Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 22
Í dvínandi bílasölu koma fram bílar öðru hvoru sem neita að lúta lögmálum markaðarins. Einn þessara bíla er nýr Ford Ranger sem selst eins og heitar lummur, hér heima sem erlendis. Pallbíll þessi keppir á markaði þar sem ríkir mikil samkeppni, og nægir að nefna þar bíla eins og Toyota Hilux, Nissan Navara og Mitsubishi L200. Fréttablaðið fékk Ford Ranger til prófunar fyrir skemmstu í vel útbúinni Wild­ trak­útgáfu, en segja má að þar sé hann farinn að nálgast mikið betur búna pallbíla eins og VW Amarok og Mercedes­Benz X­línu. Ford Ranger er fáanlegur í fjórum útgáfum og er grunnútgáfan XL sem er vinnuhestur fyrir verktaka. Með því að taka XLT fæst ágætlega búinn pallbíll með búnaði eins og loftkælingu, regnskynjara og Sync 1 upplýsingakerfinu. Enn bætist við búnaðarlistann í Limited­ og Wildtrak­útgáfunum og Wildtrak fær þar að auki stærri álfelgur, þakboga og títaníumskreytingar á yfirbyggingu. Hver rúmsentimetri nýttur Maður kemur ekki að tómum kofunum í Ford Ranger Wildtrak. Leðurinnrétting er á f lestum slitflötum og ökumannssæti er með rafstillingum á átta vegu. Stýrið er einnig leðurklætt en það er ekki með aðdrætti sem er ókostur. Innréttingin er annars vel útfærð og einfalt er að nota Sync 3 upplýsingakerfið, jafnvel með raddstýringu. Það er mikill munur að sitja í þessum bíl og horfa í kringum sig miðað við flesta aðra bíla. Maður situr hátt og er laus við breiða þakbita svo að útsýnið er Eins og vel heppnað hjónaband Tvöföld forþjappan tryggir að aflið kemur snemma inn og þó að 500 newtonmetra togið sé aðeins til staðar á 1.750-2.000 snúningum er tíu þrepa sjálfskiptingin það sem fullkomnar hjónabandið. Með átján tommu álfelgum og títaníum á ytra byrði eins og grillinu er útlitið kraftalegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Pallurinn er klæddur og með festingum í gólfi og ber 1.081 kíló. KOSTIR OG GALLAR FORD RANGER WILDTRAK- l VÉL: 2,0 l HESTÖFL: 213 l TOG: 500 NM l 0-100 KM 10,5 SEK. Eyðsla í blönduðum akstri: 8,2 l CO2: 235 g/km L/B/H: 5.359/2.163/1.848 mm Hæð undir: 237 mm Eigin þyngd: 2.309 kg Dráttargeta: 3.500 kg Burðargeta: 1.081 kg Verð frá: 7.690.000 kr. l Kraftur l Sjálfskipting l Útsýni l Enginn aðdráttur á stýri l Beygjuradíus gott og óskert. Bakkmyndavél er staðalbúnaður í Wildtrak svo ekki þarf að hafa áhyggjur af þeim hluta bílsins. Sjálfskiptingin er hefð­ bundin í notkun en ekkert ljós er til að sýna í hvaða stillingu hún er og verður maður að horfa á mæla­ borðið til þess að sjá í hvaða gír hann er. Gott pláss er í aftursætum og það liggur við að farið geti vel um þrjá fullorðna þar. Undir aftur­ sæti eru tvö stór geymsluhólf og það er kostur hversu vel er hugsað um að nýta hvern rúmsenti metra í þessum bíl fyrir geymsluhólf. Aflið nýtt fullkomlega Og þá er bara að vinda sér í skemmtilega þáttinn, sjálfan aksturinn. Af pallbíl að vera er þrusugaman að keyra þennan bíl með tveggja lítra 213 hestafla dísilvélinni. Tvöföld forþjappan tryggir að aflið kemur snemma inn og þó að 500 newtonmetra togið sé aðeins til staðar á 1.750­2.000 snúningum er tíu þrepa sjálf­ skiptingin það sem fullkomnar hjónabandið með því að nota aflið þar sem það skilar sér best. Sjálfskiptingin sem er ný er hefð­ bundin, en skiptingarnar eru nógu fljótar til að hafa ekki áhrif á upptak bílsins og það sem betra er, eldsnöggar niðurskiptingar. Þegar hann er kominn í sjöunda gír eru aflhlutföllin 1:1 og eru því næstu þrír gírar eins og yfirgírar. Það er svo bara eins og bónus hvað tveggja lítra vélin gerir þetta allt saman áreynslulaust og án þess að vera of hávær. Rafmagnsaðstoð í stýri Eins og gefur að skilja eru pall­ bílar ekki þeir þægilegustu í akstri, sérstaklega með pallinn tóman, og þegar haft er í huga að Wildtrak­ prófunarbíllinn var á 18 tommu felgum hefði fyrirfram mátt búast við frekar höstum akstri. Þessu er þó alls ekki þannig farið því Ford hefur náð að endurstilla fjöðrunina, meðal annars með nýrri jafnvægisstöng að framan auk þess sem uppgefinn loftþrýstingur í dekkjum er minni en áður. Loks er bíllinn léttur og mátulega næmur í stýri enda núna kominn með raf­ magnsaðstoð sem gerir sitt til að betrumbæta aksturseiginleikana, og um leið öryggið með virkum veglínuskynjara og þess háttar. Eini ljóður á annars fullkomnum akstri er hversu mikill beygjuradíusinn er og eins gott að gera ráð fyrir góðu plássi ef snúa þarf Ranger við. Góð kaup í vel búnum bíl Þegar við skoðum verðið á Ford Ranger er rétt að skoða verð á Double Cab grunnútgáfu annars vegar og Wildtrak hins vegar og þá í samanburði við nokkra aðra dýrari pallbíla. Grunnverð Ford Ranger Double Cab XL er 6.490.000 krónur sem er nánast á pari við verð á grunnútgáfu Toyota Hilux, sem er 6.480.000 krónur. Þegar komið er upp í vel búna Wildtrak­útgáfuna sem kostar frá 7.690.000 krónum þarf að fara upp í VX­útgáfur til að fá sambærilegan búnað en þær eru frá 7.950.000 krónum. Í búnaði og afli stenst Ranger Wildtrak líka ágætlega samanburð við VW Amarok V6 en grunnverð hans er 8.190.000 krónur. Kannski kemur Nissan Navara Tekna best út úr saman­ burðinum við Ranger Wildtrak en þar fer saman mjögt vel búinn bíll með svipaða eiginleika á nákvæm­ lega sama verði. Því er óhætt að segja að bestu kaupin í nýjum Ford Ranger liggi einmitt í vel búnum útgáfum eins og Wildtrak. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Maður kemur ekki að tómum kofunum í Ford Ranger Wildtrak. Leðurinnrétting er á flestum slitflötum og ökumannssæti er með rafstillingum á átta vegu. 6 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 5 -A 9 8 C 2 4 1 5 -A 8 5 0 2 4 1 5 -A 7 1 4 2 4 1 5 -A 5 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.