Útvegur - 01.08.2000, Side 17

Útvegur - 01.08.2000, Side 17
Aðferðir og hugtök 15 1. Aðferðir og hugtök 1. Methods and concepts Hagstofa íslands gefur nú út ársritið Útveg í annað sinn. Að þessu sinni er gerð grein fyrir sjávarútveginum á árinu 1999. Eins og lesendur Útvegs 1998 tóku eftir, voru gerðarnokkar grundvallarbreytingar á skipulagi og framsetningu efnis frá fyrri útgáfum. í ár eru einnig gerðar nokkar breytingar þó að grunnskipulag ritsins sé það sama og i Útvegi 1998. Töflum hefur verið fækkað og þær færðar yfir á samnefndan geisladisk. Leitast er við að auka samspil texta, mynda og taflna, að ritið sé í raun árskýrsla um sjávarútveg sem innhaldi helstu lykilupplýsingar. ítarlegri vitneskja, t.d. um einstaka verkunarstaði, verður áfram fáanleg á geisla- diskinum. Þess er vænst að ritið muni í þessari mynd nýtast áhugamönnum um íslenskan sjávarútveg, jafnt leikum sem lærðum. 1.1 Heimildir 1.1 Sources Megnið af þeim tölum sem birtar eru í ritinu eru fengnar úr vigtarskýrslum og ráðstöfunarskýrslum sem F iskistofa safnar, fer yfir og lætur Hagstofunni í té. Vigtarskýrslur innihalda upplýsingar um aflakaup. Þar kemur m.a. fram nafn fiskkaupanda, númer skráningar o.fl. ásamt öllum nauðsynlegum upplýsingum um keyptan afla, svo sem fisktegund, stærðarflokkun, gæðaflokkun, magn og verð. Ein skýrsla er gerð fyrir hvert skip sem keypt er af og nær skýrslan í flestum tilfellum yfir mánaðarviðskipti fisk- kaupandans við skipið, tilgreind eftir dögum. Fiskkaupandi útbýr vigtarskýrsluna og sendir Fiskistofu sem sér um skráningu hennar. Vigtarskýrslur eru sendar rafrænt eða eftir hefðbundnum leiðum. Við opinbert eftirlit sjávarafurða er leitast við að fylgja afla eftir, allt frá því að hann er veiddur og þar til búið er að vinna hann og afurðimar komnar í hendur kaupenda. Hluti af eftirlitinu felst í því að fylgjast með vinnslu afla og myndun afurða hjá framleiðendum. í núverandi skipulagi fer þetta eftirlit þannig fram að framleiðendur (aflakaupendur) senda Fiskistofu skýrslu um ráðstöfun afla. Ráðstöfunarskýrslur eru mánaðarlega sendar Fiskistofu. Greint er frá afla sem var til ráðstöfunar í hverjum mánuði og hvemig honum var ráðstafað. Afli til ráðstöfunar saman- stendur af birgðum í upphafi tímabils ásamt fiskkaupum samkvæmt vigtarskýrslum. Afli til ráðstöfunar er annað hvort unninn eða seldur óunninn. Því verður það aflamagn sem til ráðstöfunar er að vera jafnt því aflamagni sem er verkað eða selt óunnið. Ráðstöfunarskýrsla sýnir hvaða verkun aflinn fær. Hins vegar er ekki hægt að sjá á ráðstöfunarskýrsluhvaðaafurðirverðatilhjáffamleiðendum. í stuttu máli veita vigtarskýrslumar upplýsingar um allan afla upp úr sjó en ráðstöfunarskýrslumar segja til um vinnslu- aðferð hans. Fj ölmargar upplýsingar sem birtast í Utvegi eru íf á Hagstofu íslands, t.d. upplýsingar um starfsfólk í sjávarútvegi og tölur um útflutning. Skipaskrá Siglingastofnunar Islands er notuð við gerð taflna um fiskiskipastólinn, Landssamband smábáta- eigaenda leggur til upplýsingar um grásleppuafla og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gögn um heimsafla og skiptingu hans eftir löndum og veiðisvæðum. Alþjóða hafrannsóknarráðið (ICES) veitti upplýsingar um veiðar erlendra skipa við ísland. Fiskistofa útvegaði upplýsingar um innflutt hráefni til vinnslu á Islandi. Eins og fyrr sagði varðveitirFiskistofaráðstöfunar- og vigtarskýrslur. Upplýsingar um ljármunamyndun og fjármuneign í veiðum og vinnslu em fengnar frá Þjóðhagsstofnun. 1.2 Skýringar 1.2 Explanatory notes Allur afli í ritinu er umreiknaður í óslægðan afla (fisk upp úr sjó) og skiptirþá ekki máli í hvaða ástandi honum er landað. Reiknistuðlar fyrir ákveðnar fisktegundir em gefnir upp í töflu 1.1. aftar í þessum kafla. Sú nýlunda er nú í Utvegi að tvær töflur veita upplýsingar um hvort afla er landað slægðum eða óslægum. Þetta eru töflur 5.10 og 5.11. Þriðji kafli, um vinnuafl í sjávarútvegi, er nú eingöngu unninn upp úr vmnumarkaðskönnunum Hagstofunnar. Bætt hefur verið við, auk upplýsinga um fjölda starfandi við veiðar og vinnslu, upplýsingum um stéttarfélagsþáttöku, vinnustundir og starfsaldur. Lesendum er bent á að skoða inngang þriðja kafla þar sem nánar er farið í aðferðir og annað varðandi upplýsingar um vinnuafl. Fjórði kafli hefur einnig tekið nokkmm breytingum. Mæli- einingu íslenska fiskiskipastólsins hefur verið breytt og er nú notast við brúttótonn í stað brúttórúmlesta áður. Þetta leiðir til þess að ekki er hægt að bera saman stærð skipa nema tvö ár aftur í tímann. Mælieingamar eru það frábmgðnar hvor annari að sum skip stækka á meðan önnur minnka. Fiskiskipa- stólnum er í þessu riti skipt upp í 3 tegundir fiskiskipa, opna fiskibáta, vélskip og togara. Einnig er í 4. kafla Qallað um þilfarsskip en þá er átt við fiskiskipastólinn utan opinna fisk- báta. Þetta er gert þar sem opnir fiskibátar em margir en leggja upp hlutfailslega lítinn hluta af heildarafla. Einnig em tvær töflur í kafla fjögur þar sem einungis em skoðuð fiskiskip sem lögðu upp afla á árinu 1999 og hlutfall fiskiskipastólsins í árslok 1999 sem lagði upp afla á því sama ári. í 5. og 6. kafla, um afla og ráðstöfun hans, vom í Útvegi 1998 birtar neðst í hverri töflu tölur um aukaafurðir. I Útvegi 1999 er þetta ekki gert og em aukaafurðir látnar liggja á milli hluta í töflunum. Aukaafúrðir hafa ekki verið teknar með í heildartölum um afla þar sem aukaafurðirnar (hrogn, lifur o.fl.) em viðbót við slægðan fisk og þar sem allur fiskur er reiknaður yfir í óslægðan fisk væri það tvítalning að bæta aukaafúrðunum við heildamiðurstöðumar. Því var ákveðið nú að sleppa því að birta upplýsingar um aukafuðir í hverri töflu en í stað þess er í 6. kafla birt ein tafla um aukaafúrðir eftir tegund vinnslu. í þeim töflum þar sem miðað er við heimahafnir skipa er aflinn reiknaður fyrir hvern mánuð, þ.a. tekið tillit til færslu skipa milli hafna. I töflum þar sem fram kemur fjöldi skipa er miðað við
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Útvegur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvegur
https://timarit.is/publication/1384

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.