Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 29
Í ár heldur Scania upp á 50 ára afmæli V8 vélarinnar sem hefur verið flagg- skip þeirra og ekki að ástæðulausu að bílar með V8 mótor hafa fengið nafnbótina „King of the Road“. Bjarni Arnarson Scania vörubifreiðar hafa um árabil verið söluhæstu vörubifreiðar landsins og er Hiab einn stærsti framleiðandi í heimi á hleðslukrönum fyrir vörubíla. Í ár heldur Scania upp á 50 ára afmæli V8 vélarinnar sem hefur verið f laggskip þeirra og ekki að ástæðulausu að bílar með V8 mótor hafa fengið nafnbótina „King of the Road“,“ segir Bjarni Arnarson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Kletti. „Í dag er Scania eini fram- leiðandi vörubifreiða sem getur boðið V8 Euro 6 vélar, sem gefur þeim sérstöðu á sínum markaði. Scania hefur skapað sér traustan sess hér á landi og leggur Klettur mikinn metnað í að þjónusta við- skiptavini sína sem best. Opið er á vörubílaverkstæðinu til kl. 23.30 og í öllum deildum er bakvakt allan sólarhringinn allan ársins hring. Jafnframt höfum við opnað þjónustuumboð á Akureyri til að auka þjónustuna við viðskipta- vini okkar,“ segir Bjarni. Nýjungar frá Hiab Vörulína og undirtektir Hiab hafa sennilega aldrei verið sterkari en Hiab hefur framleitt hleðslu- krana óslitið frá 1944. „Undan- farið hefur Hiab kynnt marga nýja krana og tækninýjungar og má þar helst nefna nýja kynslóð af HiPro stjórnkerfinu sem er það fullkomnasta sem völ er á í hleðslukrönum en það býður upp á mikið vökvaf læði og ein- staka samkeyrslu og nákvæmni á hreyfingum kranans,“ upplýsir Bjarni. „Aðrar spennandi nýjungar eru ASC búnaður (Automatic Speed Control) sem eykur lyftigetu og stillir af hámarkshraða sjálfvirkt; PFD (Pump Flow Distribution) sem jafnar út vökvaf læði í réttu hlutfalli miðað við það vökva- f læði sem er til ráðstöfunar en með því fæst ótrúleg nákvæmni á hreyfingar kranans; Hiab VSL plus stöðugleikakerfi sem er afar fullkomið og býður upp á hámarksstöðugleika óháð í hvaða stöðu stoðfætur eru hverju sinni og eykur þar með öryggi bíls og krana; Hiab Endurance sem er ný umhverfisvæn yfirborðs- meðhöndlun á lakki krananna sem byggir á nanótækni og veitir hámarks vörn og endingu. Þetta eru aðeins örfá dæmi um þær nýjungar sem komið hafa fram að undanförnu,“ segir Bjarni. Ný Scania R650 8x4*4 Kranaþjónusta Rúnars Braga- sonar fékk af hentan í síðustu viku glæsilega Scania R650 8x4*4 með Hiab 408 HiPro hleðslukrana sem er um það bil 40 tm. Ábygg- ingin er frá Sörling í Svíþjóð og er pallurinn meðal annars með víbrara, gámalásum og upphitun. Ábyggingin er einstaklega lág á bílnum sem bætir alla umgengni. Góðar hirslur eru síðan á hliðum bílsins og er hann með stoðfætur að aftan. Ný Scania R650 10x4*6 Urði ehf. og ESJ vörubílar ehf. eru um þessar mundir að taka í notkun stórglæsilega Scania R650 10x4*6 með Hiab 1058 HiPro hleðslukrönum ásamt Jib (fingri) en þessir kranar eru í 90-100 tm klassanum. Ábyggingin er frá Tyllis í Finnlandi og er hún sér- sniðin að þörfum eiganda með tilliti til umgengni og festinga á vörum. Stoðfætur eru bæði fremst á bíl, út frá krana og aftast sem veitir 100% lyftigetu allan snúningsferilinn. Ábyggingin er einstaklega lág á bílnum. Góðar hirslur eru síðan á hliðum. V8 afmælisútgáfur Allir bílarnir eru af Scania V8 afmælisgerð með 650 ha. 3.300 Nm V-8 vélini sem er 16,4 l. Öku- mannshús er CR20N (millihátt), búið öllum helstu þægindum sem völ er á eins og leðuráklæði, lúxuskoju, ísskáp, margmiðl- unarkerfi með snertiskjá, GPS leiðsögukerfi og hraðastilli með fjarlægðarnema og f leira. Öku- mannshúsið býður upp á besta útsýni sem gerist í dag í vörubíl, frábært aðgengi að öllu sem við- kemur mælaborði og innstig inn í húsið er gott Afhenda afmælisútfærslu Scania Klettur mun afhenda nýja Scania R650 kranabíla með 50 ára afmælisútfærslu V8 á næstunni. Hjá Kletti hefur verið mikil aukning á afhendingu kranabíla að undanförnu og Hiab hleðslukrana. Gröfuþjónusta Rúnars Bragasonar ehf. fékk þessa Scania R650 8x4*4 með Hiab krana og Sörling ábyggingu afhenta á dögunum. ESJ vörubílar ehf. er að fá þessa Scania R650 10x4*6 með Hiab krana og Tyllis ábyggingu afhenta. Urði ehf. er að fá þessa Scania R650 10x4*6 með Hiab krana og Tyllis ábyggingu afhenta. KYNNINGARBLAÐ 13 F Ö S T U DAG U R 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 5 -B D 4 C 2 4 1 5 -B C 1 0 2 4 1 5 -B A D 4 2 4 1 5 -B 9 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.