Plógur - 15.01.1929, Qupperneq 5

Plógur - 15.01.1929, Qupperneq 5
PLÓGUR 5 mjólkurafurðir í Rvík er sú, að félagið fær mun hærra verð fyrir þá vöru, er það framleiðir sjálft, heldur en hægt er að fá fyrir best tilbúnar samskonar vörur í sveit. Veldur þvi að félagið hefir allrafullkomnustu tæki til þess að breyta mjólkinni í afurðir, enda eru þessar, vörur félagsins orðnar svo vel þektar og eftirspurðar, að fólk yill gjarnan kaupa þær hærra verði heldur en aðrar. Hið væntanlega mjólkurbú fyrir Flóaáveituna hefur að likindum starf sitt á næsta ári. Þurfa þá bændur fyrir austan Hellsheiði ekki lengur að senda mjólk sína til Reykjavikur, til að fá henni breytt i fyrsta flokks vörur. Þá er félag'ið einnig verslunarfélag, og selur vörur sínar hæði til félagsmanna og annara, hvar sem er, hér á landi. Vörur, sem eiga að fara út á land með skipum, send- um við gegn eftirkröfu. Hægt er fyrir menn að fá vörurnar beint frá útlönd- um á sama verði og þær eru seldar í Reykjavík, með þvi að gera dálitla félagspöntun. Þá getum við séð um að varan komi beinj frá útlöndum á þá höfn, er kaup- andi óskar, svo fraínarlega sem beinar samgöngur eru milli viðkomandi hafnar og útflutningshafna þeirra, er við kaupum frá, en það er í næstum þvi öllum tilfellum, Við höfum ekki smásölubúð, en af^reiðum allar okk- ar vörur frá vörugeymsluhúsum okkar, i heilum stykkj- um, eða því sem næst. Við höfum ekki til allar nauðsynjavörur, eins og verðlisti okkar ber með sér, en það orsakast af því, að við höfum altaf verið að smábæta fleiri og fleiri Vörutegundum við, eftir þvi sem við höfum séð okk- ur fært. En regla okkar hefir verið, og verður, að auka ekki við vöruflokka þá, er við verslum með, fyr en félagið hefir haft bolmagn til að standast þá auknu umsetn-

x

Plógur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/1402

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.