Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 10
Þurftir þú að skafa í morgun? Þú færð rúðusköfurnar og allar hinar vetrarvörurnar fyrir bílinn hjá Olís. 10% afsláttur af bílavörum fyrir Vinahóp Olís* Vinur við veginn *Lykil- og korthafar Olís og ÓB eru sjálfkrafa meðlimir í Vinahópnum og njóta afsláttarkjara þegar greitt er með lykli eða korti. HANDBOLTI Þeir handboltadómarar sem Fréttablaðið náði í skottið á í gær eru vægast sagt furðu lostnir yfir dómi aganefndar HSÍ um Kristin Guðmundsson og Kristján Kristjánsson. Báðir komust hjá refsingu frá aganefndinni þrátt fyrir ummæli sín um dómara í leik ÍBV og Aftureldingar. „Ég er ekkert spenntur að fara til Vestmannaeyja og dæma eftir þetta,“ sagði einn og annar bætti við: „Dómarar eru ósáttir og það er, held ég, enginn sem bíður spenntur eftir að fara til Vestmannaeyja og dæma leik ÍBV og Fjölnis. Hvort menn segja einfaldlega nei við að fara og dæma í Vestmannaeyjum verður að koma í ljós.“ Dómarar í Olís-deild karla hafa ekkert hist formlega en eðlilega talað saman. Og það virðist vera þungt í þeim hljóðið, svo vægt sé til orða tekið. Ekki er mælst til að þeir séu að tjá sig um dóminn en svo virðist sem dómurinn hafi kveikt bál sem erfitt verði að slökkva. Þess má geta að aganefnd HSÍ er sjálfstætt starfandi og tengist HSÍ engum böndum – líkt og þekkist í fótboltanum. Dómaranefnd HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar dómsins þar sem niðurstaðan er hörmuð og hún fordæmd. Segja málið grafal- varlegt þar sem vegið hafi verið að hlutleysi og æru dómaranna. Þá sé starfsumhverfi dómara eitt stórt spurningarmerki eftir úrskurðinn og lýsti dómaranefndin áhyggjum af framtíð dómara í handbolta. Tuðmenning á hliðarlínunni Merkileg tuðmenning er í hand- boltanum á Íslandi þegar kemur Refsilaust tuð fær tvær mínútur Þjálfarar í handbolta leyfa sér að segja ótrúlegustu hluti um dómara leiksins. Steininn tók úr þegar annar þjálfari ÍBV hraunaði yfir dómara en slapp við leikbann. Kurr innan handboltahreyfingarinnar í kjölfar dóms aganefndar HSÍ sem er sjálfstæð nefnd. Ömurleg ummæli í garð dómara á Íslandi Það þarf ekkert að skoða það neitt rosalega mikið að þessi dómur sem kemur Selfyssingum í hraðaupphlaup sem þeir fá víti úr er algjör þvæla. Kristinn Guðmundsson Mér fannst dómararnir missa hausinn. Sveinn Aron Sveinsson Þeir ná upp baráttu og berja okkur í tætlur. Þeir gerðu það vel. Þeir komust upp með það, því dómararnir leyfðu þeim að berja okkur. Heimir Óli Heimisson Ég skil ekki hvernig „standard- inn“ getur verið svona slakur í efstu deild. Halldór Jóhann Sigfússon Á upptökunni sést einnig þegar þjálfari Stjörnunnar hendir vatnsflösku dómaranna yfir ritaraborðið. Yfirlýsing KA Mér fannst þetta á köflum vera sirkus og þetta dómarapar á ekki heima í þessari deild. Kári Garðarsson Dómararanefnd HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu vegna dómsins þar sem niðurstaðan er hörmuð. NORDICPHOTOS/GETTY að tuði við dómara leiksins. Þjálf- arar og aðrir starfsmenn tuða við dómara út í eitt nánast allan leikinn og kenna dómurum um hvert atriði sem liðin klúðra sjálf. Starfsfriður er enginn og þjálfarar haga sér eins og verstu börn á meðan leikur stendur og eftir leik. Í BS-ritgerð í íþróttafræði í Háskóla Íslands, sem heitir Sam- skipti handknattleiksdómara, segir: „Stór hluti þjálfara sagðist hafa reynt að hafa áhrif á ákvarð- anir dómara. Þjálfarar bera ekki næga virðingu fyrir dómurum og helmingur dómara telur að aðeins sumir þjálfarar beri virðingu fyrir sér.“ Henr y Birg ir Gu nnarsson, umsjónarmaður Seinni Bylgjunn- ar, segir að það sé svo merkilegt að hann hafi skrifað pistil um þessa tuðmenningu í handboltanum fyrir um 10 árum sem eigi enn jafn mikinn rétt á sér í dag. „Þá var tuðið reyndar aðeins verra en það er enn þá nokkuð í land í þessum efnum. Sé horft yfir hafið, til Bandaríkj- anna og í NFL-deildina, þá sést aldr- ei dómaratuð. Nánast aldrei. Þar er borin virðing fyrir dómurum eins og á að vera. Í Seinni bylgjunni hefur verið kallað eftir því að dómararar fái vinnufrið því heilt yfir hafa þeir staðið sig vel. Ef þessi menning breytist ekki þá hljóta menn að skoða að taka upp harðari refsingar í leit að starfsfriði fyrir dómarana.“ Það þarf ekki að leita sérstaklega lengi til að finna viðtöl við þjálfara þar sem þeir leggja dómurunum línurnar og segja þeim til synd- anna. benediktboas@frettabladid.is 2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því sænska undir stjórn Kristjáns  Andréssonar í fyrri æfingaleik liðanna af tveimur í dag. Strákarnir okkar héldu til Svíþjóðar í gær og mæta heima- mönnum í Kristianstad klukkan 17.00 að íslenskum tíma í kvöld en á sunnudaginn fer leikurinn fram í Karls krona. Þetta eru síðustu æfingaleikir liðsins áður en Guð- mundur Þ. Guðmundsson þarf að tilkynna æfingahóp fyrir EM 2020 í janúar næstkomandi og því tæki- færi fyrir leikmenn sem eru á jaðri leikmannahópsins að tryggja sér farseðil til Svíþjóðar í janúar þar sem riðill Íslands fer fram. Þetta verður í fjórða sinn sem íslenska liðið mætir Svíþjóð undir stjórn Kristjáns og hafa Strákarnir okkar átt góðu gengi að fagna til þessa. Þremur leikjum hefur lokið með sigri Íslands, þar á meðal tveggja marka sigur á EM 2018. Í þremur æfingaleikjum hefur Ísland unnið tvo og Svíþjóð einn til þessa en Svíar fá tækifæri til að rétta þá tölfræði af um helgina. Ljóst er að verkefni íslenska liðs- ins verður erfitt gegn silfurliðinu frá Evrópumótinu 2018. Þegar hafa Arnór Þór Gunnarsson, Arnar Freyr Arnarsson og Daníel Þór Ingason þurft að draga sig út úr hópnum. Þá gátu Guðjón Valur Sigurðsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Ólafur Gústafsson og Ómar Ingi Magnús- son ekki gefið kost á sér í þetta verk- efni vegna smávægilegra meiðsla. Fyrir vikið eru margir í hópnum sem hafa verið að banka á dyrnar hjá landsliðinu undanfarin ár og einn nýliði, Seltirningurinn Viggó Kristjánsson, sem leikur með Leip- zig. Viggó kvaðst spenntur fyrir komandi verkefni þegar Fréttablað- ið spjallaði við hann á dögunum. „Ég hef alveg verið að gæla við það síðustu ár að fá tækifæri með lands- liðinu en þar sem ég hef ekkert verið í síðustu hópum liðsins þá var ég ekkert mikið að pæla í því í síðustu verkefnum þess. Það er stefnan að festa mig í sessi í hópnum í fram- tíðinni og til þess þarf ég að halda áfram að standa mig vel með Leipzig og í æfingunum og leikjunum með landsliðinu,“ sagði Viggó, aðspurður út í landsliðið. – kpt Síðustu tækifærin til að komast í EM-hópinn Aron Pálmarsson er leikjahæsti leikmaður íslenska hópsins með 139 leiki. Hann er einn þriggja leikmanna íslenska hópsins með yfir hundrað leiki ásamt Kára Kristjáni og Ólafi Guðmundssyni. 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 5 -9 F A C 2 4 1 5 -9 E 7 0 2 4 1 5 -9 D 3 4 2 4 1 5 -9 B F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.