Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 24
Mörgum finnst
frábært að fá pen-
ingagjöf eða matarkörfu
enda kosta jólin mikið.
Samkvæmt könnun eyða
Norðmenn í kringum
150 þúsund krónum í
mat og gjafir í desember.
Hjá Lín Design er mikið úrval af glæsilegum, vistvænum vörum. Falleg hönnun er
í fyrirrúmi hjá versluninni og
gjafavara er alltaf að aukast. Lín
Design býður ekki einungis upp á
rúmföt úr hágæða Pima bómull,
vistvænar dúnsængur og -kodda,
heldur einnig glæsileg útsaumuð
handklæði, dúka og svuntur.
Hið nýjasta í vörulínu Lín Design
eru íslensk ullarteppi framleidd
úr íslenskri ull á Hvammstanga.
Hægt er að nota teppin bæði sem
yfirbreiðslu við sjónvarpið eða sem
rúmteppi. Teppin eru prýdd fallegu
íslensku mynstri og koma í þremur
litum.
Að sögn Ágústu Gísladóttur,
sem er annar eigandi Lín Design,
hafa fyrirtæki í vaxandi mæli valið
nytsamar gjafir í jólapakka starfs-
manna eða viðskiptavina. „Rúm-
fötin eru alltaf vinsæl gjafavara,“
segir hún. „Hjá Lín Design erum
við með sérhönnuð falleg gjafabréf
sem hentar mörgum því þá getur
fólk komið í verslunina og valið sér
gjöf að eigin smekk. Við getum sér-
hannað gjafapakkningar eftir ósk
stærri fyrirtækja og þá fylgir hlýleg
kveðja til starfsmannsins,“ bendir
Ágústa á og bætir við að innblástur
í hönnun hjá Lín Design sé íslensk
náttúra og gömul, íslensk mynstur.
„Allar pakkningar eru vistvænar
og ekki er notað plast. „Við erum
með auk rúmfatnaðar, handklæða
og annarrar heimilisvöru glæsi-
lega franska gjafavöru sem nefnast
COTE TABLE. Í þeirri línu eru glös,
diskar og skrautmunir til að gera
heimilið enn fallegra,“ segir hún.
„Við erum stolt af miklu úrvali af
vandaðri og glæsilegri gjafavöru.
Í versluninni er boðið upp á per-
sónulega þjónustu og starfsfólkið er
reiðubúið að aðstoða við val á vöru.
Löng reynsla okkar í hönnun og
framleiðslu á vistvænum rúmfatn-
aði þar sem eingöngu er notuð sér-
valin Pima bómull gefur fólki kost á
góðum svefni og að því líði vel. Val
á rúmfatnaði skiptir nefnilega mjög
miklu máli,“ segir Ágústa.
Verslunin Lín Design er á Smára
torgi í Kópavogi og síminn er 533
2220, Kringlunni og á Glerártorgi á
Akureyri. Skoða má vörur og kaupa
í netversluninni lindesign.is og eru
þær sendar um allt land. Fylgist
með á Facebook.com/lindesign
iceland
Gjöf sem veitir hlýju og gleði
Gjafabréfin frá Lín Design hafa gert mikla lukku hjá
starfsmönnum fyrirtækja um jólin enda margt fallegt.
Falleg gjafabréf frá Lín Design sem eru í umhverfisvænum umbúðum..
Hjá Lín Design
erum við með
sérhönnuð falleg gjafa-
bréf sem hentar mörgum
því þá getur fólk komið í
verslunina og valið sér
gjöf að eigin smekk.
Ágústa Gísladóttir
Það hefur tíðkast í Noregi eins og hér á landi að vinnuveit-endur færi starfsmönnum
sínum glaðning fyrir jólin.
Undanfarin ár hefur komið upp
sú umræða að þeirri upphæð sem
varið er til jólagjafa yrði betur
komið í einhvers konar hjálpar-
starfi. Einn af hverjum þremur var
jákvæður fyrir því að jólagjöfin
færi í góðan málstað en var samt á
því að hún ætti þá að fara í hjálpar-
starf í nágrenninu, ekki utanlands.
Flestir vilja þó fá sína jólagjöf og
líta á það sem viðurkenningu fyrir
gott starf á árinu.
Þau fyrirtæki sem hafa ákveðið
að nota peninginn sem átti að fara
í jólagjafir í góðgerðarstarf telja
sig með því vera að sýna sam-
félagslega ábyrgð. Greitt er fyrir
menntun barna í þróunarlöndum
eða settur peningur í tiltekin verk-
efni. Aðrir nota upphæðina til að
styðja við innlend hjálparsamtök.
Í desember 2016 var gerð
könnun meðal 1.005 Norðmanna
hjá TNS Gallup um viðhorf til
jólagjafa frá vinnuveitendum.
Þátttakendur voru á aldrinum
18-68 ára og bjuggu víðs vegar
um landið, höfðu mismunandi
menntun og heimilistekjur. Sams
konar könnun var gerð 2014 en þá
Líta á jólagjöfina sem umbun
Samkvæmt könnun sem gerð var í Noregi vilja flestir frekar fá jólagjöf frá vinnuveitanda sínum
heldur en að hún fari til hjálparstarfa. Starfsmönnum þykir notalegt að fá góða jólagjöf.
Starfsmönnum finnst alltaf spennandi að vita hvað kemur upp úr jólapakkanum. NORDICPHOTOS/GETTY
svöruðu 60% þátttakenda að þau
væru ánægð með að fá jólagjafir
frá vinnuveitendum. Árið 2016
voru það 55%. Einungis 6% töldu
að það ætti að sleppa jólagjöfum
alfarið en voru 8% árið 2014.
Hin dæmigerða manneskja sem
vill að jólagjöfin fari til góðgerðar-
mála er vel menntuð kona. Eldra
fólk var frekar á þessari skoðun
líka en yngra fólk vildi fá sína jóla-
gjöf.
Mörgum finnst frábært að fá
peningagjöf eða matarkörfu enda
kosta jólin mikið. Samkvæmt
könnun eyða Norðmenn í kring-
um 150 þúsund krónum í mat og
gjafir í desember. Í könnuninni
sem gerð var í fyrra sögðust 56%
vilja draga úr gjafakaupum. Sjö af
hverjum tíu sögðust aldrei hafa
keypt notaðar vörur til jólagjafa.
Margir voru þó jákvæðir fyrir því
að endurnýta hluti. Mikið hefur
verið rætt um umhverfismál og
sóun. Með því að endurnýta hluti
er hægt að gefa persónulega gjöf.
Að auki væri það gott fyrir sam-
félagið og budduna.
Askalind 4 · 201 Kópavogur · Sími 552 8400
Glæsilegar starfsmannagjafir
Við pökkum inn og komum gjöfinni til þín
Við getum ekki komið í veg fyrir
að þú breytist í foreldra þína ...
En við getum tryggt að þú vitir
hvað er að frétta!
6 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-7
1
1
0
2
4
0
0
-6
F
D
4
2
4
0
0
-6
E
9
8
2
4
0
0
-6
D
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K