Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 31
Þegar fólk kemur inn á N1 Nesti getur það gripið með sér kaffi og með því í vinnuna eða sest niður í rólegheit- um á staðnum. „Lögð er áhersla á holla og góða vöru til að koma til móts við kröfur viðskiptavina. Hvað er notalegra en að fá sér eftirlætis kaffidrykkinn og freist- andi sætabrauð eða brauðmeti í byrjun dagsins?“ segir Steinunn Björk Eggertsdóttir, vörustjóri veitinga, og bætir við að uppá- hald bílstjóranna sé íslenska kjötsúpan, sérbakað vínarbrauð og ylvolgir ástarpungar í Staðar- skála. „Gamli kaffiuppáhellingur- inn er líka alltaf á sínum stað,“ segir hún. Ferðalangar og atvinnubílstjór- ar geta fundið alls kyns góðan mat á ferð sinni um landið. N1 Nesti er víða um landið. Frá Borgarnesi austur að Hvolsvelli er hægt að velja um matarmiklar súpur, til dæmis kjötsúpu, kjúklinga-, eða gúllassúpu eða annað það sem hugurinn girnist. „Hefðbundinn grillmatur sem alltaf er vinsæll er sömuleiðis í boði á þessum stöðum þannig að úrvalið er fjölbreytt og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem það er ham- borgari, samloka eða pítsa þá er alltaf hægt að finna eitthvað gott í Nesti,“ upplýsir Steinunn. Hjá N1 Nesti í Borgarnesi, Staðarskála og á Egilsstöðum er boðið upp á hefðbundinn heimilismat ásamt súpu dagsins í hádeginu. Lögð er áhersla á sann- kallaðan mömmumat, snitsel, kótilettur, fisk, lambakjöt eða aðra rétti sem Íslendingar þekkja heiman frá sér. Lögð er áhersla á metnað í eldhúsinu. Ferskt og fjöl- breytt Nesti bíður fólks hvert sem það fer um landið. Ekki má gleyma söfum og frískandi boozti, drykkirnir eru allir gerðir úr fyrsta flokks hráefni. Sannarlega hollusta í amstri dagsins. N1 Nesti tekur vel á móti við- skiptavinum sínum á veitingastöð- um hringinn í kringum landið, eða frá Akranesi til Hvolsvallar. Á höfuðborgarsvæðinu, Hvera- gerði og Selfossi er boðið upp á fjölbreyttar kaffiveitingar, pylsur og einnig ís á f lestum stöðvum. N1 Nesti er á 22 stöðum um landið. Íslenska kjötsúpan í uppáhaldi hjá bílstjórum Dagurinn byrjar snemma hjá N1 Nestisstöðvunum. Starfsfólkið tekur vel á móti bílstjórum í fyrsta stoppi dagsins og býður upp á rjúkandi heitt kaffi, nýbakað bakkelsi og rúnstykki. Steinunn Björk Eggertsdóttir, vörustjóri veitinga, segir að N1 Nesti bjóði upp á frískandi boozt sem allt er gert úr fyrsta flokks hráefni. Rjúkandi heitt bakkelsi með morgunkaffinu á N1 Nesti. Íslensk kjötsúpa er alltaf vinsæl. Fiskur og franskar er eitthvað sem alla langar að fá sér að borða. Lögð er áhersla á íslenskan heimamat hjá sumum veitingastöðum N1 Nesti. Hér er það til dæmis girnilegt snitsel með frönskum. KYNNINGARBLAÐ 15 F Ö S T U DAG U R 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 5 -C 2 3 C 2 4 1 5 -C 1 0 0 2 4 1 5 -B F C 4 2 4 1 5 -B E 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.