Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 22
Ekki gefa bara eitthvað,
gefðu frekar hvað sem er.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að
velja rétta jólagjöf fyrir starfsfólkið. Þú ákveður
upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
Það skiptir máli að gera vel við starfsfólkið sitt en það skiptir líka máli að það sé ekki bara
bundið við jólin eða eitthvað svo-
leiðis heldur að það sé unnið að því
allt árið að gera fólk ánægt,“ segir
Steingrímur Sigurgeirsson, ráð-
gjafi í stjórnun og stefnumótun hjá
ráðgjafarfyrir tækinu Capacent.
„Eitt af því sem við gerum
sem ráðgjafar er að vinna með
fyrirtækjum og stofnunum að því
hvernig er hægt að gera vinnustaði
betri og oft erum við að horfa á
hluti eins og vinnustaðarmenn-
ingu,“ segir Steingrímur. „Auðvitað
reynum við líka að hafa hlutina
góða hjá okkur því það er svo
margt annað en bara laun sem
skiptir máli þegar kemur að því
hvort fólk sé ánægt í vinnunni og
líði vel,“ bætir hann við.
Mikið er lagt upp úr ánægju
starfsfólks innan fyrirtækisins og
segir Steingrímur það mikilvægt
fyrir starfsandann að starfsfólkið
hittist utan vinnu og eigi góða
stund. „Við leggjum mikið upp úr
þáttum eins og að þjappa hópnum
saman því að þannig kynnumst
við betur og samskiptin verða auð-
veldari,“ segir Steingrímur.
„En svo geta líka þættir eins
og gjafir til starfsfólks verið
mikilvægir þegar kemur að vinnu-
staðarmenningu,“ segir hann. „Til
dæmis ef einhver á stórafmæli og í
kringum jólin er mikilvægt að gefa
starfsfólkinu gjafir en það skiptir
þó eiginlega meira máli að passa
upp á að þetta sé gert heldur en
að þetta séu einhverjar risagjafir,“
bætir Steingrímur við.
„Ekki þó þannig að þetta sé
nánasarlegt en það sem skiptir
líka miklu máli er þessi heildar-
mynd. Að það sé ekki bara einhver
glaðningur í kringum í jólin heldur
að alla daga ársins séum við að
hugsa um það hvernig við getum
haft vinnustaðinn góðan og haft
góða menningu í hópnum,“ segir
hann. Steingrímur segir að það
geti verið vandasamt að velja
gjafir fyrir þann fjölbreytta starfs-
mannahóp sem starfar hjá Capa-
cent en að reynt sé að vanda valið
á hverju ári. „Það þarf að klóra sér í
hausnum á hverju ári yfir því hvað
sé skynsamlegast,“ segir hann og
hlær.
„Við reynum að velja gjafir sem
eru hagnýtar og ýmislegt hefur
orðið fyrir valinu í gegnum tíðina.
Til dæmis útivistarfatnaður,
þráðlaus hátalari og oft höfum
við verið með hálfgerðan bóka-
markað,“ segir hann.
„Það hefur lukkast rosalega vel
því það getur verið erfitt að velja
fyrir fólk með ólíkan áhuga og
smekk. Þá erum við með helstu
jólabækurnar og fólk getur valið
sér það sem það langar í,“ segir
Steingrímur.
Mikilvægt að gera vel við starfsfólkið
Mikil áhersla er lögð á ánægju starfsfólks Capacent og segir Steingrímur Sigurgeirsson ráðgjafi
mikilvægt að efla vinnustaðarmenningu allt árið um kring. Hópefli og góð samskipti skipta máli
Steingrímur,
lengst til hægri,
segir góð sam-
skipti, hópefli og
fyrirtækjagjafir
allt þætti sem
skipta málið
þegar kemur að
vinnustaðar-
menningu og
ánægju starfs-
fólks.
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn@frettabladid.is
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-7
6
0
0
2
4
0
0
-7
4
C
4
2
4
0
0
-7
3
8
8
2
4
0
0
-7
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K