Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fá hús á Íslandi hafa gengið jafn
rækilega í endurnýjun lífdaga og
Grandagarður 16. Þar sem áður var
vöruskemma er nú iðandi líf í öfl-
ugum sjávarklasa og vinsælli mat-
höll. Í þessu rúmlega 50 ára gamla
húsi vinnur nú mikill fjöldi manns að
margvíslegum verkefnum.
Grandagarður 16 var byggður af
Reykjavíkurhöfn árið 1967, sem
vöruskemma. Húsið fékk nafnið
Bakkaskemma og er nú í eigu Faxa-
flóahafna sf. Á þessum tíma fóru
vöruflutningar allir fram í gömlu
höfninni en fram undan voru breytt-
ir tímar. Fyrsti áfangi Sundahafnar
var tekinn í notkun 1968 og smám
saman fluttust allir vöruflutningar
þangað.
Netagerð á efri hæðinni
Við þetta breyttist hlutverk
Bakkaskemmu. Á meginhluta efri
hæðar hússins, eða á alls um 2.200
fermetrum, var um árabil netagerð
Hampiðjunnar, sem nú er með að-
stöðu sína í Sundahöfn. Efri hæðin
var síðar lánuð Hugmyndahúsi há-
skólanna undir starfsemi sem kölluð
var Útgerðin, en þar var unnið að
ýmiss konar listtengdum verk-
efnum. Á jarðhæðinni var Fisk-
markaður Íslands hf. með starfsemi
sína og er enn. Þá hefur rafverk-
takafyrirtækið Raftíðni ehf. aðsetur
í nyrðri hluta jarðhæðar hússins.
Íslenski sjávarklasinn var stofn-
aður árið 2011 og nýtir meginhluta
efri hæðar Grandagarðs 16. Hann
rekur Hús sjávarklasans, sem er
samfélag yfir 50 fyrirtækja og frum-
kvöðla í hafsækinni starfsemi. Þar
eru fyrirtæki í fiskeldi, fisksölu,
sjávarútvegstækni, hugbúnaði,
hönnun, líftækni, snyrtivörum og
ýmsu öðru. Hús sjávarklasans er
samfélag þessara fyrirtækja og vett-
vangur fyrir þau að skapa saman ný
verðmæti, segir í kynningu. Þarna
starfa um 100 manns.
Tímamót urðu þegar Grandi mat-
höll var opnuð með átta bása og 40
starfsmenn. Aðsóknin hefur verið
gríðargóð og fyrsta hálfa árið komu
t.d. 170 þúsund gestir. Mathöllin er í
suðurhluta Grandagarðs 16 og veit-
ingastaðurinn Bergsson RE hefur
verið starfandi á efri hæðinni.
Að vonum hefur þurft að gera
miklar og kostnaðarsamar breyt-
ingar á Bakkaskemmu svo mögulegt
væri að hýsa nýja og breytta starf-
semi. Áheyrnarfulltrúi Sósíalista-
flokks Íslands lagði fram fyrirspurn
um kostnað við þessar endurbætur
og var svar Gísla Gíslasonar, hafnar-
stjóra Faxaflóahafna, birt í borgar-
ráði. Heildarkostnaður við endur-
nýjunina reyndist krónur
509.190.528 án virðisaukaskatts.
Mest var framkvæmt árið 2013, fyrir
alls 154 milljónir.
Endurbætur og breytingar á
Bakkaskemmunni fóru fram árin
2011 til 2018. Á þeim tíma var eft-
irspurn eftir leiguhúsnæði í Örfiris-
ey lítil og ekki fyrirsjáanlegt að unnt
væri að leigja laus rými í húsinu út í
einni heild, segir Gísli í svari sínu.
Ekki var gerð heildaráætlun um
endurbætur en ákveðið að bjóða út
1. áfanga innréttinga og gera ráð
fyrir aðstöðu smærri fyrirtækja. Í
framhaldi var gerð áætlun fyrir
næsta verkáfanga. Fyrir hvert útboð
var gerð kostnaðaráætlun fyrir þann
verkhluta á verðlagi hvers árs og
verkefnið tilgreint í fjárhagsáætlun
hvers árs. „Framkvæmdir voru unn-
ar í alls fimm verksamningum í kjöl-
far opinna útboða og var samið við
lægstbjóðanda í öllum tilvikum,“
segir Gísli.
Líf um allan Grandann
En það er ekki bara í Bakka-
skemmu sem færst hefur mikið líf.
Eiginlega má segja það um allan
Grandann. Verbúðirnar norðan við
Grandagarð voru reistar á árunum
1945-1955 og eru friðaðar. Þar má
nú finna nokkur veitingahús, ísbúð,
kökubúð, kjötbúð, gleraugnabúð og
fatahönnuði.
Veitingahús er einnig að finna í
gömlum frystihúsbyggingum sunn-
an götunnar svo og í Marshall-
húsinu, þar sem áður var fiskimjöls-
verksmiðja. Að ógleymdum hinum
klassíska Kaffivagni, fyrsta veit-
ingahúsinu á svæðinu. Í húsi þar fyr-
ir norðan, sem er kennt við Slysa-
varnafélag Íslands, er verið að
innrétta enn eitt veitingahúsið. Þá er
ótalinn fjöldi safna á svæðinu.
Morgunblaðið/sisi
Bakkaskemma Húsið var byggt árið 1967 og var vöruskemma á fyrstu árunum. Á allra síðustu árum hefur húsið fengið nýtt hlutverk. Endurbætur hafa verið gerðar fyrir um hálfan milljarð króna.
Öflugt starf í Bakkaskemmu
Hálfrar aldar vöruskemma á Granda orðin miðstöð nýsköpunar og matarlistar Aðrar byggingar
á Granda hafa fengið nýtt hlutverk Útgerð og fiskvinnsla hafa vikið fyrir verslun og þjónustu
Morgunblaðið/Hari
Sjávarklasinn Áhugasamir gestir kynna sér vöruframboð á degi þorsksins.
Morgunblaðið/Ásdís
Mathöllin Sló strax í gegn og fyrstu sex mánuðina voru gestirnir 170 þúsund.
Veiga Grétarsdóttir kajakræðari lauk í gær hringferð
sinni um landið. Segir hún fallegt land og vinskap á leið-
inni standa einna mest upp úr, en hún reri inn Skut-
ulsfjörð með hópi kajakræðara og lauk þannig ferð sinni.
Veiga ræddi við mbl.is um ferðina.
„Þegar ég reri inn Skutulsfjörðinn tók ég mig út úr
hópnum því ég þurfti að vera ein í smá stund. Ég horfði
til baka og það kom söknuður. Mig langaði að halda
áfram. Þetta er svo einfalt líf: róa, tjalda, borða og sofa,“
segir hún. Til samanburðar bendir hún á að þeir sem hafa
klifið fjallið Everest tali um tómleikatilfinninguna sem
hellist yfir fólk að því loknu og kallast „Everest-þynnk-
an“. Hún tengir vel við þá upplifun núna.
Þá segist hún á ferð sinni hafa hitt mann frá Belgíu,
þann sem leitað hefur verið að í Þingvallavatni sl. vikur.
Hann var vanur að róa á heitum vötnum og í veðurblíðu.
Hér er allt annað lögmál í gangi,“ segir hún. Maðurinn
var í göngufötum, ekki í björgunarvesti, ekki með þurr-
galla eða fatnað til að stunda sjósport. „Mér leist ekkert á
þetta,“ segir hún. thorunn@mbl.is
Veiga lokar hringnum
Hitti á ferð sinni karlmann frá Belgíu sem leitað hefur ver-
ið að og leist illa á búnað hans Var ekki með björgunarvesti
Nagli Veiga Grétarsdóttir hefur nú farið hringinn.