Vinnumarkaður - 01.06.1995, Blaðsíða 24
22
Greinargerð um aðferðir og hugtök
í viðmiðunarvikunni að meðtöldum aukastörfum var undir
40 klst. telst hann einnig vera vinnulítill.
Menntun. I vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar er
spurt um hæstu prófgráðu þátttakenda. Svörin eru flokkuð
í samræmi við menntunarflokka ISCED, Alþjóðlegu
menntunarflokkunarinnar. Grunnmenntun samsvarar flokk-
um 1 og 2, Starfs- og framhaldsmenntun svarar til flokka 3
og 5 og Háskólamenntun samsvarar flokkum 6 og 7.
I vinnumarkaðskönnunum er ennfremur gert ráð fyrir að
iðnmenntun og styttri starfsmenntun ásamt tveggja ára
almennri menntun í framhaldsskóla, þ.m.t. verslunarpróf,
teljist til flokks 3 en fjögurra ára framhaldsmenntun sem
lýkur með stúdentsprófi og starfsmenntun úr svokölluðum
sérskólum, s.s. Fósturskóla, Iþróttakennaraskóla, Stýri-
mannaskóla, Myndlista- og handíðaskóla, teljist til flokks 5.
Námsmenn. Svarandi telst námsmaður ef hann var í
skóla innan hins almenna skólakerfts, á námssamningi eða
í starfsþjálfun í mánuðinum áður en spurt var eða er í vinnu
með námi.
Starfsaldur. Með starfsaldri er átt við tímann frá því fólk
hóf störf í viðkomandi fyrirtæki til viðmiðunarmánuðar. Ef
svarendur muna ekki hvenær þeir hófu störf var þeim
reiknað gildi. Annars vegar var byijunarmánuði úthlutað
með hendingaraðferð að teknu tilliti til dreifingar gildra
svara eftir byrjunarmánuðum 1991-1994. Hins vegar var
byrjunarár reiknað með aðhvarfsgreiningu þar sem tekið var
tillit til aldurs, kyns og atvinnugreinar. Engum var þó leyft
að hafa byrjað störf fyrir 10 ára aldur.
Starfsstétt. Starf svarenda eða síðasta starf þeirra er
flokkað í samræmi við Islenska starfajlokkun, ISTARF 95,
sem byggð er á alþjóðastarfaflokkuninni, ISCO-88. Við
flokkunina eru notuð fjögur þrep flokkunarkerfisins en
niðurstöður birtar skv. fyrsta þrepi.
Starfshlutfall. Svarandi telst vera í fullu starfi ef hann
vinnur að jafnaði 35 klst. eða meira á viku. Hann telst vera
í hlutastarfi ef hann vinnur 1-34 klst. að jafnaði á viku.
Stéttarfélag. Með stéttarfélagi er átt við hagsmunafélag
launþega sem hefur sjálfstæða aðild að kjarasamningi í
samræmi við lög um stéttarfélög og vinnudeilur (nr.80/
1938) og lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna (nr.
94/1986). Svarendur sjálfir voru látnir meta hvort þeir væru
félagsmenn í stéttarfélagi eða ekki og þá hvaða félagi. Ef
þeir voru í fleiri en einu stéttarfélagi var aðeins skráð það
félag sem tengdist aðalstarfi þeirra.
Vinnutímí. Við útreikning á vinnutíma í viðmiðunar-
vikunni er aðeins reiknað með þeim svarendum sem höfðu
unnið 1 klst. eða fleiri í aðalstarfi eða aukastarfi. Nokkuð er
um brottfall í spumingum um vinnutíma. Þar sem brottfall
í vinnutímaspurningum er mismikið eftir starfsstéttum hafa
svörin verið bætt með því að setja inn reiknuð gildi. I stað
óþekkts svars er sett líklegasta tölugildi sem fundið er með
aðhvarfsgreiningu eftir kyni, starfshlutfalli og starfsstétt.
Með þessu móti ætti að fást betra mat á meðalvinnutíma.
2.1.5 Vogir, mat á stærðum og ársmeðaltöl
Að baki ársmeðaltölum liggja báðar kannanir ársins. Allar
heildarstærðir og hlutfallsskiptingar eru metnar með því að
vega hvert svar. Vogir eru fengnar með eftirfarandi jöfnu:
vkam =------------------ Jafna Equation 2.1
“ nkam n kam
þar sem
N = meðalmannfjöldi á aldrinum 16-74 ára,
n = fjöldi svarenda,
n* = fjöldi f úrtakinu með lögheimili á Islandi en aðsetur
erlendis,
k = kyn svaranda,
a = aldur svaranda {16,17,18-19, 20-24, 25-29, ..,65-69,
70-73, 74 ára) og
m = könnun {apríl, nóvember).
2.2 Skráð atvinnuleysi og áætlaður mannafli
2.2.1 Uppruni gagna
Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins safnar mán-
aðarlega upplýsingum frá opinberum vinnumiðlunum um
skráðaatvinnuleysisdaga. Vinnumálaskrifstofanbirtirþessar
niðurstöður eftir kyni og landssvæðum í Yfirliti um
atvinnuástandið. Þá hefur Hagstofan, frá því árið 1986,
safnað ársfjórðungslega skýrslum frá sömu aðilum um
tfmalengd atvinnuleysis eftir kyni og aldri. Miðað er við lok
febrúar, maí, ágúst og nóvember. Frá 1986 t.o.m. febrúar
1988 var miðað við síðasta virkan föstudag í h veijum mánuði.
Frá maí 1988 hefur verið miðað við síðasta virkan dag hvers
viðmiðunarmánaðar. Þjóðhagsstofnun hefur árlega áætlað
fjölda ársverka.
2.2.2 Þekja og áreiðanleiki
Skráð atvinnuleysi. Skráning hjá opinberri vinnumiðlun er
forsenda þess að fólk fái greiddar atvinnuleysisbætur. Ekki er
öllum atvinnulausum kunnugt um þennan rétt. Sjálfstætt
starfandi fólk og þeir sem ekki hafa áður verið á vinnumarkaði,
svo sem námsfólk og heimavinnandi fólk, hafa takmarkaðan
bótarétt. Ennfremur má gera ráð fyrir að á hverjum tíma séu
ýmsir skráðir atvinnulausir sem í reynd eru ekki reiðubúnir
að hefja störf eða þáað þeireru í einhverju starfi samtímis því
að vera á atvinnuleysisskrá.
Þessir meinbugir á opinberri atvinnuleysiskráningu valda
því að hún gefur ekki fyllilega rétta mynd af raunverulegu
atvinnuleysi í landinu, þ.e. fjölda þeirra sem á hveijum tíma
eru að leita sér að vinnu og geta hafið störf strax.
Aætlaður mannafli. Aætlanir Þjóðhagsstofnunar um
mannafla, sem notaðar eru til grundvallar við útreikning á
hlutfallslegu atvinnuleysi, eru byggðar á upplýsingum um
vinnuvikur samkvæmt gögnum skattyfirvalda. Þessar upp-
lýsingar hafa hins vegar verið síðbúnar og því eru mann-
aflatölur 1993 og 1994 áætlaðar af Þjóðhagsstofnun. Arið
1992 voru vinnuvikur taldar hjá launþegum í völdum
fyrirtækjum. Þessi fyrirtæki greiddu samtals sem nam rúml.
60% af heildarlaunum á árinu 1992. Fjöldi vinnuvikna
annarra launþega var áætlaður með hliðsjón af meðaltekjum
í hverri atvinnugrein. Fjöldi vinnuvikna einyrkja var metinn
á grundvelli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá skatta.
Tölur um mannaflann eru árstölur. Skipting mannaflans
eftir mánuðum er fundinn með því nota stuðla sem líkja eftir
árstíðasveiflu mannaflans. I áætlunum Þjóðhagsstofnunar