Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 10
Þurftir þú að
skafa í morgun?
Þú færð rúðusköfurnar og
allar hinar vetrarvörurnar
fyrir bílinn hjá Olís.
10%
afsláttur af
bílavörum fyrir
Vinahóp Olís*
Vinur við veginn
*Lykil- og korthafar Olís og ÓB eru sjálfkrafa
meðlimir í Vinahópnum og njóta afsláttarkjara
þegar greitt er með lykli eða korti.
HANDBOLTI Þeir handboltadómarar
sem Fréttablaðið náði í skottið á í
gær eru vægast sagt furðu lostnir
yfir dómi aganefndar HSÍ um
Kristin Guðmundsson og Kristján
Kristjánsson. Báðir komust hjá
refsingu frá aganefndinni þrátt
fyrir ummæli sín um dómara í leik
ÍBV og Aftureldingar.
„Ég er ekkert spenntur að fara
til Vestmannaeyja og dæma eftir
þetta,“ sagði einn og annar bætti
við: „Dómarar eru ósáttir og það er,
held ég, enginn sem bíður spenntur
eftir að fara til Vestmannaeyja og
dæma leik ÍBV og Fjölnis. Hvort
menn segja einfaldlega nei við að
fara og dæma í Vestmannaeyjum
verður að koma í ljós.“
Dómarar í Olís-deild karla hafa
ekkert hist formlega en eðlilega
talað saman. Og það virðist vera
þungt í þeim hljóðið, svo vægt sé
til orða tekið. Ekki er mælst til að
þeir séu að tjá sig um dóminn en svo
virðist sem dómurinn hafi kveikt
bál sem erfitt verði að slökkva.
Þess má geta að aganefnd HSÍ er
sjálfstætt starfandi og tengist HSÍ
engum böndum – líkt og þekkist í
fótboltanum.
Dómaranefnd HSÍ sendi frá sér
yfirlýsingu í kjölfar dómsins þar
sem niðurstaðan er hörmuð og
hún fordæmd. Segja málið grafal-
varlegt þar sem vegið hafi verið að
hlutleysi og æru dómaranna. Þá sé
starfsumhverfi dómara eitt stórt
spurningarmerki eftir úrskurðinn
og lýsti dómaranefndin áhyggjum
af framtíð dómara í handbolta.
Tuðmenning á hliðarlínunni
Merkileg tuðmenning er í hand-
boltanum á Íslandi þegar kemur
Refsilaust tuð fær tvær mínútur
Þjálfarar í handbolta leyfa sér að segja ótrúlegustu hluti um dómara leiksins. Steininn tók úr þegar annar þjálfari ÍBV hraunaði yfir
dómara en slapp við leikbann. Kurr innan handboltahreyfingarinnar í kjölfar dóms aganefndar HSÍ sem er sjálfstæð nefnd.
Ömurleg ummæli í garð dómara á Íslandi
Það þarf ekkert að skoða það
neitt rosalega mikið að þessi
dómur sem kemur Selfyssingum
í hraðaupphlaup sem þeir fá víti
úr er algjör þvæla.
Kristinn Guðmundsson
Mér fannst dómararnir
missa hausinn.
Sveinn Aron Sveinsson
Þeir ná upp baráttu og berja
okkur í tætlur. Þeir gerðu það vel.
Þeir komust upp með það, því
dómararnir leyfðu þeim að berja
okkur.
Heimir Óli Heimisson
Ég skil ekki hvernig „standard-
inn“ getur verið svona slakur
í efstu deild.
Halldór Jóhann Sigfússon
Á upptökunni sést einnig
þegar þjálfari Stjörnunnar hendir
vatnsflösku dómaranna yfir
ritaraborðið.
Yfirlýsing KA
Mér fannst þetta á köflum
vera sirkus og þetta dómarapar
á ekki heima í þessari deild.
Kári Garðarsson
Dómararanefnd HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu vegna dómsins þar sem niðurstaðan er hörmuð. NORDICPHOTOS/GETTY
að tuði við dómara leiksins. Þjálf-
arar og aðrir starfsmenn tuða við
dómara út í eitt nánast allan leikinn
og kenna dómurum um hvert atriði
sem liðin klúðra sjálf. Starfsfriður
er enginn og þjálfarar haga sér
eins og verstu börn á meðan leikur
stendur og eftir leik.
Í BS-ritgerð í íþróttafræði í
Háskóla Íslands, sem heitir Sam-
skipti handknattleiksdómara,
segir: „Stór hluti þjálfara sagðist
hafa reynt að hafa áhrif á ákvarð-
anir dómara. Þjálfarar bera ekki
næga virðingu fyrir dómurum og
helmingur dómara telur að aðeins
sumir þjálfarar beri virðingu fyrir
sér.“
Henr y Birg ir Gu nnarsson,
umsjónarmaður Seinni Bylgjunn-
ar, segir að það sé svo merkilegt að
hann hafi skrifað pistil um þessa
tuðmenningu í handboltanum
fyrir um 10 árum sem eigi enn jafn
mikinn rétt á sér í dag. „Þá var tuðið
reyndar aðeins verra en það er enn
þá nokkuð í land í þessum efnum.
Sé horft yfir hafið, til Bandaríkj-
anna og í NFL-deildina, þá sést aldr-
ei dómaratuð. Nánast aldrei. Þar er
borin virðing fyrir dómurum eins
og á að vera.
Í Seinni bylgjunni hefur verið
kallað eftir því að dómararar fái
vinnufrið því heilt yfir hafa þeir
staðið sig vel. Ef þessi menning
breytist ekki þá hljóta menn að
skoða að taka upp harðari refsingar
í leit að starfsfriði fyrir dómarana.“
Það þarf ekki að leita sérstaklega
lengi til að finna viðtöl við þjálfara
þar sem þeir leggja dómurunum
línurnar og segja þeim til synd-
anna.
benediktboas@frettabladid.is
2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handbolta mætir því sænska undir
stjórn Kristjáns Andréssonar í
fyrri æfingaleik liðanna af tveimur
í dag. Strákarnir okkar héldu til
Svíþjóðar í gær og mæta heima-
mönnum í Kristianstad klukkan
17.00 að íslenskum tíma í kvöld en
á sunnudaginn fer leikurinn fram
í Karls krona. Þetta eru síðustu
æfingaleikir liðsins áður en Guð-
mundur Þ. Guðmundsson þarf að
tilkynna æfingahóp fyrir EM 2020
í janúar næstkomandi og því tæki-
færi fyrir leikmenn sem eru á jaðri
leikmannahópsins að tryggja sér
farseðil til Svíþjóðar í janúar þar
sem riðill Íslands fer fram.
Þetta verður í fjórða sinn sem
íslenska liðið mætir Svíþjóð undir
stjórn Kristjáns og hafa Strákarnir
okkar átt góðu gengi að fagna til
þessa. Þremur leikjum hefur lokið
með sigri Íslands, þar á meðal
tveggja marka sigur á EM 2018. Í
þremur æfingaleikjum hefur Ísland
unnið tvo og Svíþjóð einn til þessa
en Svíar fá tækifæri til að rétta þá
tölfræði af um helgina.
Ljóst er að verkefni íslenska liðs-
ins verður erfitt gegn silfurliðinu
frá Evrópumótinu 2018. Þegar hafa
Arnór Þór Gunnarsson, Arnar Freyr
Arnarsson og Daníel Þór Ingason
þurft að draga sig út úr hópnum.
Þá gátu Guðjón Valur Sigurðsson,
Stefán Rafn Sigurmannsson, Ólafur
Gústafsson og Ómar Ingi Magnús-
son ekki gefið kost á sér í þetta verk-
efni vegna smávægilegra meiðsla.
Fyrir vikið eru margir í hópnum
sem hafa verið að banka á dyrnar
hjá landsliðinu undanfarin ár og
einn nýliði, Seltirningurinn Viggó
Kristjánsson, sem leikur með Leip-
zig. Viggó kvaðst spenntur fyrir
komandi verkefni þegar Fréttablað-
ið spjallaði við hann á dögunum.
„Ég hef alveg verið að gæla við það
síðustu ár að fá tækifæri með lands-
liðinu en þar sem ég hef ekkert verið
í síðustu hópum liðsins þá var ég
ekkert mikið að pæla í því í síðustu
verkefnum þess. Það er stefnan að
festa mig í sessi í hópnum í fram-
tíðinni og til þess þarf ég að halda
áfram að standa mig vel með Leipzig
og í æfingunum og leikjunum með
landsliðinu,“ sagði Viggó, aðspurður
út í landsliðið. – kpt
Síðustu tækifærin til að
komast í EM-hópinn
Aron Pálmarsson er
leikjahæsti leikmaður
íslenska hópsins með 139
leiki. Hann er einn þriggja
leikmanna íslenska hópsins
með yfir hundrað leiki
ásamt Kára Kristjáni og
Ólafi Guðmundssyni.
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-9
F
A
C
2
4
1
5
-9
E
7
0
2
4
1
5
-9
D
3
4
2
4
1
5
-9
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K