Morgunblaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Arvada flísjakki • 100% prjónað pólýester • Einstaklega þægilegir og flottir flísjakkar með hettu og vösum • Til í gulum og bláum lit • Stærðir: XS - 3XL Vnr: 1899 312 Verð: 8.900 kr. Bambus sokkar • 80% bambus/17% pólýamíð/3% teygju- efni, mjög þægilegir og mjúkir • Draga úr ólykt og þú svitnar mun minna • 5 pör í pakka • Stærðir: 39 - 42 og 43 - 46 Vnr: M451 044 Verð: 4.990 kr. (5 pör í pakka) HM U19 karla Leikið í Norður-Makedóníu: Leikið um 5.-8. sætið: Ísland – Frakkland............................... 24:30 Ísland – Spánn ...................................... 26:30  Ísland hafnaði í 8. sæti mótsins.  Forkeppni EM karla 2021 H-riðill: Ísland – Portúgal.................................. 96:68 Staðan: Portúgal 4 2 2 304:320 6 Ísland 3 2 1 258:230 5 Sviss 3 1 2 227:239 4  Ísland mætir Sviss á útivelli á miðviku- dag. Sigurliðið í riðlinum kemst í undan- keppni EM og leikur í riðli með Serbíu, Finnlandi og Georgíu. EM U16 karla B-deild í Svartfjallalandi: Írland – Ísland ...................................... 67:75  Ísland hafnaði í 15. sæti mótsins. EM U16 kvenna B-deild í Búlgaríu: A-riðill: Bosnía – Ísland ..................................... 60:44 Rúmenía – Slóvenía.............................. 37:67 Svartfjallaland – Serbía ....................... 53:70  Slóvenía 6, Serbía 6, Rúmenía 5, Bosnía 4, Svartfjallaland 3, Ísland 3. Ísland mætir Svartfjallalandi í dag.  Í HÖLLINNI Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfu- knattleik er á góðri leið með að vinna sinn riðil í forkeppninni fyrir EM 2021 eftir stórsigur á Portúgal 96:68 í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Liðið sem vinnur riðilinn fer í undankeppnina sem hefst í vetur. Takist Íslandi að vinna síðasta leik sinn gegn Sviss ytra vinnur Ísland riðilinn. Vinni Sviss hins vegar verða þjóðirnar þrjár jafnar að stigum. Eftir svo afgerandi sigur á laugar- daginn er Ísland í langbestri stöðu og má raunar tapa fyrir Sviss en vinnur samt riðilinn á flestum stig- um í plús, svo framarlega sem tapið sé ekki stórt. Með hraða og góða hittni að vopni var Portúgal engin fyrirstaða. Portúgal hafði þó unnið fyrri leik lið- anna naumlega og fylgdi því eftir með mjög öruggum sigri á Sviss í síðustu viku. Leikmenn Portúgals voru því væntanlega með ágætt sjálfstraust í aðdraganda leiksins en það dvínaði fljótt í Laugardalnum. Vörnin til fyrirmyndar Í fyrsta lagi spilaði íslenska liðið geysilega öfluga vörn, hvort sem það var þegar sett var pressa á bakverði Portúgals eða þegar menn vörðu körfuna. Nærvera Tryggva Snæs Hlinasonar hefur breytt gífurlega miklu fyrir varnarleik íslenska liðs- ins. Hæð hans gerir það að verkum að andstæðingarnir þurfa gjarnan að þvinga fram erfið skot nærri körf- unni og Tryggvi er laginn við að nota hæðina til að loka á þá. 46% 3-stiga hittni Í öðru lagi hittu íslensku lands- liðsmennirnir afar vel fyrir utan þriggja stiga línuna. Sú hefur ekki alltaf verið raunin í mikilvægum leikjum. Að þessu sinni var hittnin utan línunnar 46%, sem er afbragðs- gott. Jón Axel Guðmundsson setti til að mynda niður þrjá þrista í þriðja leikhluta þegar Íslendingar slökktu í vonum Portúgala um að ná ein- hverju út úr leiknum. Undirritaður hefur áður séð Jón taka slíka rispu, en það var í sjónvarpsútsendingu hjá ESPN þegar hann lét þriggja stiga körfum rigna fyrir Davidson á hið kunna lið Kentucky-háskólans í úrslitakeppni NCAA í fyrra. Hraður leikur gekk upp Í þriðja lagi áttu andstæðingarnir frá Portúgal erfitt með að ráða við hraðan leik íslenska liðsins. Vel gekk að láta boltann ganga á milli manna þar til einhver fékk gott skotfæri fyrir utan. Einnig gekk mjög vel upp þegar hávaxnari menn okkar náðu að teyma hávaxna menn Portúgals frá körfunni. Biðu þeir þá eftir því að Jón, Martin Hermannsson, Ægir Þór Steinarsson eða Elvar Már Friðriksson næðu að stinga varn- armennina af og sendu boltann þeg- ar þeir voru komnir undir körfuna eða nærri henni. Ægir og Elvar eru svívirðilega fljótir og í þetta skipti nýttist það mjög vel. En til þess þurfa sendingarnar einnig að vera góðar og þar gerðu Pavel Ermol- inskij og Hlynur Bæringsson oft vel. Leikgleðin skein af Pavel, sem var farinn að sýna alls kyns takta í send- ingum strax í fyrsta leikhluta og átti frábæran dag í vörn og sókn. Með hraða og góða hittni að vopni  Stórsigur gegn Portúgal kom Íslandi í góða stöðu í riðlinum í forkeppni EM Morgunblaðið/Árni Sæberg Frábær Pavel Ermolinskij sýndi takta með boltann gegn Portúgal. Laugardalshöll, forkeppni EM karla, laugardaginn 17. agúst 2019. Gangur leiksins: 0:3, 3:3, 9:7, 12:7, 23:13, 26:16, 40:23, 44:30, 52:32, 60:34, 68:38, 73:45, 78:51, 86:56, 96:68. Ísland: Jón Axel Guðmundsson 22 stig, Hlynur Bæringsson 21, Martin Hermannsson 19, Elvar Már Frið- riksson 10, Pavel Ermolinskij 8, Ægir Þór Steinarsson 7, Hörður Axel Vilhjálmsson 3, Tryggvi Snær Hlinason 3, Ólafur Ólafsson 3. Ísland – Portúgal 96:68 Fráköst: 33 í vörn og 11 í sókn. Portúgal: Claudio Fonseca 12 stig, Pedro Catarino 11, Joao Guarreiro 8, Jeremiah Wilson 6, Fabio Lima 6, Miguel Cardoso 5, Richardo Monteiro 5, Joao Grosso 5, Diogo Ventura 4, Miguel Queiroz 3, Pedro Pinto 3. Fráköst: 26 í vörn og 10 í sókn. Dómarar: Andris Aunkrogers (Lettlandi), Cici Gentian (Albaníu), Thomas Bissuel (Frakklandi). Áhorfendur: Um 1.700. Íslenska karlalandsliðið í handknattleik skipað leik- mönnum 19 ára og yngri hafnaði í áttunda sæti á heims- meistaramóti U19 ára liða sem lauk í Norður-Makedóníu í gær. Íslensku strákarnir töpuðu báðum leikjum sínum um helgina í keppninni um 5.-8. sætið. Ísland mætti Frakklandi á laugardag og tapaði þar 30:24. Dagur Gautason fór fyrir íslenska liðinu með átta mörk og Svavar Ingi Sigmundsson varði 11 skot í mark- inu, en það dugði ekki til. Í gær var því komið að því að spila um sjöunda sætið við Spánverja. Þrátt fyrir góða byrjun var það spænska liðið sem náði yfirhöndinni og vann að lokum 30:26 og höfnuðu strákarnir þar með í áttunda sæti mótsins. Dagur var þar aftur markahæstur með fimm mörk, ásamt Arnóri Snæ Óskarssyni. HSÍ greinir frá því að liðið hafi orðið fyrir miklum skakkaföllum síðustu vikuna á mótinu þar sem tveir leikmenn þurftu meðal annars að fara í rannsókn á sjúkrahúsi. Allir séu þó á batavegi og komi til Íslands í dag. Strákarnir í 8. sæti á HM Dagur Gautason Magni komst í fyrsta sinn í sumar úr fallsæti 1. deildar karla í knatt- spyrnu, Inkasso-deildarinnar, þeg- ar liðið lagði Aftureldingu 3:1 í lokaleik 17. umferðar á Grenivík um helgina. Magni var fyrstu 15 umferðirnar í botnsætinu en hefur nú farið upp um tvö sæti með tveim- ur sigrum í röð. Magni er nú með 16 stig í 10. sæt- inu, aðeins stigi á eftir Aftureld- ingu sem er sæti ofar. Haukar eru nú í fallsæti með 15 stig og Njarð- vík er fimm stigum frá öruggu sæti. Í fyrsta sinn úr fallsæti Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Magni Fyrirliðinn Sveinn Óli Birgisson með boltann um helgina. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Meistaravellir: KR – Víkingur R. ............ 18 Kópavogsvöllur: Breiðablik – Valur ... 19.15 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Eimskipsv.: Þróttur R. – Afturelding...... 18 Hertz-völlur: ÍR – FH............................... 18 Mustad-völlur: Grindavík – Fjölnir ......... 18 Ásvellir: Haukar – ÍA........................... 19.15 Í KVÖLD! Bandaríkin Orlando Pride – Utah Royals................. 0:2  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kom af bekknum á 67. mínútu hjá Utah. Portland Thorns – Washington Spirit 3:1  Dagný Brynjarsdóttir lék í 83 mínútur með Portland. Þýskaland A-deild kvenna: Essen – Leverkusen ................................ 3:1  Sandra María Jessen lék fyrri hálfleik- inn með Leverkusen. Wolfsburg – Sand .................................... 1:0  Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik- inn með Wolfsburg. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.