Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019 Fögnuður Fullyrða má að Reykjavík hafi iðað af lífi sl. laugardag þegar Menningarnótt var haldin þar. Um alla borg mátti finna viðburði og skemmtiatriði en hápunkturinn var flugeldasýning. Eggert Sr. Önundur S. Björnsson, sóknar- prestur á Breiðaból- stað í Fljótshlíð, nefnir í viðtali í Morgun- blaðinu 25. júlí sl. að þjóðminjavörður, Matthías Þórðarson, hafi látið fjarlægja „í heimildarleysi“ lág- myndir úr minnisvarða um Tómas Sæmunds- son Fjölnismann í kirkjugarðinum á Breiðabólstað og látið setja eir- afsteypur í staðinn. Matthías kom að Breiðabólstað ár- ið 1911 á skráningarferð, en hann ferðaðist um allt landið og skráði gripi í kirkjum, einnig fornminjar og margt annað það sem honum þótti athyglisvert. Hann skráir þar minn- isvarða Tómasar og lýsir lágmynd- unum á honum. Ein var vangamynd Tómasar sjálfs, önnur mynd af Tóm- asi sitjandi þar sem hann nemur af menntagyðjunni, ein var af hjarð- manni, táknmynd prestsins, og hin fjórða sýndi konu sem leggur krans á krukku, táknmynd af geymslu hjarta hins látna. Matthías skrifar að marmara- myndirnar séu farnar að skemmast og ætti að taka þær úr og varðveita á Þjóðminjasafninu og setja varanlegri afsteypur í staðinn. Einnig kveður hann stöpulinn undir steininum vera orðinn skemmdan og þurfi að setja nýjan. Síðar bætti hann við neðan- máls: „Kom þessu í verk 1929. Marmaramyndirnar eru nr. 22-25 í Höggmyndasafninu. Menntamálaráð lagði fram fje úr Menningarsjóði.“ Hér sá Matthías það sem reyndar víða blasir við; hversu illa marm- arinn þolir veðrun. Má vel sjá á gömlum legsteinum hvernig marm- arinn tærist og veðrast. Nefna má, að fyrir áratugum var marmara- hellan á leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar konu hans orðin mjög tærð. Var hún því endurnýjuð og blá- grýtishella, nákvæm eftirgerð hinn- ar, sett í staðinn. Marmarinn er ekki það óforgengilega efni sem menn lengi töldu. Matthías bjargaði því marmara- myndunum úr minnisvarða Tómasar frá eyðingu og lét setja varanlegri myndir í staðinn, ella væru frum- myndirnar líklegast að mestu horfn- ar nú. Matthíasi voru Fjölnismenn afar hugstæðir. Hann unni minningu þeirra og gaf út öll rit Jónasar Hall- grímssonar, skáldverk, bréf og rit- gerðir, og skrifaði ævisögu hans, alls fimm binda ritverk. Einnig hugðist hann rita ævisögu Tómasar Sæ- mundssonar, en varð ekki af. Eirmyndirnar voru steyptar í Köbenhavns Metalstöberi í Kaup- mannahöfn og kostuðu afsteypurnar 457 krónur. Jafnframt var gerður ytra nýr undirstöðusteinn undir minnisvarð- ann. Var hann gerður að beiðni Jóns Helgasonar biskups, er var dóttur- sonur Tómasar Sæmundssonar, og greiddi hann steininn, sem kostaði 148 krónur. Má því ljóst vera að end- urnýjun myndanna hafi verið gerð með vitund og fullu samþykki bisk- ups, enda fékk hann sjálfur þá gert aukaeintak af eirmynd Tómasar og hafði síðan jafnan á vegg á skrifstofu sinni. Biskupinn var yfirmaður þjóð- kirkjunnar og einn nánasti afkom- andi Tómasar. Engum standa slíkir minnisvarðar nær en ættingjum. Op- inber stofnun, menntamálaráð, hafði einnig hér hönd í bagga. Er illt að núa Matthíasi því um nasir nú að hann hafi tekið mynd- irnar úr varðanum í óleyfi. Matthías Þórðarson reyndi að sjálfsögðu að fá góða gripi til Þjóð- minjasafnsins, allir safnmenn vilja auka söfn sín, ella væru engin söfn til. En ekki síður reyna þeir að bjarga svokölluðum menningar- verðmætum frá glötun. Matthías mun aldrei hafa tekið kirkjugripi, né aðra hluti til safnsins, í óleyfi. Hann greiddi ævinlega umsamið verð fyrir gripi eða lét kirkjur fá aðra sams konar gripi í stað þeirra er hann fékk. Kvittanir fyrir slíkum kaupum eru allar varðveittar í Þjóðminja- safni. Stundum óskum við safnmenn þess reyndar að Matthías hefði feng- ið suma gripi sem hann reyndi að fá en fékk ekki, og síðan hafa horfið úr kirkjunum án þess að nokkur viti af- drif þeirra. Nefnt er í grein í Morgunblaðinu, 23. júlí, að British Museum hafi reynt að eignast kaleikinn í Breiða- bólstaðarkirkju, fáséðan dýrgrip. Líklegast hefur hann orðið kunnur ytra eftir að frásögn með mynd af honum birtist í bók enska málarans W.G. Collingwoods um Íslandsferð hans 1899. – Erlend söfn og safnarar ágirntust þá mjög íslenska forngripi og ekki síst kirkjugripi. Margt var þá látið falt, uns fornleifalögin tóku gildi 1908 er Matthías Þórðarson samdi. En ýmsir gripir fóru þrátt fyrir forn- leifalögin. Enn voru menn á dögum Matthíasar að selja Guðbrands- og Þorláksbiblíur úr kirkjum, og jafnvel Súmmaríur, og lentu margar til út- landa. Litlu munaði að „kaleikurinn góði“ úr Skálholtsdómkirkju, frá 13. öld og einn mesti dýrgripur hér- lendis, lenti til útlanda. Nefna mætti hér að lokum, að ófáa kirkjugripi, svo sem kaleika, altaris- stjaka og jafnvel kirkjuklukkur, hef- ur Þjóðminjasafnið látið endurbæta á síðari áratugum fyrir kirkjurnar. Sjaldnast hafa þær verið látnar greiða kostnaðinn, enda flestar kirkjur lítt haldnar að lausafé, og kostaði safnið þá viðgerðina sem sjaldnast hefði verið gerð ella. Þessa hefur lítt verið getið en má nefna að gefnu tilefni. Þjóðminjasafnið metur mikils samstarf við kirkjur landsins og minjasöfn. Árangur þess samstarfs er meðal annars útgáfa ritverksins Kirkjur Íslands, og sýningin sem nú er í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Þangað hafa verið fengnir að láni um stundarsakir gripir úr 42 kirkjum, og þar á meðal er kaleikurinn umgetni í Breiðabólstaðarkirkju. Eftir Margréti Hallgrímsdóttur og Þór Magnússon »Matthías mun aldrei hafa tekið kirkju- gripi, né aðra hluti til safnsins, í óleyfi. Hann greiddi ævinlega um- samið verð fyrir gripi eða lét kirkjur fá aðra sams konar gripi í stað þeirra er hann fékk. Margrét Hallgrímsdóttir Margrét er þjóðminjavörður. Þór er fv. þjóðminjavörður. Minnisvarði Tómasar Sæmundssonar Þór Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.