Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 21
Við reynum að hafa biðtímann eins stuttan og við mögulega getum því við vitum að það er gríðar- lega mikilvægt fyrir viðskiptavini okkar að halda atvinnutækjum sínum í vinnu. Einkunnarorð Sleggjunnar eru fagmennska, áræðni og traust,“ segir Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri Sleggjunnar, þjónustuverkstæðis atvinnutækja. „Við tökum vel á móti öllum og viðskiptavinahópurinn er fjöl- breyttur; allt frá stórum landflutn- ingafyrirtækjum og hópferða- og verktakafyrirtækjum til einstakl- inga með jafnvel bara einn bíl eða tæki sem þarf að þjónusta,“ upp- lýsir Guðmundur sem í Sleggjunni býður upp á alhliða þjónustu fyrir vörubifreiðar, hópbifreiðar, sendi- bíla, aftanívagna og tengivagna. „Alhliða þjónusta er ansi vítt hugtak en það má samt segja sem svo að við þjónustum nær allar stærri atvinnubifreiðar með nánast hvað sem er,“ segir Guðmundur í Sleggjunni sem starfar óháð bíla- tegundum og tekur því allar helstu bílategundir til viðgerða. „Við gerum bilanagreiningar með fullkomnum bilanagrein- ingartölvum og getum með þeim tengst öllum helstu bíltegundum,“ upplýsir Guðmundur. Á þjónustuverkstæði Sleggj- unnar er líka boðið upp á viðgerðir á bremsum, véla- og rafmagns- viðgerðir og viðgerðir á hjóla- og drifbúnaði. „Við erum með fullkomna smuraðstöðu og getum búið til flestar stærðir og gerðir af glussa- lögnum, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Guðmundur. Framúrskarandi fyrirtæki Sleggjan byggir á áratuga reynslu í atvinnutækjabransanum og hefur frá fyrstu tíð verið fjölskyldu- fyrirtæki með traustan hóp starfs- manna. „Frá árinu 2014 höfum við verið í hópi framúrskarandi fyrirtækja hjá CreditInfo og erum mjög stolt af þeirri viðurkenningu,“ segir Guð- mundur. Ný aðstaða var tekin í notkun í nóvember 2018 þegar Sleggjan flutti í nýtt og glæsilegt atvinnu- húsnæði í Desjamýri 10 í Mos- fellsbæ. Mikið var lagt í að gera vinnuumhverfi starfsmanna eins og best verður á kosið og er verk- stæðið mjög vel tækjum búið. „Mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustu hjá okkur og höfum við reynt að anna þeirri eftirspurn eftir bestu getu. Við reynum að hafa biðtímann eins stuttan og við mögulega getum því við vitum að það er gríðarlega mikilvægt fyrir viðskiptavini okkar að halda atvinnutækjum sínum í vinnu,“ segir Guðmundur. Hann tekur fram að Sleggjan geti alltaf bætt við sig góðu starfsfólki. „Það er alltaf þörf fyrir mann- skap með reynslu og þekkingu í þessum bransa. Því geta áhuga- samir haft samband og séð hvort við höfum eitthvað í boði sem gæti hentað þeim.“ Sleggjan er í Desjamýri 10, Mos- fellsbæ. Tímapantanir í síma 588 4970. Opnunartími verkstæðis er mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 8 til 17 og föstudaga frá klukkan 8 til 16. Frekari upplýsingar um þjónustuþætti Sleggjunnar á sleggjan.is og Facebook undir Sleggjan þjónustuverkstæði. Fagmennska, áræðni og traust Sleggjan, þjónustuverkstæði atvinnutækja er framúrskar- andi fyrirtæki sem býður alhliða þjónustu fyrir vörubif- reiðar, hópbifreiðar, sendibíla, aftanívagna og tengivagna. Komið er ár síðan Sleggjan flutti starfsemi sína í glæsilegt atvinnuhúsnæði að Desjamýri 10.Hjá Sleggjunni er fullkomin smuraðstaða og búnar til flestar stærðir og gerðir af glussalögnum. Guðmundur Björnsson er framkvæmdastjóri Sleggjunnar.Alhliða þjónusta fyrir vörubifreiðar, hópbifreiðar, sendibíla, aftanívagna og tengivagna er aðalsmerki Sleggjunnar. Sleggjan sinnir öllum stórum atvinnubifreiðum með nánast hvað sem er. Verkstæði Sleggjunnar er mjög vel tækjum búið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 5 -A E 7 C 2 4 1 5 -A D 4 0 2 4 1 5 -A C 0 4 2 4 1 5 -A A C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.