Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 28
Ef vélin bilar þá sendir verkstæðið mann sem mælir og ef hann getur ekki lagað með því að skipta um einhvern kubb er hringt á dráttarbíl sem sækir vélina og fer með hana á verkstæði þar sem hún er rifin. Þú gast farið í kaupfélagið, lagt alla mjólk og dilka inn. Í staðinn gat kaupfélagið boðið þér fóðurbætinn, allar vörur heimilisins og tvær grundvallar- gerðir dráttarvéla. 12 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR Mikið úrval af kösturum og aukaljósum fyrir allar gerðir bíla Í dag eru félagsmenn orðnir rúmlega 280 sem greiða 3.000 króna árlegt félagsgjald. Einn af helstu hvatamönnum félagsins, Ragnar Jónasson, segir tilganginn með stofnun félagsins hafa verið að koma öllum áhugamönnum um dráttarvélar í kynni hverjum við annan. „Þegar ég er að byrja að velta þessu fyrir mér, þá er ég að horfa út frá því að vera nýbúinn að eignast gamlan grána og ég veit ekki neitt; það væri snjallt ef maður hefði aðgang að fleirum sem eru á sama stigi. Ég byrja að elta uppi menn, sem ég veit að eiga traktora, til þess að leita upplýsinga; eins og með manúala eða partalista. Að geta sótt í reynslusögu annarra, það er frumhugmyndin. Mitt markmið var að reyna að koma mönnum úr skúrnum og gera þá sýnilega,“ segir Ragnar. Segja má að vel hafi tekist til hjá Ragnari og félögum en að hans sögn eru fundirnir, sem félagið stendur fyrir, sóttir af fjörutíu til sextíu félagsmönnum að meðaltali hverju sinni. „Það er alveg ótrúlegt hve margir mæta, miðað við það að kannski er fundarefnið ekki alltaf neitt rosa merkilegt. Menn hafa gaman af því að hittast, og við tölum um það að kaffihléið sé mikil vægasta stundin,“ segir Ragnar og nefnir einnig að efnt hafi verið til tveggja utanlands- Kaffihléið er mikilvægast 6. desember næstkomandi verða 12 ár liðin síðan um það bil þrjátíu áhuga- menn um drátt- arvélar komu saman í Iðnskól- anum í Reykja- vík og stofnuðu Ferguson-félagið. ferða. Farið var til eyjarinnar Isle of Wight á Suður-Englandi – sem stundum er kölluð Mekka Fergu- son-vélanna – og svo á Ferguson- safnið á Jótlandi, sem talið er eitt það stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Jafnvel segir hann vera farið að huga að næstu ferð. Það er því óhætt að segja að mikil virkni sé í félagslífinu og segir Ragnar að öllum félagsmönnum standi til boða að sækja utanlandsferðirnar. Þó að félagslífið sé fjörugt er ekki þar með sagt að meðalaldur félagsmanna sé eitthvað lægri fyrir vikið. „Meðalaldurinn er býsna hár, sennilega í kringum sjötugt, en auðvitað eru allmargir mun yngri,“ segir Ragnar. Hann segir tækniþró- un dráttarvéla hafa verið umtals- verða á síðustu áratugum sem skýra megi dvínandi áhuga yngri kynslóða á uppgerð dráttarvéla. „Vélarnar í dag eru náttúrulega allt öðruvísi. Þetta er mikið glussa- og tölvukerfi. Ef vélin bilar þá sendir verkstæðið mann sem mælir og ef hann getur ekki lagað með því að skipta um einhvern kubb er hringt á dráttarbíl sem sækir vélina og fer með hana á verkstæði þar sem hún er rifin. Þetta eru ekki sömu hand- tökin lengur.“ Eitt af megingildum félagsins er að grafa upp og varðveita sögu vélanna og tala menn um að vél án sögu sé bara hálf vél. Ragnar segir að landbúnaðarhugsjónir Fergu- son og Ford og innkoma dráttar- véla þeirra hafi verið trú þeirra á að aukið framboð matvæla ynni gegn útbreiðslu kommúnismans. Jafnframt hafi vélarnar leyst þá manneklu sem myndaðist þegar hjúalögin giltu. „Við notum orðið heimilisdrátt- arvélar vegna þess að tækin hér hjá okkur voru fyrst og fremst notuð til þess að draga sláttu-, snúnings- og rakstrarvélar. Á Íslandi var ekki verið að plægja upp akra. Það eina sem var plægt á Íslandi voru kartöflugarðar og þegar rýnt er í innflutningstölur kemur í ljós að tiltölulega fáir plógar voru fluttir til landsins. Það var ekki hefð fyrir því. Þessi dráttartæki leysa fólks- þörfina í sveitunum af hólmi,“ segir Ragnar sem kveðst sjálfur hafa þá reynslu að vera sendur í sveit 11 ára gamall. „Ég er fæddur 1947 og var sendur í sveit frá 11 til 15 ára aldurs og byrjaði strax að keyra traktor. Það er ástæðan fyrir öllu. Ég var sendur norður í Eyjafjörð, á bæ sem heitir Villingadalur. Bærinn hét þetta áður en ég kom,“ segir Ragnar. „Það var svo sniðugt í gamla daga. Þú gast farið í kaupfélagið, lagt alla mjólk og dilka inn. Í staðinn gat kaupfélagið boðið þér fóðurbætinn, allar vörur heim- ilisins og tvær grundvallargerðir dráttarvéla. Frá International Harvester eða Ferguson. Amerísk eða bresk. Hins vegar, ef þú vildir Deutz, þurftirðu að fara í kaup- félagið og tala þar við mann og segja að nú vantaði þig að taka út peninga, því þú ætlir í Hamar að kaupa Deutz. En það var ekki sjálfsagt að þú fengir peningana því þeir voru í veltu kaupfélagsins. Menn voru hálfvegis neyddir til þess að versla við kaupfélagið og kaupa traktora þar, en höfðu þó þetta; Nalla eða Ferguson,“ bætir hann svo við. Öllum áhugamönnum um gamla traktora er hleypt inn í Ferguson- félagið, óháð því hvaða tegundir þeir aðhyllast, þó að nafnið gefi kannski annað til kynna. Ákveðið var að breyta lögum félagsins þegar kom í ljós að margir félagsmanna áttu aðrar tegundir dráttarvéla, en ákveðið var að halda nafninu sem hafði þegar náð fótfestu sem sameiningartákn áhugamanna um gamla traktora. Heimasíðu félagsins má finna á slóðinni ferguson-felagid. com, og á Facebook er þá að finna á tveimur síðum; Fergusonfélagið og Fergusonfélags-grúppan. Ragnar Jónasson er sannkallaður áhugamaður um dráttarvélar en áhuginn kviknaði í Villingadalnum. 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 5 -A E 7 C 2 4 1 5 -A D 4 0 2 4 1 5 -A C 0 4 2 4 1 5 -A A C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.