Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019 Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700. Boðinn Bingó kl. 13. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Þátttökulistar liggja frammi í holi. Hádegismatur kl. 11.30. Handavinnuhornið kl. 13-15. Félagsvist kl. 13. Siðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Núvitund í handverksstofu kl. 10.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegis- matur kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar, kaffi kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Opin handverksstofa alla virka daga. Verið velkomin á Vitatorg. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Kvennaleikfimi Ásgarði kl.11. Innritun á saumanámskeið í Jónshúsi kl. 10-12. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13.15 kanasta. Gullsmári Handavinnuhópur kl. 9-11.30. Félagsvist kl. 20. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur er kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45, gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum og Grafarvogskirkju. Hádegisverður kl. 11.30-12.30 og kaffi- veitingar kl. 14.30-15.30. Gleðjumst saman og höfum gaman, allir vel- komnir í Borgir. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 411 2760. Seltjarnarnes Krossgátur og kaffispjall í króknum kl. 10.30. Vatnsleik- fimi í sundlauginni kl. 18.30. Skráning stendur yfir í ferðina í Grasa- garðinn og leikhúsið á Brúðkaup Fígarós. Einnig er skráning í gangi á námskeiðin í leir, gleri og bókbandi. Munið vöfflukaffið og kynningar- fundinn í Félagsheimilinu nk. fimmtudag 29. ágúst kl. 15. Nú eiga allir að vera búnir að fá dagskrárblaðið fyrir september-desember. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Eco Fi M-XXL. Svart og hvítt Eco Si M-XXL. Svart og hvítt Tahoo Maxi S-4XL. Svart hvítt og húðlitt Laugavegi 178, sími 551-3366. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Lokað á laugardögum í sumar. Vantar þig pípara? FINNA.is Smá- og raðauglýsingar ✝ Herdís Bjarn-ey Steindórs- dóttir fæddist 12. desember 1959 í Kópavogi. Hún lést 13. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna María Bjarnadóttir frá Ísafirði og Steindór Marteins- son frá Úlfsdölum í Skagafirði. Þau eru bæði látin. Herdís var yngst þriggja systra. Elsta systirin Guðrún lést 1988 og aðeins er ein þeirra, Guðríður, eftirlifandi. Herdís ólst upp í foreldra- húsum í Reykjavík og um tíma á Sauðárkróki og svo aftur í Reykjavík. Hún hóf skólagöngu í Árbæjarskóla, síðar á Sauð- árkróki og lauk landsprófi frá Skógaskóla. Hún lauk svo stúdentsprófi frá MH haustið 1978. Öll menntaskólaárin vann hún með skólanum og vegna mikilla veikinda foreldranna var hún á Herdís vann þá hjá Pólnum og síðar Pólstækni sem kerfis- fræðingur. Lilja er hjúkrunar- fræðingur og býr í Kaup- mannahöfn ásamt sambýlis- manni sínum Teddy Sidelmann Rasmussen. Árið 1987 lá leiðin aftur suð- ur. Herdís hóf störf sem kerf- isfræðingur hjá Eimskipafélagi Íslands þar sem hún starfaði á annan áratug. Síðar vann hún hjá ýmsum hugbúnaðarhúsum. 1994 fæddist þeim yngsti son- urinn, örverpið hennar eins og hún sagði, Guðbjartur Mar. Guðbjartur hefur lokið B.Sc. í stjórnmálafræði og er á leið til Japans í M.Sc. í alþjóðastjórn- málafræði. Fljótlega eftir aldamótin ákvað Herdís að bæta við sig námi og skipta um starfsvett- vang. Hún lauk B.Sc. prófi ut- an skóla í viðskiptafræði hjá HÍ og lét ekki þar við sitja og lauk M.Sc.-prófi, einnig utan skóla, í mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Akureyri. Snæ- björn og Herdís ráku saman fyrirtækið Blikó ehf. og sá Herdís um bókhald fyrir- tækisins og fjölskyldunnar til dánardags. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 26. ágúst 2019, klukkan 15. tímabili eina fyrir- vinna heimilisins. Herdís kynntist eftirlifandi eigin- manni sínum, Snæ- birni Þór Ingv- arssyni frá Kollsvík, árið sem hún útskrifaðist sem stúdent. Þau fluttu til Danmerk- ur, nánar tiltekið til Árósa á Jót- landi, 1979, þar sem hún lauk námi í kerfisfræði 1982. Þau fluttu til Íslands aftur 1982 og vann Herdís í tvö ár sem kerf- isfræðingur hjá Landsbanka Ís- lands. Þar fæddist þeim elsti sonurinn, Marteinn Þór árið 1981. Marteinn er doktor í sameindalíffræði og hann er kvæntur Wally Bluhm og eru þau búsett í Heidelberg í Þýskalandi. Saman eiga þau börnin Snæbjörn Kára og Emmu Oliviu. Árið 1984 fluttu þau hjón til Ísafjarðar og þar fæddist þeim dóttirin Lilja Dís árið 1985. Nú er komið að kveðjustund hjá okkur ástin mín. Eftir 40 ára samveru og þar af 35 ára hjóna- band er hún ólýsanlega sár og erfið. Við vorum svo mikið sam- an og aðskilnaðurinn var aldrei nema tvær til þrjár vikur í einu. Það er erfitt að festa hugann við að skrifa kveðjuorð þótt af nógu sé að taka þar sem ég og börnin eigum fjársjóð minninga um þig. En hugurinn er núna tættur og óskipulagður. Já, og talandi um skipulag þá var það nokkuð sem þú sást um þannig að yfirleitt þurfti ekki að leita að nokkrum hlut. Núna þegar við vorum að skoða myndir frá fyrri árum gengum við að öllu skipu- lögðu með dagsetningum og út- skýringum. Það eina sem var að var það að þig vantaði svo oft á myndirnar þar sem þú hafðir séð um myndatökuna. Við fjölskyldan vorum alltaf í fyrirrúmi hjá þér. Jafnvel á tíð- um ferðalögum þínum út um heiminn vegna vinnunnar hjá Eimskip varst þú til staðar. Lilja minnist enn þegar hún var að bíða eftir „talsambandi við út- lönd“ og hlustaði á sjóinn á með- an hún beið. Já, þau njóta þess svo sannarlega ennþá börnin okkar enn í dag hve góður grunnur var lagður í heimanám- inu og heimakennslunni og oft kom fyrir að fleiri börn voru í tíma hjá þér. Og þó að börnin væru farin að dreifast um heim- inn nutu þau enn handleiðslu þinnar í stóru og smáu. Nú á síðustu árunum leið þér best á Spáni og talaðir um að þú ætlaðir helst ekki að vera fleiri vetur á Íslandi – við munum sjá um það að finna dufti þínu fal- legan stað þar. Þú áttir þína sterku og inni- legu trú á Jesú Krist og á annað og betra líf eftir dauðann. Hvíldu í friði, vina mín. Þinn að eilífu, Snæbjörn. Elsku mamma. Ég trúi því ekki ennþá að þú sért ekki hjá okkur lengur. Hvern á ég að hringja í til að hjálpa mér með lambalærið, eða þegar ég þekki ekki blóm eða plöntu – þá hringdi ég hiklaust í þig. Þú varst með svörin við öllu fannst mér, og ef þú vissir það ekki þá fannstu út úr því. Engin getur huggað eins og þú. Sama hvað amaði að þá gastu fengið mig til að brosa og horfa á björtu hlið- arnar – með hæfilegum skammti af kæruleysi – eins og þér einni var lagið. Ég hef oft hugsað af hverju aldrei var talað um kvenréttindi heima, þar sem þú jú vannst lengi í algjörri karlaveröld og þurftir svo sannarlega að hrópa hærra en karlarnir til að fá sömu athygli. En ég skildi það síðan, kvenréttindi og jafnrétti var svo innilega sjálfsagður hlutur að það var ekki einu sinni þess virði að tala um. Það var ekkert sem bræður mínir gátu sem ég gat ekki. Samt sem áður kenndirðu mér líka hversu innilega stolt ég átti að vera af því að vera kona, við getum allt ef viljinn er fyrir hendi. Elsku mamma, í svo mörg ár skildi ég ekki sjúkdóminn þinn. Hann gerði mig svo reiða. Ég lofa þér, elsku mamma, að ég mun passa vel upp á kroppinn minn – eins og þú sagðir svo oft. Ónýta bakið þitt, með ólýsanleg- um verkjum endalaust, gerði þér lífið svo leitt. En sama hvað am- aði að þá gekkstu hnarreist og stolt – enginn sá verkina þína. Nú ertu verkjalaus, elsku mamma. Ég sé þig fyrir mér í faðmi Gunnu, Steindór‘afa og Hönn‘ömmu. Ég hitti þig hinum megin, elsku mamma. Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, eintómt sólskin, bjart og jafnt. Þó að dimmi að með daga kalda og skamma, dagar þínir verða ljósir allir samt. Litlu blómin, sem þig langar til að kaupa, skal ég lita hér á teikniblaðið mitt. Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, svo alltaf skíni sól í húsið þitt. (Hinrik Bjarnason) Liljan þín, Lilja Dís. Herdís Bjarney Steindórsdóttir ✝ SigmundurFranz Kristjánsson fædd- ist á Róðhóli, Sléttu- hlíð, Skagafirði 1941, yngstur fimm systkina. Hann lést á Landspítala, Hringbraut, 11. ágúst 2019. Sigmundur kom til Reykjavíkur 16 ára, vann í bóka- búðum í nokkur ár og þar kvikn- aði áhugi hans á bókum og bóka- söfnun sem entist út ævina. Hann vann ýmis tilfallandi störf til lands og sjávar árin þar á eftir eða allt þar til hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki og starfaði eftir Gunnarsdóttur árið 1962 og eignuðust þau eitt barn, Gunnar Kristján, sem kvæntur er Guð- nýju Sverrisdóttur, en þau eign- uðust tvo syni, Sverri Franz, sem lést 2008, og Ara Þór, sem á tvö börn. Sigmundur og Helga slitu samvistum. Seinna giftist Sig- mundur Hrafnhildi Vilhelms- dóttur og eignaðist með henni tvö börn: Vilhelm Sigfús, sem kvæntur er Herdísi Gísladóttur, og þau eiga þrjú börn, Hrafn- hildi, Andra Hauk og Martein Þór, og Hörpu Iðunni, sem gift er Björgvini Elvari Björgvinssyni og eiga þau tvo syni, Björgvin Franz og Ágúst Atla. Sigmundur og Hrafnhildur slitu samvistum 1991. Bjó Sigmundur eftir það með Jónínu Helgu Jónsdóttur þar til hún lést árið 2015. Sig- mundur lætur eftir sig sambýlis- konu, Ernu Sveinbjörnsdóttur. Útförin fer fram frá Vídalíns- kirkju í dag, 26. ágúst 2019, klukkan 15. það við eigin rekst- ur við inn- og út- flutning. Á sínum yngri ár- um hafði hann ákaf- an áhuga á fuglum og byrjaði snemma að merkja og skrá fugla vítt og breitt um landið. Í gegn- um tíðina áskotn- aðist honum yfir- gripsmikið safn af uppstoppuðum fuglum ásamt eggjum. Fuglasafn hans er nú að finna í Sjálandsskóla en hann gaf skólanum safnið. Einnig stundaði hann stangveiði af miklum áhuga. Hann kvæntist Helgu Kæri bróðir. Elsku Franz. Mig langar að minnast þín nokkrum orðum og þá byrjar maður á komu þinni í þennan heim. Auðvitað fædd- umst við í sama rúmi, rúminu hennar mömmu, í gamla bænum á Róðhóli. Stefáni bróður var fal- ið það verkefni að dvelja fyrir mér frammi í fjósi en ekki vissi ég þá hvers vegna ég mætti ekki fara inn. Var ég þó búinn að kemba og pússa kýrnar, sem voru víst ekki nema tvær, drepa allar flugurnar í fjósglugganum og svæfa kálfinn. En á endanum var okkur hleypt inn. Man ég er ég leit þig í holunni minni fyrir of- an mömmu hvað ég var undrandi þegar fólkið var að dást að þessu hrukkótta kríli. Enda varst þú væntanlega fyrsta nýfædda barnið sem ég sá. Svo minnist ég þegar þú varst fimm eða sex ára, fékkst botnlangabólguna og botnlanginn sprunginn. Þið mamma eydduð megninu af sumrinu á sjúkrahúsi Sauðár- króks, en á einhverjum tíma- punkti fékkst þú að koma heim en af einhverjum ástæðum þurfti að takmarka vatnsdrykkju þína og var þér sagt að lækurinn hefði þornarð. Það væru búnir að vera svo miklir þurrkar. Þú hafðir nú litla trú á því, það væri þá að minnsta kosti vatn í dýinu fyrir neðan Blákoll. Já, margs er að minnast þó að ég færi snemma að heiman og borgin togaði líka snemma í atorkusaman strák úr Sléttuhlíð- inni, hann Sigmund Franz. Svo minnist ég þess er þú áttir dag í Héðinsfjarðará. Var ég þá flutt til Akureyrar og þú hringd- ir, gafst í skyn að gaman væri að koma við um kvöldið á Róðhóli því suður þyrftir þú að komast um kvöldið. Ég mætti á Róðhól og þið komuð um fjögurleytið með öngulinn í rassinum, urðuð ekki varir. Lögðuð ykkur í tvo tíma, steiktur framhryggur á borðum, þú stynur af vellíðan og segir það leynir sér ekki að það er Róðhólsbragð af þessu. Svo ætla ég að þakka ykkur Ernu fyrir yndisstund á afmæl- inu mínu í sumar þar sem þú raunar viðurkenndir að kjötsúp- an væri góð en saknaðir að það væri ekki hægt að fara í hnútu- kast (engin bein). Svo mun ég sakna þess að það hringir enginn bróðir og heilsar ekkert endilega en segir: „er ég að tefja þig, ég vil þér ekkert“. Ég man raunar aldrei eftir því að ég hafi haft það mikið að gera að ég mætti ekki vera að því að tala við þig. Svo hringi ég á föstudag, þú segist vera slappur. Talast okkur svo til að þú ættir að leita til læknis. Ég hringi svo á laugar- dag og við spjöllum saman, á sunnudag varstu allur. Ég sakna þín, bróðir, og vil kveðja þig með fallega ljóðinu sem Kiddi smiður mælti fram eitt júníkvöld er hann leit út um gluggann hjá sér á Skálá: Sólguðinn ungi hann lausbeislað lét ljósflæðið skella á bænum. Húsið á Róðhóli fet fyrir fet flaut eftir litbrigðar sænum. Það var eins og sæi í brennandi bál, það braust út úr sérhverjum glugga. Er rénaði kætin í sólguðsins sál þá setti hann bæinn í skugga. Og þegar var ljósnættið gengið í garð glamparnir dvínuðu á sænum. Regnboga stubbur til vegsauka varð sem lýsandi tákn yfir bænum. Far vel, vinur Jóhanna systir. Sigmundur Franz Kristjánsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.