Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
339kr.
SÚRDEIGS PIZZA DEIG
HÁGÆÐA DEIG
FERSKT OG FLOTT
220g
ALLT Í FÖSTUDAGS PIZZUNA!!!
HÁGÆÐA PIZZA SÚRDEIG FERSKT OG FLOTT
159kr.
REMA 1000
PIZZASÓSA
280g
219kr.
REMA 1000
PIZZASÓSA
LÍFRÆN
280g
ÞÚ FINNUR SUPER1 Á TVEIMUR STÖÐUM
HALLVEIGARSTÍG 1 SMIÐJUVEGI 2
OPIÐ 10:00 - 22:00 ALLA DAGA
MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT VERÐ
Á m iðnæt t i k o m ú t n ý j a s t a p l a t a h l j ó m s v e i t a r
innar Sykurs. Hún ber
nafnið JÁTAKK, sem á vel
við, þar sem aðdáendur
sveitarinnar hafa þurft
að bíða í heil átta ár eftir
nýrri plötu. Síðast kom út
platan Mesópót amía en
hún sló rækilega í gegn
og innihélt meðal annars
slagarann Reykjavík.
Byrjuðu upp á nýtt
Hljómsveitin hefur verið
dugleg að koma fram á
þessum átta árum.
„Við höf um allt af
verið að spila því það er
eitthvað sem okkur finnst
einfaldlega svo skemmtilegt. Það er
svo gaman að vera í hljómsveit og
koma fram. Mörg af okkar lögum
urðu líka til þegar við vorum að
spila. Ætli helmingur sé ekki lög
sem fólk hefur mögulega heyrt
áður, hafi það séð okkur spila,“ segir
Agnes Björt Andradóttir, söngkona
sveitarinnar.
Hún segir þó öllu meiri dulúð
svífa yfir vötnum þegar kemur að
restinni af lögunum.
„Það eru lög sem við höfum aldr
ei spilað opinberlega. Þetta er mjög
falleg tónlist, þótt ég segi sjálf frá.
Þetta er tónlist sem stendur okkur
nærri.“
Hljómsveitin fylgdi Mesópót
amíu eftir bæði hérlendis og
erlendis. Agnes segir sveitina svo
hafa verið komna langleiðina með
næstu plötu, en örlög hennar urðu
önnur en JÁTAKK.
„Hún lenti svo bara í ruslinu. Við
vorum ekki að tengjast henni nógu
mikið né nógu ánægð með hana,
svo við byrjuðum hreinlega alveg
upp á nýtt. Þannig að tæknilega
séð er þetta fjórða platan okkar
þótt þetta sé sú þriðja sem kemur
út, þriðja lenti bara í ruslinu.“
Eins og að eignast ungling
Hún segir þá plötu ekki formlega
hafa verið komna með nafn.
„Jú, kannski NEITAKK! Nei, en að
öllu gríni slepptu þá er það mikill
léttir að þessi plata sé komin út.
Við höfum lengi verið að spila sum
lögin á henni og því lengi verið með
þetta í maganum. Átta ár er langur
tími, þannig að þetta er smá eins og
að eignast ungling.“
Sykur fer um víðan völl í tón
listinni á nýju plötunni, en sveitin
hefur hingað til fyrst og fremst
verið þekkt sem danshljómsveit.
„Það er algjörlega
samhljómur á henni en
við erum undir áhrifum
margra mismunandi
stefna. Það eru popp
danslög sem fólk tengir
mest við hljómsveitina
en svo eru líka þynnku
kósílög, pönk og f leira.
Það er mikið í gangi á
þessari plötu.“
Með bjór í vasanum
Hún segir þó alls ekk
ert stefnuleysi ríkja á
plötunni heldur sé þetta
meira eins og bland í
poka, aðdáendur fá sitt
lítið af hverju ásamt því
að kynnast nýrri hlið á
hljómsveitinni. En hvað
an kom nafnið JÁTAKK?
„Þetta er eitthvað sem
við djókum mikið með.
Við erum alltaf að segja þetta,
ef við erum að fara eitthvert eða
gera eitthvað. Við reynum að segja
setningar í eins fáum orðum og við
getum. Eins og bjórívas. Það varð til
á tónleikaferðalagi erlendis þegar
við vorum með bjór í vasanum,
maður varð alltaf að vera með bjór
í vasanum annars var maður NEI
TAKK. Mjög mikill einkahúmor,“
segir Agnes hlæjandi og heldur svo
áfram: ,,En annars var kominn tími
á að gefa út og JÁTAKK virkaði bara
svo ótrúlega vel.“
Lagið Svefneyjar stendur Agnesi
nærri, en hún segir að margir gætu
túlkað það sem ástarlag, sem það
sé ekki.
„Lagið fjallar um dulúð, sem er
eitthvað sem ég tengi mikið við.
Þessi íslenska dulúð sem við höfum
fram yfir aðrar þjóðir. Huldufólk
og grjót. Það myndu allir halda að
þetta væri ástarlag, en ég vil ekki
segja of mikið.“
Sykur kemur næst fram utandag
skrár á Airwaves á Slippbarnum
þann 7. nóvember og svo á sjálfri
hátíðinni. Plötuna JÁTAKK er hægt
að nálgast á öllum helstu streymis
veitum. steingerdur@frettabladid.is
Sykur eignast ungling
Í dag gefur hljómsveitin Sykur út plötuna JÁTAKK, þeirra fyrsta
plata í heil átta ár. Sum lögin á henni hafa lengi fylgt þeim og því
sé í raun hægt að líkja þessu við að eignast ungling í stað barns.
VIÐ VORUM EKKI AÐ
TENGJAST HENNI
NÓGU MIKIÐ NÉ NÓGU ÁNÆGÐ
MEÐ HANA, SVO VIÐ BYRJUÐUM
HREINLEGA ALVEG UPP Á NÝTT.
ÞANNIG AÐ TÆKNILEGA SÉÐ ER
ÞETTA FJÓRÐA PLATAN OKKAR
ÞÓTT ÞETTA SÉ SÚ ÞRIÐJA SEM
KEMUR ÚT, ÞRIÐJA LENTI BARA
Í RUSLINU.
Hljómsveitina skipa Kristján Eldjárn, Agnes Björt Andradóttir, Stefán Finnbogason og Halldór Eldjárn. MYND/SAGA SIG
Plötuumslagið málaði myndlistar-
maðurinn Þrándur Þórarinsson.
2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
5
-9
F
A
C
2
4
1
5
-9
E
7
0
2
4
1
5
-9
D
3
4
2
4
1
5
-9
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K