Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 25
Markmið ELKO er að bjóða upp á jólagjafir sem hitta í mark hjá starfsfólki. ELKO
hefur einbeitt sé að því að lækka
verð á raftækjum fyrir almenna
neytendur síðustu 20 ár og ákvað
að stofna sérstakt fyrirtækjasvið
í desember í fyrra til að gera það
sama fyrir fyrirtæki.
„Við bjóðum upp á spenn-
andi vörur í öllum verðflokkum
frá þekktustu raftækjafram-
leiðendum heims, þannig að við
getum sérsniðið jólagjafir fyrir
starfsfólk fyrirtækja í öllum
stærðargráðum,“ segir Stefán
Pétur Kristjánsson, formaður
fyrirtækjasviðs ELKO. „Til að hafa
þetta eins einfalt og hægt er þá
bjóðum við líka upp á innpökkun
á gjöfinni, þannig hún sé tilbúin til
afhendingar.
Ef svo vill til að gjöfin hitti ekki
í mark hjá einhverjum, þá tökum
við á móti henni aftur með bros
á vör til 24. janúar á næsta ári,
en það köllum við Brostrygg-
ingu ELKO,“ segir Stefán. „Ef um
mikið magn jólagjafa er að ræða
þá getum við hæglega sérpantað
vörurnar fyrir þig, gert þér enn
betra tilboð og skoðað sérstaklega
hvaða skilaþjónustu væri hægt að
bjóða.“
Margar hentugar gjafir í boði
ELKO býður upp á margar spenn-
andi vörur sem geta hentað sem
jólagjafir fyrirtækja. „Við erum
með rosalega stóra bakhjarla og
aðgang að stærsta raftækjalager
á Norðurlöndunum, en hann er í
Svíþjóð og er 107 þúsund fermetr-
ar, eða sirka átján fótboltavellir,“
segir Stefán. „Þessi lager fóðrar
tæplega 300 verslanir á Norður-
löndunum og þar komumst við í
verð sem fáir aðrir hafa aðgang að.
Það eru nokkrar vörur sem eru
sérlega vinsælar fyrir þessi jól.
„Chilly’s fjölnota vatnsflöskurnar
hafa til dæmis verið rosalega vin-
sælar fyrirtækjagjafir, ekki bara
fyrir jólin,“ segir Stefán. „Þær eru
úr stáli, halda köldu í 24 tíma og
minnka plastnotkun. Margir sem
vilja taka rétt skref fyrir umhverf-
ið hafa því gefið starfsfólki sínu
slíkar flöskur.
Þráðlausu Marshall-hátalarnir
okkar eru líka vinsælir og þeir fást
í ýmsum stærðum og útfærslum,
bæði með Bluetooth og Wi-Fi,
sem gerir það mögulegt að tengja
marga saman,“ segir Stefán.
„Hátalararnir eru glæsilegt stofu-
stáss því þeir hafa fallegt útlit sem
minnir á gömlu Marshall-gítar-
magnarana. Það eru til ýmsar
útgáfur á ólíku verði, allt frá um 35
þúsund krónum upp í 80 þúsund
krónur stykkið.
Margir þekkja orðið BOSE-
heyrnartólin, en þau eru afar
vinsæl, sérstaklega fyrir skrif-
stofur. Þau gera manni kleift að
slökkva á öllum kollegunum með
einum takka þegar maður þarf að
einbeita sér,“ segir Stefán.
„Þetta eru mest seldu heyrnar-
tól í heimi og það var að koma ný
útfærsla, NC700, sem bætir sím-
talsgæði til muna með því að bæta
við hátölurunum og það er líka
betri hljóðeinangrun í þeim, svo
að skvaldur heyrist ekki í gegnum
þau. Það er þægilegt að vera með
þau á sér til lengri tíma og raf-
hlaðan endist í 20 tíma, svo þau
henta vel fyrir vinnu. Við höldum
líka áfram að bjóða upp á Quiet
Comfort 35 heyrnartólin frá BOSE,
þau eru virkilega góð og vönduð,
en aðeins ódýrari,“ segir Stefán.
„Við vorum líka að taka inn
nýtt kerfi frá Samsung sem heitir
SmartThings en það virkar þannig
að maður byrjar á að kaupa hub
og svo geturðu tengt allar snjall-
lausnir heimilisins við hann,
þ. á m. Philips Hue ljósakerfi,
öryggismyndavélar, lekaskynjara
og hurðaopnara,“ segir Stefán.
„Svo er hægt að stjórna þessu með
snjallforriti í símanum og setja
upp alls kyns stillingar, eins og
til dæmis að láta kerfið kveikja á
ljósum og tónlist og byrja að hella
upp á kaffi þegar maður vaknar á
morgnana, eða að láta ljós kvikna
þegar þú kemur og slokkna þegar
þú ferð með hjálp hreyfiskynjara.
Dagljósalamparnir eru alltaf
klassísk jólagjöf á þægilegu verði,
frá sjö þúsund krónum upp í 25
þúsund,“ segir Stefán. „Þar sem
við búum á landi þar sem getur
orðið svolítið dimmt og mikið
skammdegi þá er þægilegt að geta
notað lampann til að vakna við
fuglasöng og sólarupprás. Það
er ekki hægt að neita því að það
gerir mikið fyrir sálartetrið. Þessi
lampar hafa slegið í gegn, enda
græða allir á þessu, líka fyrirtækin,
því fólk kemur mun ferskara til
vinnu á morgnana.
Við bjóðum líka upp á mikið
úrval snjallúra, sem hafa notið
síaukinna vinsælda síðustu ár,“
segir Stefán. „Við erum með
margar ólíkar gerðir á fjölbreyttu
verði, þannig að allir ættu að geta
fundið úr við sitt hæfi.“
Sérsníða gjafir fyrir fyrirtæki
„ELKO býður upp á klæðskera-
saumaðar fyrirtækjagjafir. Það
þýðir að fólk getur haft samband
við mig beint í gegnum stefan@
elko.is og gefið mér helstu upp-
lýsingar um fyrirtækið og þá
komum við með tillögur sem
henta fyrirtækinu,“ segir Stefán.
„Það er hægt að fá fyrirtækjagjafir
allt frá 2.000 krónum upp í eins
mikið og fólk vill, þannig að það
ætti að vera auðvelt að finna gjöf á
réttu verði.“
ELKO finnur gjöfina sem hentar
ELKO býður upp á frábært verð á alls kyns spennandi raftækjum og þar er hægt er að fá sér-
sniðnar jólagjafir fyrir starfsfólk sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.
ELKO býður frábært úrval og verð á raftækjum og Stefán getur sérsniðið jólagjafir fyrir fyrirtæki sé þess óskað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það er hægt að tengja SmartThings kerfið við ýmislegt
á heimilinu með sérstökum fjölnota skynjara.
Quiet Comfort 35 heyrnartólin frá
BOSE eru góð og vönduð og ódýrari
en nýjasta gerðin frá BOSE.
NC700 er nýj-
asta útfærslan
af mest seldu
heyrnartólum
í heimi. Þar eru
símtalsgæði
bætt til muna
og það er líka
betri hljóð-
einangrun í
þeim.
Þráðlausu Marshall-hátalarnir hafi sígilt og glæsilegt út-
lit og geta virkað sem prýðilegt stofustáss.
Þessar fjölnota vatnsflöskur úr stáli frá Chilly’s eru vin-
sælar, þægilegar og minnka plastnotkun.
KYNNINGARBLAÐ 7 F Ö S T U DAG U R 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 FYRIRTÆKJAGJAFIR
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
0
-6
2
4
0
2
4
0
0
-6
1
0
4
2
4
0
0
-5
F
C
8
2
4
0
0
-5
E
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K