Útvegur - 01.08.2000, Side 18

Útvegur - 01.08.2000, Side 18
16 Aðferðir og hugtök skrámngamúmer en ekki nafn skips. Því telst hvert skip aðeins einu sinni þrátt fyrir að það komi fram með afla undir tveimur eða fleiri nöfnum. Vert er þó að hafa í huga þegar tafla 5.15 er skoðuð að alls lögðu 1.586 skip upp afla á árinu 1999. Að teknu tilliti til þess að skip flytjast milli landshluta við flutning milli heimahafna á árinu og færast á milli kvótaflokka í byrjun nýs ftskveiðiárs þá verður heildarljöldinn 1.708 1 stað 1.586. Upplýsingar um afla erlendra skipa sem landað var til vinnslu hérlendis em birtar í töflum 8.1-8.7. Hins vegar er þetta innflutta hráefni ekki aðskilið frá innlendu í töflum um framleiðslu og útflutning sjávarafurða í 7. kafla. Verðmætatölur em vergar (brúttótölur) nema annað sé tilgreint. Afli sem seldur er á markaði, hvort heldur sem er innanlands eða utan, er tilgreindur á söluverði. Verðmæti selds afla erlendis miðast við gengi á söludegi. í töflum 9.1 og 9.2 er afla skipt milli veiðisvæðis Va og annarra veiðisvæða. Veiðisvæði Va er skilgreint af alþjóða- stofnunum og er sýnt á mynd 1.1 aftar í þessum kafla. í bókinni er notast við eftirfarandi landshlutaskiptingu: (Sjá einnig íslandsskort framar í þessari skýrslu). Höfuðborgarsvæði: Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjamames Suðumes: Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði, Garður, Vogar, Hafnir. Vesturland: Akranes, Hellissandur, Rif, Olafsvík, Grundar- fjörður, Stykkishólmur, Hellnar, Borgames, Arnarstapi, Búðardalur, Flatey á Breiðafirði. Vestfírðir: Reykhólar, Barðaströnd, Brjánslækur, Patreks- fjörður, Tálknafjörður, Bildudalur, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík, Hnífsdalur, Isafjörður, Súðavík, Strandir, Drangsnes, Hólmavík. Norðurland vestra: Hvammstangi, Blönduós, Skagaströnd, Sauðárkrókur, Hofsós, Haganesvík, Siglufjörður. Norðurland eystra: Ólafsfjörður, Grímsey, Hrísey, Dalvík, Arskógssandur, Arskógsströnd, Hauganes, Hjalteyri, Akur- eyri, Grenivík, Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn, Þórshöfn. Austurland: Bakkafjörður, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Borgarljörður eystri, Seyðisfjörður, Mjóifjörður, Neskaup- staður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvar- fjörður, Breiðdalsvík, Djúpivogur, Homafjörður. Suðurland: Vík, Stokkseyri, Eyrarbakki, Selfoss, Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn. Ósamræmi er milli einstakra taflna um afla í fimmta og sjötta kafla. Þetta stafar af því að töflumar em unnar úr tveimur meginskrám. Fimmti kafli byggist á upplýsingum úr vigtarskýrslum sem taka til fyrstu sölu afla, þ.e. viðskipta skips sem aflar og vinnslustöðvar, og em töflur úr þeim merktar „vigtarskýrslur" neðanmáls. Skrá yfir ráðstöfun vinnslustöðvar á aflanum er unnin úr ráðstöfunarskýrslum. Töflur sem byggjast á gögnum úr þessum skýrslum em á hliðstæðan hátt merktar „ráðstöfunarskýrslur“ neðanmáls. Af tæknilegum ástæðum er nokkur innbyrðis mismunur á þessum tveimur skrám, sem stafar af eftirfarandi: a) I ráðstöfunarskýrslunum er miðað við vinnslustað en ekki löndunarstað afla. Þegar fyrsti kaupandi fisks selur hluta aflans í annað sveitarfélag kemur fram misræmi milli gagna úrvigtarskýrslum ográðstöfunarskýrslum. Dæmi: Vinnslustöð í Grindavík kaupir 10 tonn af bát. Þau við- skipti em skráð á kaupandann í Grindavík. Ef hann selur síðan t.d. vinnslustöð í Keflavík 2 tonn af þessum afla, skráist vinnslan á þessum tveimur tonnum í Keflavík. Þetta hefur í for með sér að í ráðstöfunarskýrslu er skráður afli bæði í Grindavík (8 tonn) og i Keflavík (2 tonn). Viðskiptin milli upphaflegs kaupanda og báts (10 tonn) sem ffam koma í vigtarskýrslu em hins vegar eingöngu skráð í Grindavík. b) Hafi afla ekki verið ráðstafað í ákveðna vinnslu er hann talinn til birgðaum mánaðamót. Því kemur fram mismunur milli þessara skráa í samanburði á mánuðum og stafar það af birgðabreytingum. c) Tilfærsla milli tegunda getur orðið við að afli er ekki vandlega tegundagreindur. Við vigtun koma stundum í ljós tegundir sem ekki em skráðar í viðskiptum báts og stöðvar. Oftast er um óvemlegt magn að ræða. d) I einstaka tilfellum verður rýmun á magni frá ffumsölu til vinnslu. e) Afli er í flestum tilfellum skráður í tonnum og verð í þúsundum króna. Einhver munur kemur fram þegar tölur em hækkaðar eða lækkaðar í næstu heilu tölu. Framsetning efnis er með sama sniði og í Utvegi 1998. Allar samtalstölur em feitletraðar fremst og efst á síðum. Þetta verður til þess að fýrstu tölumar sem birtast em samtalstölur en þær em síðan brotnar niður til hægri á síðunni og ofan frá og niður úr. Ritið er samansett af 9 köflum sem allir innhalda texta og töflur. Textinn er studdur myndum sem auðvelda lesandanum að glöggva sig á þróun, t.d. í veiðum ákveðinnar fisktegundar o.s.ffv yfir nokkurra ára tímabil. í töflum er síðan nánari útlistun á efni kaflanna. 1.3 Geisladiskur 1.3 CD-ROM í annað skipti býðst notendum Útvegs að fá efhi ritsins á geisladiski. Geisladiskur auðveldar alla vinnslu með gögn þar sem töflumar eru á Excel-formi. Á geisladisknum em allar sömu upplýsingar og í bókinni auk mikils magns viðbótampplýsinga. í 5. kafla emaukþeirra taflna, sem em í bókinni, töflurum afla og aflaverðmæti eftir tegund löndunar niður á mánuði og tafla um meðalverð afla eftir tegund löndunar niður á mánuði. Einnig em þar töflur um afla allra skipa, vélskipa, togara, opinna fískibáta og rannsóknarskipa eftir veiðarfæmm, tegundum og mánuðum. Loks er að finna töflu um afla og aflaverðmæti einstakra skipa. I 6. kafla em töflur um ráðstöfun afla í vinnslu settar fram eftir verkunarstöðum en í bókinni ná þessar upplýsingar aðeins yfir verkunarsvæði. Ráðstöfun afla eftir heimahöfn skips er einnig að fmna á geisladisknum en í bókinni er einvörðungu að finna upplýsingar eftir verkunarsvæðum. Tegundaskipting afla eftir verkunarstöðum er ennfremur eingöngu á geisladisknum. í 7. kafla er að finna á diskinum töflu 7.5 sem ekki er í bókinni. Þar kemur fram magn og verðmæti útfluttra sjávar- afurða eftir afurðaflokkum og löndum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Útvegur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvegur
https://timarit.is/publication/1384

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.