Vinnumarkaður - 01.06.1995, Page 22

Vinnumarkaður - 01.06.1995, Page 22
20 Greinargerð um aðferðir og hugtök gegn þessu með því að ráða spyrla sem hafa reynsiu frá fyrri könnunum, þjálfa þá og fara vandlega yfir spurningalistann áður en könnun hefst. Frá og með nóvember 1992, þegar spurt var með aðstoð tölvu, jókst öryggi við framkvæmd viðtala til mikilla muna. Urvinnsluskekkjur. Skráningarskekkjur geta orðið þegar handskrifaðar upplýsingar eru skráðar í tölvur. Þessu stigi í gagnaúrvinnslunni var sleppt frá og með nóvember 1992 þegar áðumefnt tölvuforrit var tekið í notkun. I þeirri könnun og könnuninni í apríl 1993 var eigi að síður haldið áfram að skrá upplýsingar um störf og atvinnugrein á spurningablöð. Skekkjur geta slæðst inn vegna flokkunar einstakra „opinna“ spurninga, þar sem svörin eru skráð eins og þau koma en ekki flokkuð strax eftir svarmöguleikum. Hér ber einkum að nefna flokkun á starfsstéttum, atvinnugreinum og menntun. Slíkar skekkjur geta stafað af ófullnægjandi upp- lýsingum í frumgögnum, óljósum leiðbeiningum í flokkunar- kerfum og mistökum flokkunarfólks. Reynt hefur verið eftir megni að halda úrvinnsluskekkjum í lágmarki með nákvæmri endurskoðun gagna og kerfis- bundinni villuleit með aðstoð tölvuforrita. Þá má geta þess að Hagstofan hefur gefið út tvö alþjóðleg flokkunarkerfi aðlöguð að íslenskum aðstæðum, þ.e. Islenska atvinnu- greinaflokkun, ISAT 95 og Islenska starfaflokkun, ISTARF 95. Þessi útgáfa hefur auðveldað mjög alla flokkun á atvinnugreinum og starfsstéttum. Sniðskekkjur. Ofullnægjandi skipulagning og hönnun könnunar getur leitt til niðurstaðna sem eru ekki í samræmi við raunveruleikann. Orðalag spuminga getur valdið mis- skilningi, mismunandi röð spuminga getur leitt til mis- munandi svara og reynsla svarenda af fyrri könnunum getur haft áhrif á svör þeirra. Sé könnun ekki framkvæmd á sama hátt í hvert skipti er hætta á að samanburður milli ára verði erfiðari en ella. Reynt hefur verið eftir megni að vanda til spurningalistans og nota sömu starfsaðferðir í öllum könnunum. Þess ber þó að geta að kannanirnar fyrstu þrjú árin vora framraun á sviði vinnumarkaðsrannsókna hér á landi. Þótt spumingalistinn hafi verið óbreyttur að stofni til allan tímann hafa átt sér stað ýmsar breytingar á orðalagi og röðun spuminga á tímabilinu 1991-1993. Bætt hefur verið inn fjölmörgum spurningum frá fyrstu könnuninni. Vinnumarkaðskannanir Hagstofunnar eru aðeins gerðar tvisvar á ári. Það getur leitt til ónákvæmni við mat á stærðum sem eru bundnar árstíðasveiflum. Mat á meðalatvinnuleysi á ári er dæmi um slíka stærð þar sem atvinnuleysi einnar viku í apríl og einnar viku í nóvember er notað til að meta meðalfjölda atvinnulausra allt árið. Ef sveiflur í skráðu atvinnuleysi undanfarinna tuttugu ára era skoðaðar virðist þó sem meðaltal mánaðanna apríl og nóvember gefi all góða mynd af meðalatvinnuleysi hvers árs (sjá mynd 2.1). A þessu tuttugu ára tímabili var munurinn á meðaltali þessara mánaða og meðaltali alls ársins mest 316 einstaklingar. Yfirleitt var meðalatvinnuleysi í apríl og nóvember nokkra lægra en ársmeðaltalið, einkum fram til ársins 1988. Eftir 1988 hefur meðalfrávik þessara mánaða frá ársmeðaltalinu verið innan við 1%. Þótt alltaf sé hætta á umtalsverðum frávikum er ekki tilefni til að ætla annað en að skekkjur í vinnumarkaðs- könnunum Hagstofunnar af þessari ástæðu séu innan viðunandi marka. Mynd 2.1. Frávik meðalatvinnuleysis í aprfl og nóvember frá ársmeðaltali hvers árs 1975-1994 Figure 2.1. Deviation of April/November average unemployment ratesfrom annual unemployment rates 1975-1994 Heimild: Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytis. Source: Ministry ofSocial Affairs-Office ofLabour.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Vinnumarkaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.