Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 8
Að mínu mati er ábyrgð bankans mikil. Eftirlitsmaður þeirra kvittaði upp á framvindu verksins og síðan var lánað út í samræmi við það. Sturla Sighvatsson, fyrrverandi framkvæmdarstjóri Heimavalla, var í forsvari fyrir verkið Ekki hafa veiðst færri laxar á stöng frá árinu 2000. VIÐSKIPTI Í Gerplustræti 2-4 eru 32 íbúðir í tveimur stigagöngum. Íbúðirnar voru auglýstar til sölu í byrjun árs 2018 og átti af hend- ingartími að vera í apríl sama ár. Sú afhending hefur dregist í rúma 18 mánuði. Fyrirtækið sem byggði húsið heitir Gerplustræti 2-4 ehf. og er í eigu fjölmargra aðila í gegnum fyrirtækið Burð Invest. Stærsti eigandinn er Orri Guð- mundsson lögmaður með 49 pró- senta hlut en síðan er hópur fjár- festa með minni hluti. Þar á meðal knattspyrnukapparnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir og Gylfi Einarsson. Þá á fjölmiðlamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson einnig hlut í fyrirtækinu. Ásgeir tók nýlega sæti í stjórn þess en hann er sem stendur eini stjórnar maðurinn. „Þetta verkefni var komið í veruleg vandræði og því var skipt um aðila í brúnni til þess að bjarga því sem bjargað varð,“ segir Ásgeir. Hann segist ánægður með að verk- efnið sé þó að klárast miðað við stöðuna sem upp var komin en harmar það tjón sem orðið hefur. „Það hafa margir orðið fyrir tjóni, einstaklingar, fjárfestar og lánar- drottnar, og það er auðvitað mjög leiðinlegt. Við leggjum allt kapp á að klára verkefnið sómasamlega og lágmarka tjónið fyrir alla hlutað- eigandi,“ segir Ásgeir. Stærstu lánardrottnar verkefnis- ins eru Arion banki með rúmlega 680 milljóna króna lán á 1. veðrétti eignarinnar, Arctic Capital með 150 milljóna króna lán á 2. veð- rétti og félagið Leiguafl slhf. sem er í eigu Kristrúnar S. Þorsteinsdóttur, eiginkonu Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Lands- bankans. Ólíklegt verður að teljast að síðari veðhafar fái kröfur sínar greiddar að fullu. Sá sem var í forsvari fyrir verk- efnið var athafnamaðurinn Sturla Sighvatsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Heimavalla, sem sat í stjórn Burðar Invest ásamt bróður sínum, Kára Sighvatssyni. Sturla segir að verkefnið hafi farið í upp- nám þegar verktakafyrirtækið sem stóð að uppbyggingunni hafi orðið gjaldþrota. Þá segir hann að ábyrgð Arion banka sé mikil því lánað hafi verið til verksins í takt við fram- vindu sem reyndist vera skemur á veg komin en verktakinn gaf upp. „Þegar styttist í verklok boðaði verktakinn til fundar og sagðist þurfa að hækka verðið. Það setti allt verkefnið eðlilega í uppnám enda vorum við búnir að festa söluverð íbúðanna,“ segir Sturla. Að endingu varð verktakinn gjaldþrota. Þá hafi komið í ljós að verkefnið var skemur á veg komið en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Að mínu mati er ábyrgð bankans mikil. Eftirlitsmaður þeirra kvitt- aði upp á framvindu verksins og síðan var lánað út í samræmi við það,“ segir Sturla sem þó efast um að hægt verði að sækja bankann til saka vegna þessa. „Slíkt hefur verið reynt í sambærilegum málum en ekki gengið,“ segir hann. Þó að bygging fjölbýlishússins sé að klárast er ljóst að mikið verk er fyrir höndum í að sætta deiluaðila. „Við höfum lent í miklum kostn- aði og vandræðum vegna þessara vanefnda. Það er sárt að borga fasteignagjöld fyrir eign sem er óíbúðarhæf,“ segir Sveinn Fannar Brynjarsson, einn þeirra sem keyptu íbúð í húsinu. Hann segist ætla að leita rétt- ar síns með aðstoð lögfræðings og hann telur að það sama gildi um flesta aðra kaupendur íbúða í hús- inu. „Það var erfitt að fá skýr svör frá Sturlu og maður gat ekki treyst þeim svörum sem bárust,“ segir Sveinn. Þá herma heimildir Fréttablaðs- ins að aðrir hluthafar íhugi mál- sókn gegn Sturlu vegna verkefnis- ins. Hann hafi lofað þeim gulli og grænum skógum en þeir setið uppi með dúfnaskít. bjornth@frettabladid.is Íbúar flytja inn í Gerplustræti einu og hálfu ári á eftir áætlun BÍLAÚTSALA Allir okkar útsölubílar eru bílaleigubílar frá Procar bílaleigu. Léttskoðun ásamt útleiguvottorði fylgir öllum bílum. Þetta er aðeins brot af þeim útsölubílum sem eru í boði. Kíktu í kaffi. AKRALIND 3 S: 4162120 Opið virka daga kl. 10:00 – 19:00 Opið laugadaga og sunnudaga kl. 12:00 – 16:00 Verkið er loks að klárast og kaupendur geta flutt inn, átján mánuðum of seint. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fólk sem keypti íbúðir í Gerplustræti 2-4 í byrj- un árs 2018 getur loks flutt inn á næstunni. Afhenda átti í apríl í fyrra. Röð óheppilegra atvika hefur valdið verulegum töfum. Að verkinu kemur fjöl- breyttur hópur hlut- hafa og lánardrottna, þar á meðal fyrrverandi bankastjóri, fyrrver- andi atvinnumaður í knattspyrnu og þekkt- ur fjölmiðlamaður. Sturla Sighvatsson. EFNAHAGSMÁL Alþýðusamband Íslands leggst gegn fyrirhuguðu frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um þrepaskipt- ingu og lækkun erfðafjárskatts. BSRB hefur einnig lagst gegn frum- varpinu. Í umsögn um frumvarpið segir Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ, að sambandið telji erfðafjárskatt skil- virka og réttláta leið til tekjuöflunar ríkissjóðs. En samkvæmt frum- varpinu yrði ríkissjóður af tveimur milljörðum árlega. Einnig að hann vinni gegn ójöfnuði og óæskilegri auðsöfnun á milli kynslóða. „Þá áréttar ASÍ afstöðu sína um að þegar hafi verið of hart gengið fram í að rýra tekjustofna ríkisins og rekstur ríkissjóðs er samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi til fjár- laga í járnum á komandi ári,“ segir Henný. – khg ASÍ leggst gegn lækkun erfðafjárskatts Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ. LAXVEIÐI Fjöldi laxa sem veiddist á stöng í sumar var sá minnsti frá árinu 2000 og sjöundi minnsti frá 1974. Þetta sýna bráðabirgðatölur sem Hafrannsóknastofnun birti í gær. Alls voru veiddir um 28.800 laxar og var samdrátturinn mestur á vestanverðu landinu. Á síðasta ári veiddust til samanburðar um 45.300 laxar. Tekið skal fram að í einhverjum ám mun veiði standa til loka október. Þar er um að ræða ár þar sem uppistaðan er lax úr slepp- ingum gönguseiða. Ef veiði í haf beitarám er undan- skilin og leiðrétt er fyrir áhrifum „veiða og sleppa“ voru veiddir tæp- lega 20 þúsund laxar. Miðað við sömu forsendur þeir ekki verið færri frá því að skráningar hófust árið 1974. – sar Gríðarlegur samdráttur í laxveiðinni í ár 1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 0 -6 C 2 0 2 4 0 0 -6 A E 4 2 4 0 0 -6 9 A 8 2 4 0 0 -6 8 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.