Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Bæði Evrópska persónuverndar- ráðið, EDPB og Evrópska persónu- verndarstofnunin, EDPS segja í mati sínu á afleiðingum skýjalöggjafar Bandaríkjanna (e. US Cloud Act) á hið evrópska laga- umhverfi per- sónuverndar að heppilegast væri að gerður yrði ítarlegur samn- ingur milli ESB og Bandaríkjanna um aðgang að raf- rænum sönnunar- gögnum. Þetta kom fram á vef- síðu Persónuverndar í síðustu viku, en málefnið var rætt á 12. fundi Evr- ópska persónuverndarráðsins í Brussel í júlí. Skýjalöggjöfin heimilar löggæsluyfirvöldum í Bandaríkjun- um að krefjast afhendingar á gögn- um þjónustuaðila sem staðsettir eru innan Bandaríkjanna, óháð því hvar gögnin eru vistuð. Fjöldi Íslendinga nýtir „skýin“ Bæði Evrópska persónuverndar- ráðið og Evrópska persónuverndar- stofnunin leggja áherslu á það í mati sínu að ítarlegri samningur ætti að innihalda strangar verndarráðstaf- anir hvað varðar bæði málsmeðferð- ina og efnismeðferð þannig að grund- vallarréttindi einstaklinga séu tryggð. Fjöldi Íslendinga nýta sér banda- ríska þjónustuaðila til að geyma gögn sín á netinu í svokölluðum „skýjum“. Má þá nefna nokkur vinsæl stór- fyrirtæki, svo sem Dropbox, Google og iCloud, sem öll bjóða upp á raf- ræna geymslu gagna á netinu og eru í eigu bandarískra aðila. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir ólíklegt að bandarísk löggæsluyfirvöld geti nýtt skýjalöggjöfina til að nálgast íslensk gögn án heimildar en gefur sér að einhvers konar samningur sé á milli íslenskra og bandarískra löggæslu- yfirvalda sem veiti slíka heimild í ein- hverjum tilvikum. Hversu langt slík heimild næði er Helgu ekki kunnugt um. „Ég gef mér að það sé í gildi ein- hvers konar samkomulag við banda- rísk stjórnvöld en það er lögreglan sem þyrfti að svara fyrir það. Samn- ingur þarna á milli ætti að vera þann- ig að bandarísk löggæsluyfirvöld ættu aldrei að geta vaðið yfir önnur yfirráðasvæði án þess að það væri á grundvelli einhverrar heimildar eða einhvers samkomulags,“ segir Helga í samtali við Morgunblaðið. „Að sjálfsögðu ættu íslenskir að- ilar í þessum geira að passa sig að ákvæði slíks samnings fari að gild- andi lögum á Íslandi eins og til dæmis persónuverndarlögunum nýju,“ segir hún. Helga segir að GDPR-persónu- verndarlögin sem tóku gildi hér á landi 15. júlí á síðasta ári gildi ekki um starfsemi eða vinnslu persónu- upplýsinga hjá lögreglunni. Það geri hins vegar ný lög Evrópuþingsins og ráðsins um meðferð persónuupplýs- inga í löggæslutilgangi sem tóku gildi á Íslandi 25. júní sl. nærri ári eftir að persónuverndarlöggjöfin tók gildi hér á landi. Að sögn Helgu var lög- gjöfin innleidd nánast samtímis per- sónuverndarlöggjöfinni í mörgum öðrum Evrópuríkjuríkjum. Í löggjöfinni kemur m.a. fram í 10. grein um miðlun upplýsinga til al- þjóðastofnana og þriðja ríkis að per- sónuupplýsingum megi miðla til ábyrgðaraðila sem teljist til lögbærs yfirvalds hjá alþjóðastofnun eða ríkis utan EES að því marki sem nauðsyn- legt er í löggæslutilgangi séu ákveðin skilyrði uppfyllt. Helga bendir á að Evrópska per- sónuverndarráðið og Evrópska per- sónuverndarstofnunin telji nauðsyn- legt að fara þurfi yfir gildandi alþjóðasamninga Evrópusambands- ins við Bandaríkin til að þeir standist nýju persónuverndarlöggjöfina. „Og þá gef ég mér að það þurfi líka að gera hér,“ segir hún. Helga segir jafnframt að þau bendi á það í áliti sínu að ákvæðin sem hafi verið í gildi taki ekki nógu skýrt fram hvaða heimildir eru fyrir bandarísk yfirvöld á þessu sviði. Segir hún að þetta sé eitt af þeim málum sem Persónuvernd muni beita sér við að skoða á næstunni. Vilja nýjan samning við Bandaríkin  Óvíst er hvaða afleiðingar skýjalöggjöf BNA hefur á Ísland  Forstjóri Persónuverndar segir ólíklegt að bandarísk löggæsluyfirvöld geti nýtt löggjöfina til að nálgast íslensk gögn án heimildar Morgunblaðið/Eggert Ský Margir Íslendingar nota iCloud frá bandaríska fyrirtækinu Apple. Helga Þórisdóttir Enn sem komið er hefur aldrei verið sektað fyrir brot á persónu- verndarlögunum sem tóku gildi 15. júlí í fyrra. Þetta staðfestir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar. Segir hún ástæðuna þó vera hversu mikill fjöldi mála hafi borist stofnuninni, sem hún segir að sitji enn uppi með mikinn fjölda óafgreiddra mála frá því áður en persónuverndarlögin tóku gildi. Þeim fer að að hennar sögn fjölgandi með hverju árinu. Í fyrra bárust Persónuvernd um 2.400 mál, rúm- lega 1.900 árið 2017. Það sem af er ári hafa Persónuvernd þegar borist 1.415 mál. Helga segir að starfsmenn stofnunarinnar hafi ekki undan við að afgreiða málin og hafi ekki enn náð að vinna niður hal- ann. „Það er því ekki enn hægt að lesa neitt mikið út úr þessu því að við erum enn dálítið föst í gömlu málunum og þurfum að klára þau,“ segir Helga. Hún segir að ekkert þeirra mála sem heyri undir persónuverndar- lögin og hafi verið tekin fyrir af Persónuvernd hafi verið afgreitt með sekt. Það hafi þó komið til skoðunar í einu máli og það hafi verið í tengslum við vefsíðuna tekjur.is þar sem hægt var að nálgast upp- lýsingar um tekjur Íslendinga úr skattskrám fyrir árið 2016. Persónu- vernd tók þó þá á endanum ákvörðun að sekta ekki fyrirtækið Visku- brunn, sem var á bak við tekjur.is, fyrir vefsíðuna. Persónuvernd enn ekki sektað TEKJUR.IS EINA MÁLIÐ ÞAR SEM SEKT KOM TIL GREINA Dragá í Skorradal, milli Litlu- og Stóru Drageyrar hefur þornað upp í sumar en á svæðinu hefur varla rignt síðan um miðjan maí að sögn Péturs Davíðssonar á Grund 2 í Skorradal. „Það hefur tvisvar kom- ið smárigning. Það rétt bleytti á. Hér hefur ekki rignt af og til eins og í bænum,“ segir hann. Faðir Péturs er Davíð Pétursson á Grund í Skorradal. „Hann man ekki eftir því að áin hafi verið þurr áður. Hún fær vatn úr Skarðsheið- inni, úr Villingadalnum. Það segir sína sögu að þetta sé allt orðið svo þurrt að snjóbráðnunin nær ekki einu sinni að koma niður.“ Að sögn Péturs hefur þetta vald- ið því að vel hefur þurft að fara með vatn í nágrenninu. „Hér hefur verið vatnsskortur á sumum stöðum og þurft að fara vel með vatn,“ segir Pétur. „Vatnsbólið fyrir Birki- móann tæmdist hér fyrir tveimur til þremur vikum. Þar er vatnstankur tengdur við húsið. Í sumarhúsa- hverfunum á Hálsum hefur vatn verið keyrt í brunnana til að bæta á vatnssöfnunina,“ segir Davíð, en íbúar á svæðinu hafa kvartað yfir því gagnstæða. „Nú er þetta alveg komið í hina áttina, við vorum að kvarta yfir flóðum í vor. Tjónið er meira af flóðunum, en við þessar aðstæður lækkar bara í og það kemur aftur. Þar sem vatnið er orð- ið hærra hefur það náð meira grunnlandi undir sig. Nú er það bert og þar verður fok, en hefði kannski verið gróið,“ segir hann. Farvegur Dragár þornaði upp í sumar Ljósmynd/Pétur Davíðsson Dragá Ekki hefur rignt að ráði síðan 15. maí. Davíð Pétursson á Grund man ekki til þess að Dragá hafi áður þornað.  Íbúar þurfa að fara vel með vatn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.