Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það bar til tíð-inda fyrirhelgi að Norður-Kóreu- menn skutu á loft tveimur skammdrægum eld- flaugum, samtímis því sem opinberar fréttastofur landsins fóru harkalegum og niðrandi orðum um Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, fyrir „heimsku- lega“ bón um viðræður milli leiðtoga ríkjanna tveggja. Þetta er í sjötta sinn sem stjórnvöld í Pjongjang skjóta eldflaugum á loft á undan- förnum vikum, en tilrauna- skotin eru sögð í mótmæla- skyni við sameiginlegar her- æfingar Bandaríkjahers og herafla Suður-Kóreu sem hafa lengi verið Norður-Kóreu- mönnum þyrnir í augum. Æfingarnar nú eru raunar smærri í sniðum en oftast áður í þeirri von að það myndi draga úr spennu á Kóreuskaganum en viðbrögð Norður-Kóreu- manna hafa þrátt fyrir það ver- ið harkaleg. Árásirnar á Moon vekja sér- staka athygli, en hann flutti á fimmtudaginn ræðu í tilefni af frelsun Kóreu undan Japönum í lok síðari heimsstyrjaldar þar sem hann sagðist hafa þá draumsýn að ríkin tvö á Kóreu- skaganum myndu sameinast í síðasta lagi árið 2045. Samein- ingarráðuneyti Norður-Kóreu svaraði því með yfirlýsingu um að það væri „ekkert til að ræða um“ við nágranna sína í suðri og engin löngun til þess að hefja viðræður milli ríkjanna tveggja á ný. Fyrir sitt leyti hafa stjórn- völd í bæði Suður-Kóreu og Bandaríkjunum reynt að gera eins lítið úr eldflaugaskotum Norður-Kóreumanna og mögu- legt er, þrátt fyrir að í þeim fel- ist skýrt brot á þeim skilyrðum sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sett Norður- Kóreu. Skýrist sú afstaða að hluta til af vilja Donalds Trumps Bandaríkjaforseta til þess að halda áfram persónu- legum viðræðum sínum við Kim Jong-un, leiðtoga Norður- Kóreu, í þeirri von að þar geti náðst einhvers konar sam- komulag sem myndi tryggja það að Norður-Kóreumenn gæfu kjarnorkuvopn sín upp á bátinn, gegn því að viðskipta- þvingunum yrði aflétt. Hegðun Norður-Kóreu- manna að undanförnu bendir hins vegar alls ekki til þess að þar sé nokkur sátta- né samn- ingsvilji þessa stundina þó að þeir stilli sig um að gagnrýna Trump sérstaklega. Líkur á ár- angri í viðræðum geta því ekki talist mjög miklar um þessar mundir. Norður-Kóreumenn sýna lítinn sáttavilja}Aftur í gamla farið? Stórum áfangavar náð í Súd- an á laugardaginn þegar herforingja- ráðið og fulltrúar borgaralegra afla undirrituðu samkomulag um að deila völdum í landinu, og ljúka þar með því millibilsástandi sem kom upp þegar Omar al- Bashir, forseta landsins til þriggja áratuga, var steypt af stóli af hernum. Samkvæmt samkomulaginu stýrir nýtt ráð, skipað bæði fulltrúum hers og mótmæl- enda, landinu næstu þrjú árin og verður hlutverk þess að undirbúa jarðveginn fyrir kosningar að þeim tíma liðnum. Nýtt þing verður skipað fram til þess tíma, og eiga fulltrúar beggja aðila að skiptast á að fara með vald forsætisráðherra landsins. Mikill fögnuður greip um sig í Súdan, einkum höfuðborginni Kartúm, eftir að samkomulagið var undirritað, en hafa ber í huga að undirritunin er ein- ungis upphafið að langri og strangri vegferð sem óvíst er hvernig endar. Fyrir það fyrsta á enn eftir að reyna á það hversu mikið traust ríkir á milli forystu hersins og hinna borgaralegu afla sem nú koma að borðinu. Á það ekki síst við vegna þess að herinn gerðist sekur um hrottalegt athæfi í sumar þegar kom að því að leysa upp stöður mótmælenda, og hefur þess verið krafist að þeir at- burðir verði rannsakaðir ofan í kjölinn. Og þó að Abdel Fattah al-Burhan, yfirmaður herfor- ingjaráðsins, hafi lagt þunga áherslu á að höfuðmarkmið sitt væri að koma aftur á lýðræði í Súdan er alls óvíst að hugur hafi þar fylgt máli. Hin áskorunin er einfaldlega sú að þriggja áratuga óstjórn Bashirs hefur siglt efnahag landsins í strand. Bráðabirgða- stjórnin sem nú tekur við þarf því að snúa efnahagsþróuninni við, og um leið halda friðinn í landinu, sem verður ekki létt verk. En þátt fyrir óvissu og fyrir- sjáanlega erfiðleika verður áfangi laugardagsins þó að teljast fagnaðarefni og það yrði ekki lítið afrek ef Súdan þróað- ist yfir í lýðræðisríki á næstu árum. Það verður ekki auð- velt að koma á lýð- ræði í landinu} Stór áfangi í Súdan T íu af hundraði kjósenda geta krafist þjóðaratkvæðis um lög sem Alþingi hefur samþykkt. Kröfuna ber að leggja fram innan þriggja mánaða frá samþykkt laganna“ – frumvarp stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá. Sumum finnst 10% vera of lítið en hver sem hefur reynt að safna undirskriftum getur vottað að það er ekkert auðvelt. Það er langt frá því að vera sjálfsagt að ná um 25 þúsund undirskriftum. Málskotsréttur, eins og frumvarp stjórnlagaráðs leggur til, er gríðarlega mikilvægur fyrir meira lýðræði. Nánar tiltekið meira beint lýðræði. Beint lýðræði er þó enginn dans á rósum. Það lagar ekki öll vandamál eins og töfralausn fyrir hvert eitt ágreiningsmál. Að auki er ekki hægt að setja öll mál í þjóðaratkvæðagreiðslu, þær eru dýrar og hægvirkar þar sem það þarf að kynna öll mál mjög vel og ef það er eitthvað sem ég hef lært í nefndarvinnu á þingi er að það tekur langan tíma að fara yfir öll álitamál og sjónarhorn þingmála. Einstaka mál geta þó hentað mjög vel í þjóðaratkvæðagreiðslu og við ættum endi- lega að setja málskotsrétt eins og lagt er til í frumvarpi stjórnalagaráðs. Kostir aukins beins lýðræðis eru tvímæla- lausir, beint lýðræði dreifir valdi og eykur þekkingu fólks á málefnum samfélagsins. Að undanförnu hefur verið reynt að safna undirskriftum vegna þriðja orkupakkans. Ég veit ekki hvernig gengur en ég fékk tölvupóst fyrir um tveimur vikum þar sem mér var sagt að um 10 þúsund hefðu skrifað undir áskorun um þjóðaratkvæðagreiðslu í því máli. Kannski eru komnar fleiri undirskriftir núna því þetta er sama talan og í frétt frá því í byrjun maí. 10 þús- und undirskriftir eru ekkert smáræði en það er langt frá þeim viðmiðum sem nýja stjórnar- skráin setur. Eins og áður sagði þá leysa þjóðaratkvæða- greiðslur ekki öll vandamál. Brexit er nýlegt dæmi um hvernig hægt er að svindla á þjóðar- atkvæðagreiðslu. Óprúttnir aðilar beinlínis lugu um kosti þess að ganga úr ESB til þess að hafa áhrif á niðurstöðuna. Málstaður þeirra var ekki betri en það að þeir þurftu að skálda sér rök. Á tímum samfélagsmiðla þar sem hver sem er get- ur náð augum og eyrum jafn margra og fjöl- miðlar þá er það augljóst lýðræðislegt vanda- mál. Það eru hins vegar til lausnir. Margar lausnir sem kosta ekki tugi til hundruð milljóna eins og þjóðar- atkvæðagreiðslur gera. Það er hægt að hafa slembival, rökræðukannanir, vottaðar upplýsingar og þess háttar, áður en farið er í ýtrustu útgáfu beins lýðræðis sem er þjóðar- atkvæðagreiðsla. Slíkar atkvæðagreiðslur ættu að vera síð- asta beina lýðræðistækið sem gripið er til, eftir að búið er að prófa aðrar aðferðir beins lýðræðis. Þess vegna er þröskuld- urinn fyrir málskot þjóðarinnar svona hár, eins nauðsyn- legur möguleiki og málskotið er þá er það þungur hnífur. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Höfundur er þingmaður Pírata. Beint lýðræði er ekki bara þjóðaratkvæðagreiðsla STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það stefnir í verulegan hallaí rekstri Landspítalans áárinu þrátt fyrir að fram-lög úr ríkissjóði hafi auk- ist. Árið 2018 jukust framlög um 5,6 milljarða króna eða sem nemur 10% milli ára. Samt skilaði spítal- inn 1,4 milljarða króna halla. Á fjárlögum fyrir 2019 var einnig gert ráð fyrir auknu framlagi, en eins og fram kom í umfjöllun mbl.is síðastliðinn fimmtudag herma heimildir að hálfsársuppgjör Landspítala hafi sýnt umfangsmik- inn rekstrarhalla. Þá hafa framlög ríkissjóðs til Landspítalans aukist um 25% frá árinu 2016. „Það er ýmislegt sem bendir til þess að menn hafi misst tökin, en það á eftir að eiga samtal um það hvað það er sem veldur þess- um rekstrarhalla,“ segir Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaga- nefndar Alþingis. Hann segir halla Landspítala vera eitt af fyrstu við- fangsefnum fjárlaganefndar þegar þing kemur til starfa á ný, enda hlutverk nefndarinnar að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga. „Það sem er mikilvægast í þessu er hvernig menn ætla að bregðast við. Bæði þessum halla sem kemur fram á ársfjórðungnum og svo núna hálfsársuppgjörinu. Við mun- um í fjárlaganefnd taka þetta hálfsársuppgjör fyrir núna og á fundi með ráðuneytinu. […] Við tökum þetta föstum tökum.“ „Greinilega brugðist“ Landspítalinn skilaði 1,4 millj- arða halla í fyrra og varð ljóst í vor, þegar þriggja mánaða uppgjör hans var afhent heilbrigðisráðu- neytinu og fjárlaganefnd, að stefndi í verulegan halla á þessu ári. Hallareksturinn var einnig áberandi í hálfsársuppgjöri spít- alans. Willum segir fjárlaganefnd hafa, í kjölfar þess að þriggja mán- aða uppgjör spítalans sýndi veru- legan rekstrarhalla, áréttað í bréfi til heilbrigðisráðuneytisins skyldu til þess að bregðast við ef stefni í rekstrarhalla. „Það greinilega hef- ur brugðist að ná tökum á þessu,“ segir formaðurinn. „Það er ekkert sjálfgefið að menn fái bara að fara yfir heimild og svo sé það kvittað út, menn verða að ná niður þessum halla. Nefndir auka ekki heimild og svo fara menn þrátt fyrir allt yfir, það gengur ekki upp.“ Stjórnendur Landspítala kynntu á fundi á fimmtudag um- fangsmiklar breytingar á skipulagi spítalans, en þær breytingar eiga ekki að taka gildi fyrr en fyrsta október, þegar megnið af árinu er liðið. Er því talið óhjákvæmilegt að spítalinn skili halla á árinu þrátt fyrir boðaðar breytingar. Spurður hvort aðgerðir spítalans komi ekki of seint segir Willum ekki tíma- bært að álykta um það. „Við þurfum bara að leggja mat á það hvað hefur verið gert, þær aðgerð- ir sem er verið að fara í, þá þjón- ustu sem þarf að veita og hver raunveruleg ástæða þess sé að verið er að fara fram úr.“ Halli varðar við lög Samkvæmt lögum um opinber fjármál, sem samþykkt voru 2015, ber forstjóri Landspítala ábyrgð „á að starfsemin skili tilætluðum árangri og að rekstur og afkoma sé í samræmi við fjárveitingar og áætlanir sem samþykktar hafa verið.“ Jafnframt ber hann ábyrgð á að ekki sé farið fram úr fjárlaga- heimildum, að verkefnum stofn- unar sé sinnt sem skyldi og að þjónusta hennar teljist viðunandi, samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þannig er stjórnendum spít- alans óheimilt að láta hagræðingu bitna á lögbundinni þjónustu og er það líkleg skýring þess að boðaðar eru breytingar í skipuriti spítalans og uppstokkun í stjórnunarteymi hans, en ekki niðurskurður í þjón- ustu. Á sama tíma er stjórnendum Landspítala óheimilt að áætla hall- rekstur þrátt fyrir að á þessu stígi geti hallarekstur verið óumflýjan- legur. Geta forstöðumenn átt yfir höfði sér áminningu eða uppsögn hafi skilyrði laga ekki verið upp- fyllt. Hallarekstur þrátt fyrir aukið framlag » Árið 2016: 52,6 milljarðar » Árið 2017: 56,8 milljarðar » Árið 2018: 62,5 milljarðar » Árið 2019: 65,7 milljarðar » Aukning: 13,1 milljarðar Aukist um 25% FJÁRFRAMLÖG TIL LANDSPÍTALANS Morgunblaðið/Ómar Halli Mikill halli í rekstri Landspítala kemur til þrátt fyrir aukin framlög.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.