Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is AFMARKANIR & HINDRANIR Fjölbreyttar lausnir til afmörkunar á ferðamannastöðum, göngustígum og bílaplönum. DVERGARNIR R England Everton – Watford................................... 1:0  Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn með Everton. Arsenal – Burnley ................................... 2:1  Jóhann Berg Guðmundsson fór af velli á 72. mínútu hjá Burnley. Aston Villa – Bournemouth..................... 1:2 Brighton – West Ham.............................. 1:1 Norwich – Newcastle ............................... 3:1 Southampton – Liverpool ........................ 1:2 Manchester City – Tottenham................ 2:2 Sheffield United – Crystal Palace .......... 1:0 Chelsea – Leicester.................................. 1:1 Staðan: Liverpool 2 2 0 0 6:2 6 Arsenal 2 2 0 0 3:1 6 Manch.City 2 1 1 0 7:2 4 Brighton 2 1 1 0 4:1 4 Tottenham 2 1 1 0 5:3 4 Bournemouth 2 1 1 0 3:2 4 Sheffield Utd 2 1 1 0 2:1 4 Everton 2 1 1 0 1:0 4 Manch.Utd 1 1 0 0 4:0 3 Burnley 2 1 0 1 4:2 3 Norwich 2 1 0 1 4:5 3 Leicester 2 0 2 0 1:1 2 Wolves 1 0 1 0 0:0 1 Crystal Palace 2 0 1 1 0:1 1 Chelsea 2 0 1 1 1:5 1 West Ham 2 0 1 1 1:6 1 Aston Villa 2 0 0 2 2:5 0 Newcastle 2 0 0 2 1:4 0 Southampton 2 0 0 2 1:5 0 Watford 2 0 0 2 0:4 0 Frakkland Toulouse – Dijon...................................... 1:0  Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Di- jon. Belgía Gent – Oostende....................................... 2:0  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Oostende. Holland AZ Alkmaar – Groningen....................... 0:0  Albert Guðmundsson var ónotaður vara- maður hjá AZ Alkmaar. Rússland Tambov – Krasnodar .............................. 0:2  Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Krasnodar. Rubin Kazan – Arsenal Tula .................. 1:0  Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn með Rubin Kazan. Ufa – Rostov ............................................. 2:0  Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með Rostov. Björn Bergmann Sigurðarson var ekki með. Búlgaría Vitosha Bistritsa – Levski Sofia ............ 0:4  Hólmar Örn Eyjólfsson kom á bekknum á 83. mínútu hjá Levski Sofia í sínum fyrsta leik í tæpa tíu mánuði vegna meiðsla. Ungverjaland Újpest – Paksi .......................................... 1:1  Aron Bjarnason kom af bekknum á 77. mínútu hjá Újpest. KNATTSPYRNA Í LAUGARDAL Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Selfoss vann fyrsta titil í fótbolta í sögu félagsins á laugardaginn var. Liðið bar þá sigur úr býtum gegn KR í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á Laugardalsvelli, 2:1, eftir fram- lengdan leik. Leikurinn var afar jafn og með smá heppni hefði KR hæg- lega getað fagnað sigri í lokin. Dag- urinn var hins vegar Selfyssinga. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Selfossi á síðustu árum og hún er að skila sér núna. Sjö leikmenn sem komu við sögu hjá Selfossi í leiknum hafa aldrei spilað með öðru félagi hér á landi. Til að hjálpa til hefur félagið fengið til sín gæðaleikmenn. Kelsey Wys er einn besti markmaður deild- arinnar, Grace Rapp og Allison Murphy eru flottir miðjumenn og Hólmfríður Magnúsdóttir ótrúleg. Fyrsta markið vel tímasett KR komst yfir í fyrri hálfleik en Selfoss lagði ekki árar í bát og tókst að snúa leiknum sér í vil, þrátt fyrir að hafa oft spilað betur. Það er gríðarlegt styrkleikamerki. Hólm- fríður tók til sinna ráða og skoraði jöfnunarmarkið með stórkostlegum einleik. Listamenn hneigja sig eftir vel framkvæmd verk á stóra sviðinu og mark Hólmfríðar var listaverk. Hún hneigir sig kannski næst. Þóra Jónsdóttir ákvað svo að velja full- komið augnablik til að skora fyrsta mark sitt á ferlinum í framlenging- unni til að tryggja sigurinn. Þóra er fædd árið 1998 og spilaði fyrstu leiki sína í meistaraflokki á síðustu lektíð. Selfoss er verðskuldaður bikar- meistari í ár. Íþróttalífið í Selfossbæ er til algjörar fyrirmyndar og eru að- eins örfáir mánuðir síðan karlalið fé- lagsins varð Íslandsmeistari í hand- bolta. Það er vel haldið utan um félagið og fólk sem þykir vænt um bæði íþróttafélagið og bæjarfélagið í heild hefur komið að uppbyggingunni og þar eru allir að róa í sömu átt. Sigur Selfoss kom ekki endilega á óvart, þar sem liðið er búið að vera á mikilli siglingu á meðan KR hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar. Tapið var auðvitað leiðinlegt fyrir alla KR-inga en sennilega leiðinlegast fyrir Guð- mundu Brynju Óladóttur. Sóknar- maðurinn er nú búin að tapa fimm bikarúrslitaleikjum á sex árum með þremur mismunandi félögum. Hún var grátlega nálægt því að jafna fyrir KR í blálokin en inn vildi boltinn ekki. Dagurinn þegar Guðmunda verður bikarmeistari verður góður dagur. Fyrsti fótboltatitilinn í sögu Selfyssinga  Selfoss vann KR í bikarúrslitum  Mark Hólmfríðar Magnúsdóttur listaverk Morgunblaðið/Árni Sæberg Bikarmeistarar Fyrirliðinn Anna María Friðgeirsdóttir í þann mund að lyfta fyrsta bikar Selfoss á loft á laugardag. Hún var að spila sinn þriðja bikarúrslitaleik með Selfossi eftir að hafa horft á eftir titlinum árin 2014 og 2015. 0:1 Gloria Douglas 18. 1:1 Hólmfríður Magnúsdóttir 36. 2:1 Þóra Jónsdóttir 102. I Gul spjöldGrace Rapp (Selfossi). SELFOSS - KR 2:1 I Rauð spjöldEngin. Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson. Áhorfendur: 1.887. Það að Englandsmeistarinn Ra- heem Sterling sé búinn að skora fjögur mörk fyrir Manchester City í fyrstu tveimur umferðum ensku úr- valsdeildarinnar í knattspyrnu telst harla gott, en vekur þó minni at- hygli en það að Finninn Teemu Pukki hefur gert slíkt hið sama fyr- ir nýliða Norwich. Pukki kom á frjálsri sölu frá Bröndby í Danmörku fyrir rúmu ári. Á fyrsta tímabili sínu í Eng- landi skoraði Pukki 29 mörk og var valinn leikmaður ársins í B- deildinni þegar Norwich tryggði sér sæti á meðal þeirra bestu á ný. Pukki hefur nú haldið uppteknum hætti í úrvalsdeildinni og skoraði þrennu þegar nýliðarnir fóru illa með Newcastle um helgina, 3:1, í fyrsta heimaleik frá endurkomu Norwich í úrvalsdeild. Það er þó ekki bara hjá New- castle sem hlutirnir eru ekki að ganga, því Frank Lampard er ekki að byrja sem skyldi sem stjóri Chelsea. 1:1 jafntefli við Leicester í gær þýðir að Lampard er fyrsti stjóri Chelsea í 12 ár sem nær ekki að vinna fyrsta heimaleik sinn. Á meðan eru það Liverpool og Arsen- al sem eru einu liðin með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina, en Manchester United getur afrekað slíkt hið sama með sigri á Wolves í lokaleik umferðarinnar í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton, sem vann 1:0- sigur á Watford og er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina. Eftir að hafa skorað fyrir Burn- ley í fyrstu umferð lét Jóhann Berg Guðmundsson minna fyrir sér fara nú og var tekinn af velli í síðari hálfleik í 2:1-tapi fyrir Arsenal. Pukki slær í gegn á meðal þeirra bestu Ljósmynd/Norwich Þrenna Teemu Pukki fékk að eiga boltann eftir leikinn við Newcastle.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.