísla en ég hef séð
Með allt á hreinu margoft,“ segir hún.
Undir pressu að standa sig
Chantelle fékk Grímuna fyrir bæði Bláa hnött-
inn og Slá í gegn og segir það mikinn heiður.
„En það setur á mig smá pressu!“ segir hún og
hlær. „Nú þarf ég að taka á honum stóra mín-
um og standa mig því allir búast við því af
mér,“ segir hún en segist ekki kvíða vinnunni
því hér sé hæfileikaríkt fólk.
„Á Íslandi eru ótrúlega hæfileikaríkir og
harðduglegir dansarar; þeir bestu sem ég hef
hitt á ferlinum. Ég hef aldrei áður séð svona
viðhorf til vinnu og ég kem úr umhverfi harð-
duglegs fólks í Englandi. Ég vissi ekki hverju
ég ætti að búast við; mér var sagt að fólk hér
væri afslappaðra en á Englandi en það er ekki
mín reynsla. Nemendur mínir eru staðráðnir í
að standa sig og bæta sig. Svo eru þetta bara
frábærir krakkar. Það er ein ástæða fyrir því
að ég ílentist hér; mér finnst svo gaman að
kenna. Krakkarnar halda áfram að koma mér
á óvart. Sumir krakkarnir sem eru núna að
dansa í We Will Rock You voru hjá mér í Billy
Elliot,“ segir Chantelle.
„Svo er skemmtilegt að vinna með þessu
fólki sem maður hefur heyrt svo mikið um,
eins og Ladda, Króla, Röggu og Birni Jörundi.
Það hefur verið algjör unun að vinna með þeim
og mjög gefandi.“
Fimm daga rokksmiðja
Söngleikurinn We Will Rock You gerist í fram-
tíðinni þar sem tónlist hefur verið bönnuð. Þar
er sögð saga af hópi bóhema sem reyna allt til
þess að koma aftur á frjálsri hugsun, tísku og
lifandi tónlist í framtíð þar sem allir klæða sig,
hugsa og haga sér eins. Söngleikurinn hefur
farið sigurför um heiminn og hefur verið afar
vinsæll um langt skeið. Í helstu hlutverkum
eru Ragga Gísla, Björn Jörundur Friðbjörns-
son, Kristinn Óli Haraldsson (Króli), Þórhallur
Sigurðsson (Laddi), Katla Njálsdóttir, Berg-
lind Halla Elíasdóttir og Páll Sigurður Sig-
urðsson og er Vignir Rafn Valþórsson leik-
stjóri.
Chantelle segir þau verða að vera trú sög-
unni og atriðin og lögin verða að vera þau
sömu og í öðrum uppfærslum. „Ég hef aðeins
meira frelsi varðandi dansinn og hægt er að
leika sér aðeins með það. Við erum svona
hálfnuð við að semja dansana en þrjár vikur
eru í frumsýningu,“ segir hún og nefnir að
frumsýnt verður í Háskólabíói 15. ágúst og
segir Chantelle að sýningar verði líklega út
ágúst.
„Alls eru 23 dansarar; þar af sjö í aðal-
hlutverkum, og svo fimm manns í hljómsveit-
inni. Svo er auðvitað tæknilið þannig að við er-
um um fjörutíu manns sem vinnum við
söngleikinn.“
Chantelle ætlar að halda fimm daga rokk-
smiðju 19. til 23. ágúst fyrir krakka á aldrinum
8-20 ára. „Þau munu læra nokkur atriði úr
sýningunni. Það verður kennt fyrstu fjóra dag-
ana og þau fá að vinna með nokkrum úr leik-
arahópnum. Svo á föstudeginum sýna þau fjöl-
skyldu og vinum það sem þau hafa lært og eru
þá að sýna í alvöru settinu í Háskólabíói. Svo
fá þau að hitta alla leikarana og fá að lokum að
sjá sýninguna það kvöld. Námskeiðið gefur
þeim tækifæri til að upplifa alvöruleikhús.“
Samhugur í hópnum
Chantelle var upphafsmaður að því að koma ís-
lenskum dönsurum í alheimskeppni dansara,
en hún var haldin í Portúgal fyrr í sumar og
nefnist Dance World Cup. Chantelle rekur
Ragga Gísla, Björn Jörundur, Laddi, Katla
Njálsdóttir, Berglind Halla Elíasdóttir, Króli
og leikstjórinn Vignir Rafn bregða á leik á
dansæfingu hjá Chantelle en þau eru öll í
aðalhlutverkum í We Will Rock You sem
fer á svið í ágúst. Einn aðalleikarinn, Páll
Sigurður Sigurðsson, var vant við látinn.
’Á Íslandi eru ótrúlega hæfileikaríkir og harð-duglegir dansarar; þeir bestu sem ég hef hitt á ferlinum. Ég hef aldrei áður séð svona viðhorf til vinnuog ég kem úr umhverfi harðduglegs fólks í Englandi.
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.7. 2019