Fréttablaðið - 25.10.2019, Side 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Fyrirtækið Aflvélar er að byrja vetrarvertíðina, en þar er meðal annars hægt að fá allt
sem þarf fyrir snjóruðning; snjó-
ruðningsbúnað, sanddreifara, salt-
dreifara og snjóblásara og ýmsar
aðrar vinnuvélar frá vönduðustu
og þekktustu merkjum heims. Afl-
vélar selja vörur sem henta ýmsum
ólíkum fyrirtækjum og þar fást
bæði ódýrari græjur sem og þær
allra dýrustu og flottustu.
„Við erum með mikið af tækjum
fyrir flugvelli,“ segir Friðrik Ingi
Friðriksson, forstjóri Aflvéla. „Við
höfum allar gerðir af snjóruðnings-
búnaði ásamt sameykjum sem eru
notuð til að hreinsa flugbrautir. Við
erum líka með risastóra dreifara
sem dreifa 40 metra breidd af
afísingarefni. Eins erum við með
alls kyns sópa; götusópa, gang-
stéttarsópa og önnur slík tæki.
Það er svo ekki langt síðan við
hófum að bjóða aðra þjónustu, en
það er að breyta vörubílum í snjó-
ruðningstæki. Við setjum í þá nýjar
vökvadælur, vökvakerfi og rafkerfi
og festum tennur og dreifara á
bílana svo þeir séu tilbúnir til
vetrarnotkunar,“ segir Friðrik Ingi.
„Við setjum upp nýtískulegt alhliða
kerfi sem er samstillt í tölvu og
gerir manni kleift að stýra nánast
öllum hreyfingum með einum
stýripinna. Á sumrin er síðan hægt
að nota sama stýrikerfi til að lyfta
pallinum.
Við höfum breytt flugvallarvöru-
bílum með þessum hætti síðan árið
2008, þannig að við höfum orðið
góða reynslu, en fyrir tveimur
árum byrjuðum við að bjóða fleiri
fyrirtækjum þessa þjónustu,“ segir
Friðrik Ingi.
Við vorum líka að fá nýjar tennur
fyrir snjóruðning, sem eru af dýrari
gerðinni,“ segir Friðrik Ingi. „Þær
hafa marga kosti sem þær ódýrari
hafa ekki, bæði hvað varðar öryggi
og afköst. Það er hröð þróun á
þessu sviði.“
Bestu dempararnir og
bilanagreiningartölvur
„Við höfum líka verið að færa
okkur á nýja markaði og erum
komin með umboð fyrir gæða-
demparana frá Koni, sem eru bæði
fyrir vörubíla og venjulega bíla sem
fá mikla notkun,“ segir Friðrik Ingi.
„Þeir sem eru gamlir í hettunni
þekkja þetta merki vel og margir
segja að þetta séu bestu demparar
sem til eru.
Svo erum við líka að selja
bilanagreiningartölvur frá Texa
inn á bílaverkstæði og aðra stærri
notkunaraðila, eins og verktaka
og þess háttar,“ segir Friðrik Ingi.
„Það er margt nýtt og spennandi að
gerast í þeim geira.
Nú erum við að byrja með nýja
og handhæga tölvu frá Texa sem
les upplýsingar frá skynjurum í
ventlum á dekkjum bílsins,“ segir
Friðrik Ingi. „Þessir skynjarar gefa
upplýsingar um loftþrýsting og
fleira. Við getum ekki bara lesið
upplýsingarnar frá ventlunum
heldur getum við líka forritað
skynjarana.“
Allt fyrir slátt og
ýmis þrif
„Fyrir utan þetta erum við
líka með línu fyrir sum-
arið fyrir slátt. Við erum
með umhverfisvænar
sláttuvélar og sláttuorf
og fleira í þeim dúr, en
þetta er allt drifið áfram
af lithíum rafhlöðum
en ekki bensíni, sem
er mjög spennandi ný
þróun,“ segir Friðrik
Ingi. „Við erum
líka með litla
trakt ora fyrir
slátt sem henta
vel bæði fyrir
bæjarfélög og
verktaka.
Þegar kemur að minni
vélunum erum við með
gólfþvottavélar sem þrífa
gólf og henta vel fyrir
íþróttahús, verslanir og
önnur stærri rými,“ segir
Friðrik Ingi. „Mest selda
slíka vélin er i-mop, lítil og
umhverfisvæn vél sem er
drifin áfram af litíum-raf-
hlöðum en afkastar samt
sem áður álíka miklu og stóru
gólfþvottavélarnar. Þetta eru
litlar vélar sem komast á miklu
fleiri staði en stóru vélarnar og
henta því bæði til að þrífa minni
og stærri svæði, jafnvel litlar skrif-
stofur. Það er magnað og einstakt
að þessi litla vél geti skilað
sömu afköstum og stóru
vélarnar.
Svo erum við líka að
TEXA TPS er forritari fyrir dekkja-
skynjara sem gefa upplýsingar um
loftþrýsting og fleira í dekkjum.
Aflvélar selja líka götusópa. Þessi er útbúinn með segulstáli að framan.
i-mop gólfþvottavélin er
lítil og umhverfisvæn og
afkastar álíka miklu og
stóru vélarnar.
Cleanfix gólf-
þvottaróbot.
Vélin forðast
hindranir og
er frábær fyrir
iðnaðarfyrir-
tæki, verslunar-
miðstöðvar,
verslanir,
íþróttasali eða
önnur svæði
þar sem mikil
vinna fer í þrif.
Það er hægt að festa þessar snjótennur á dráttarvélar til að ryðja snjó..
Framhald af forsíðu ➛
bjóða gólfþvottaróbot frá Cleanfix
í Sviss. Vélin tekur eftir því hvort
það er fólk eða aðrar hindranir á
leiðinni og keyrir í kringum þær,“
segir Friðrik Ingi. „Þetta er frábært
fyrir iðnaðarfyrirtæki, verslunar-
miðstöðvar, verslanir, íþróttasali
eða önnur svæði þar sem mikil
vinna fer í þrif. Það sparar pening og
mannskap að hafa róbot til að sinna
þessu.
Að sjálfsögðu sinnum við svo
líka allri þjónustu í kringum þessi
tæki, erum með varahluti og annað
þess háttar,“ segir Friðrik Ingi.
„Hjá okkur færðu alla viðeigandi
þjónustu og við sinnum henni vel á
eigin verkstæði.“
Stór lager og gott úrval
„Við erum með mjög sterk vöru-
merki, þetta eru allt vörur í hæsta
gæðaflokki,“ segir Friðrik Ingi. „Við
eigum líka mikið til á lager og erum
að undirbúa okkur fyrir veturinn
með stórum lager. Þannig að við
erum með frábærar vörur í miklu
úrvali, en í þessum bransa getur oft
tekið langan tíma að fá vörur sem
þarf að sérpanta.“
Umhugað um umhverfið
„Okkur er mjög umhugað um
umhverfismál og það kemur fram á
margan hátt hjá okkur. Nú erum við
komin með fimm rafbíla í notkun
og við erum með hleðslustöðvar í
fyrirtækinu sem eru einnig í boði
fyrir viðskiptavini okkar,“ segir
Friðrik Ingi. „Þar að auki eru þær
lausnir sem við bjóðum í tækjum
með þetta í huga. Við bjóðum nú
mikið af vélum sem nota rafgeyma í
stað jarðefnaeldsneytis. Þar að auki
erum við að bjóða lausnir í vökva-
kerfum fyrir vörubíla með dælum
sem spara mikla orku og þar með
eldsneyti.“
Það er svo ekki
langt síðan við
hófum að bjóða aðra
þjónustu, en það er að
breyta vörubílum í
snjóruðnings-
tæki.
Hjá Aflvélum er hægt að fá allt sem þarf til snjóruðnings. Hér sést fullbúinn snjóruðningsbíll sem er með öllu tilheyrandi, bæði tönn og dreifara.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-C
2
3
C
2
4
1
5
-C
1
0
0
2
4
1
5
-B
F
C
4
2
4
1
5
-B
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K