Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 17
KYNNINGARBLAÐ
Framhald á síðu 2 ➛
Helgin
F
Ö
ST
U
D
A
G
U
R
11
. O
K
TÓ
BE
R
20
19
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Elskuð mest í heimi
Kristín Eva Geirsdóttir er konan sem Sverrir Bergmann syngur fyrir alþjóð að
hann elski mest í heimi. Hann uppskar ást hennar eftir vinarbeiðni á Facebook.
Kristín Eva Geirsdóttir er lögfræðingur á Útlendingastofnun með sérhæfingu í flug- og geimrétti. Hún á von á sér í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég náði nú að halda andlitinu þegar ég heyrði lagið komið í sinn endanlega búning og
bara brosti, knúsaði hann og kyssti
mikið en ég viðurkenni að hafa
tárfellt þegar ég sá myndbandið
við lagið. Þá var ég nýkomin heim
þreytt eftir vinnudaginn og fannst
hversdagsleikinn allsráðandi en
heima beið mín myndbandið og
hversdagsleikinn breyttist í ævin-
týri,“ segir Kristín Eva Geirsdóttir,
spurð hvernig henni hafi orðið
við þegar hennar heittelskaði,
söngvarinn Sverrir Bergmann,
f lutti fyrir hana ástaróðinn „Þig ég
elska“ sem hann orti af heitri ást til
Kristínar og heyrist nú oft á öldum
ljósvakans.
„Sverrir hafði sungið til mín í
svolítið langan tíma og ég hlustað
með stjörnur í augum. Ég fylgdist
því með frá upphafi þegar hann
byrjaði að glamra „Þig ég elska“
á gítarinn og lagið varð alltaf æ
fegurra. Ég var auðvitað dolfallin
en myndbandið gerði útslagið og
meira að segja pabba vöknaði um
augun þegar hann horfði á það
í fyrsta sinn. Það er svo ótrúlega
fallegt og skemmtilegt og lýsir mér
eins og ég er; elskandi tabaskó-
sósu út á allt sem Sverrir teiknaði
sjálfur eins og allt annað í mynd-
bandinu,“ segir Kristín, ástfangin
upp fyrir haus og elskuð mest í
heimi.
Bjargvættur á bílaþvottastöð
Kristín er lögfræðingur að mennt
og var nýflutt heim frá Hollandi
þar sem hún hafði lokið sér-
hæfingu í f lug- og geimrétti við
háskólann í Leiden þegar ástin
bankaði svo óvænt upp á eitt
mánudagskvöld í febrúar í fyrra.
„Þá sendi Sverrir mér vinar-
beiðni á Facebook og ég svara með
undrun: „Ég veit ekki hvort minnið
sé að leika mig grátt en þekkjumst
við?“ Hann svaraði um hæl:
„Neibb, við þekkjumst ekki neitt.
Minnið þitt er í toppstandi.“ Mér
fannst það bæði fyndið og krútt-
legt og Sverrir reyndist einstaklega
skemmtilegur að tala við. Hann
var þá í Þýskalandi hjá vini en kom
heim á fimmtudeginum í sömu
viku og við ákváðum að hittast og
fórum á rúntinn eins og sautján
ára unglingar,“ rifjar Kristín upp
og hlær. „Á laugardeginum fór ég
svo að þrífa bílinn á bílaþvottastöð
þar sem hann varð rafmagnslaus
í miðri stöðinni en þá kom Sverrir
og bjargaði mér úr klípunni. Síðan
hef ég verið með honum á hverjum
einasta degi enda féll ég kylliflöt
fyrir honum.“
Kristín hafði lítið fylgst með
tónlistarsenunni heima þau fjögur
ár sem hún bjó í útlöndum en vissi
sem var að Sverrir hafði sungið Sölustaðir: apótek, heilsubúðir
og heilsuhillur verslana.
AUKIN ORKA
SKARPARI HUGSUN
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
0
-4
9
9
0
2
4
0
0
-4
8
5
4
2
4
0
0
-4
7
1
8
2
4
0
0
-4
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K