Fréttablaðið - 25.10.2019, Síða 28
Ef vélin bilar þá
sendir verkstæðið
mann sem mælir og ef
hann getur ekki lagað
með því að skipta um
einhvern kubb er hringt
á dráttarbíl sem sækir
vélina og fer með hana á
verkstæði þar sem hún
er rifin.
Þú gast farið í
kaupfélagið, lagt
alla mjólk og dilka inn. Í
staðinn gat kaupfélagið
boðið þér fóðurbætinn,
allar vörur heimilisins
og tvær grundvallar-
gerðir dráttarvéla.
12 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Mikið úrval af kösturum og aukaljósum
fyrir allar gerðir bíla
Í dag eru félagsmenn orðnir rúmlega 280 sem greiða 3.000 króna árlegt félagsgjald. Einn
af helstu hvatamönnum félagsins,
Ragnar Jónasson, segir tilganginn
með stofnun félagsins hafa verið
að koma öllum áhugamönnum um
dráttarvélar í kynni hverjum við
annan.
„Þegar ég er að byrja að velta
þessu fyrir mér, þá er ég að horfa út
frá því að vera nýbúinn að eignast
gamlan grána og ég veit ekki neitt;
það væri snjallt ef maður hefði
aðgang að fleirum sem eru á sama
stigi. Ég byrja að elta uppi menn,
sem ég veit að eiga traktora, til þess
að leita upplýsinga; eins og með
manúala eða partalista. Að geta
sótt í reynslusögu annarra, það er
frumhugmyndin. Mitt markmið
var að reyna að koma mönnum úr
skúrnum og gera þá sýnilega,“ segir
Ragnar.
Segja má að vel hafi tekist til hjá
Ragnari og félögum en að hans
sögn eru fundirnir, sem félagið
stendur fyrir, sóttir af fjörutíu til
sextíu félagsmönnum að meðaltali
hverju sinni. „Það er alveg ótrúlegt
hve margir mæta, miðað við það
að kannski er fundarefnið ekki
alltaf neitt rosa merkilegt. Menn
hafa gaman af því að hittast, og
við tölum um það að kaffihléið
sé mikil vægasta stundin,“ segir
Ragnar og nefnir einnig að efnt
hafi verið til tveggja utanlands-
Kaffihléið er mikilvægast
6. desember
næstkomandi
verða 12 ár liðin
síðan um það bil
þrjátíu áhuga-
menn um drátt-
arvélar komu
saman í Iðnskól-
anum í Reykja-
vík og stofnuðu
Ferguson-félagið.
ferða. Farið var til eyjarinnar Isle
of Wight á Suður-Englandi – sem
stundum er kölluð Mekka Fergu-
son-vélanna – og svo á Ferguson-
safnið á Jótlandi, sem talið er eitt
það stærsta sinnar tegundar í
Evrópu. Jafnvel segir hann vera
farið að huga að næstu ferð. Það er
því óhætt að segja að mikil virkni
sé í félagslífinu og segir Ragnar að
öllum félagsmönnum standi til
boða að sækja utanlandsferðirnar.
Þó að félagslífið sé fjörugt er
ekki þar með sagt að meðalaldur
félagsmanna sé eitthvað lægri fyrir
vikið. „Meðalaldurinn er býsna
hár, sennilega í kringum sjötugt, en
auðvitað eru allmargir mun yngri,“
segir Ragnar. Hann segir tækniþró-
un dráttarvéla hafa verið umtals-
verða á síðustu áratugum sem
skýra megi dvínandi áhuga yngri
kynslóða á uppgerð dráttarvéla.
„Vélarnar í dag eru náttúrulega allt
öðruvísi. Þetta er mikið glussa- og
tölvukerfi. Ef vélin bilar þá sendir
verkstæðið mann sem mælir og ef
hann getur ekki lagað með því að
skipta um einhvern kubb er hringt
á dráttarbíl sem sækir vélina og fer
með hana á verkstæði þar sem hún
er rifin. Þetta eru ekki sömu hand-
tökin lengur.“
Eitt af megingildum félagsins
er að grafa upp og varðveita sögu
vélanna og tala menn um að vél án
sögu sé bara hálf vél. Ragnar segir
að landbúnaðarhugsjónir Fergu-
son og Ford og innkoma dráttar-
véla þeirra hafi verið trú þeirra á
að aukið framboð matvæla ynni
gegn útbreiðslu kommúnismans.
Jafnframt hafi vélarnar leyst þá
manneklu sem myndaðist þegar
hjúalögin giltu.
„Við notum orðið heimilisdrátt-
arvélar vegna þess að tækin hér hjá
okkur voru fyrst og fremst notuð
til þess að draga sláttu-, snúnings-
og rakstrarvélar. Á Íslandi var
ekki verið að plægja upp akra. Það
eina sem var plægt á Íslandi voru
kartöflugarðar og þegar rýnt er í
innflutningstölur kemur í ljós að
tiltölulega fáir plógar voru fluttir
til landsins. Það var ekki hefð fyrir
því. Þessi dráttartæki leysa fólks-
þörfina í sveitunum af hólmi,“ segir
Ragnar sem kveðst sjálfur hafa þá
reynslu að vera sendur í sveit 11 ára
gamall. „Ég er fæddur 1947 og var
sendur í sveit frá 11 til 15 ára aldurs
og byrjaði strax að keyra traktor.
Það er ástæðan fyrir öllu. Ég var
sendur norður í Eyjafjörð, á bæ
sem heitir Villingadalur. Bærinn
hét þetta áður en ég kom,“ segir
Ragnar.
„Það var svo sniðugt í gamla
daga. Þú gast farið í kaupfélagið,
lagt alla mjólk og dilka inn. Í
staðinn gat kaupfélagið boðið þér
fóðurbætinn, allar vörur heim-
ilisins og tvær grundvallargerðir
dráttarvéla. Frá International
Harvester eða Ferguson. Amerísk
eða bresk. Hins vegar, ef þú vildir
Deutz, þurftirðu að fara í kaup-
félagið og tala þar við mann og
segja að nú vantaði þig að taka
út peninga, því þú ætlir í Hamar
að kaupa Deutz. En það var ekki
sjálfsagt að þú fengir peningana
því þeir voru í veltu kaupfélagsins.
Menn voru hálfvegis neyddir til
þess að versla við kaupfélagið og
kaupa traktora þar, en höfðu þó
þetta; Nalla eða Ferguson,“ bætir
hann svo við.
Öllum áhugamönnum um gamla
traktora er hleypt inn í Ferguson-
félagið, óháð því hvaða tegundir
þeir aðhyllast, þó að nafnið gefi
kannski annað til kynna. Ákveðið
var að breyta lögum félagsins þegar
kom í ljós að margir félagsmanna
áttu aðrar tegundir dráttarvéla,
en ákveðið var að halda nafninu
sem hafði þegar náð fótfestu sem
sameiningartákn áhugamanna um
gamla traktora.
Heimasíðu félagsins má finna á
slóðinni ferguson-felagid. com,
og á Facebook er þá að finna á
tveimur síðum; Fergusonfélagið
og Fergusonfélags-grúppan.
Ragnar Jónasson er sannkallaður áhugamaður um dráttarvélar en áhuginn kviknaði í Villingadalnum.
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
5
-A
E
7
C
2
4
1
5
-A
D
4
0
2
4
1
5
-A
C
0
4
2
4
1
5
-A
A
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K