Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2015, Qupperneq 2

Skessuhorn - 15.04.2015, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 Fyrir þá sem áhuga hafa á útivist og göngu- ferðum þá verður UMSB ganga sunnudag- inn 19. apríl næstkomandi. Gengið verður á Snjófjöll frá Fornahvammi við rætur Holta- vörðuheiðar Mæting er við Fornahvamm klukkan tíu og leiða Sigurjón og Pálmi gönguna. Vegalengd er 15 km heildar- ganga og reiknað með að hún taki 6-8 klst. Erfiðleikastig er þrjú og útbúnaður er nesti og góður fatnaður og skóbúnaður. Næstu dagana er spáð sunnan- og suðvest- an áttum og mildu veðri á landinu. Flesta dagana nokkur vindur og úrkoma sunnan- og vestantil en yfirleitt bjart á Norðaustur- landi. Þar verður hlýjast eða allt að þrettán stigum að deginum. Þessi spá nær fram á mánudag. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Býstu við langvarandi verkföllum?“ Lang- flestir reikna með því, „já“ sögðu 70,22%, „nei“ var svar 18,54% og 11,24% kváðust ekki vita það eða vilja giska. Í þessari viku er spurt: Hver ættu að vera lágmarkslaun í landinu? Alda Dís Arnardóttir, söngkona frá Hellis- sandi og verðlaunahafi í hæfileikakeppn- inni Ísland got talent 2015, er Vestlending- ur vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpiehf.is HAFÐU SAMBAND Í Lionsfundi í síðustu viku færði Lionsklúbburinn Agla í Borgar- nesi Vesturlandsvaktinni - Holl- vinasamtökum Heilbrigðistofn- unar Vesturlands, 300.000 króna peningagjöf. Það var María Guð- mundsdóttir sem afhenti Steinunni Sigurðardóttur gjöfina fyrir hönd klúbbsins. Hollvinasamtökin halda aðalfund sinn laugardaginn 25. apríl næst- komandi. Hann verður í húsakynn- um HVE á Akranesi. Þar verða venjuleg aðalfundastörf auk þess sem nýtt sneiðmyndatæki verður afhent HVE með formlegum hætti. Við þetta tilefni gefst fundarmönn- um tækifæri til að skoða nýja tæk- ið. Hollvinasamtökin beittu sér fyr- ir fjársöfnum til kaupa og uppsetn- ingar á því eftir að eldra tæki gaf upp öndina í fyrra. mþh Skömmu fyrir páska var nýtt hjartahnoðtæki sem nefnist Lúkas tilbúið til notkunar í sjúkrabifreið HVE í Grundarfirði. Lionsklúbb- ur Grundarfjarðar færði Slökkvi- liði bæjarins tækið til afnota í sjúkrabíl staðarins. Gefandi þess er einnig Kvenfélagið Gleym mér ei en félögin stóðu bæði að söfnun fyrir tækinu. Við athöfn síðastlið- inn mánudag mættu forsvarsmenn Lionsklúbbsins, þeir Jóhann Þór Ragnarsson og Gunnar Kristjáns- son, ásamt fyrirsvarskonum kven- félagsins en það voru þær Mjöll og Sólrún Guðjónsdætur. Þarna voru líka starfandi sjúkraflutninga- menn í Grundarfirði ásamt Val- geiri Magnússyni slökkviliðsstjóra. Félagasamtökin vilja koma fram þökkum til þeirra sem lögðu mál- efninu lið en það voru æði marg- ir sem lögðu hönd á plóg í þess- ari söfnun. Söfnunin gekk vonum framar en stór hluti fjárhæðarinnar kom á Kútmagakvöldi Lions fyrr í vetur. tfk Einar Kristinn Guðfinnsson annar þingmaður Norðvesturkjördæm- is og forseti Alþingis hefur ákveð- ið að hætta að skrifa pistla á netsíðu sína og lokar henni. „Nú er kom- ið að leiðarlokum á þessari síðu; í bili a.m.k. Ég hef ákveðið að láta staðar numið, hætta færslum á síð- unni og loka henni a.m.k. að sinni. Tíminn einn leiðir í ljóst hvort ein- hvern tímann verður framhald á og þá hvernig,“ skrifar hann á vefsetri sínu ekg.blog.is. „Mér hefur fundist þetta gríð- arlega mikilvægt og óskaplega skemmtilegt. Ég hef fengið útrás fyrir tjáningarþörf og möguleika á að setja fram skoðanir mínar, eins og mér hefur hentað og þegar mér hefur hentað. Sjálfum hefur mér fundist þetta skipta máli. Bæði fyrir sjálfa mig og aðra. Stjórnmálamenn eiga að tjá sjónarmið sín og fólkið í landinu á rétt á að vita skoðanir stjórnmálmannanna. Heimasíðan hefur verið fyrir mig vettvangur til þess. Upp á síðkastið hef ég haldið mig til hlés í þjóðmálaumræðunni og hefur þessa gætt hér á heimasíð- unni minni. Eftir að ég varð þing- forseti hef ég sparað mig í almennri pólitískri umræðu. Það hef ég talið eðlilegt og fundið viðspyrnu minna krafta annars staðar. Meðal annars auk þingforsetastarfanna, í verk- um fyrir kjördæmið mitt,“ skrifar Einar Kristinn og þakkar lesend- um sínum góða samfylgd í gegnum árin. Hann hefur setið á þingi síðan 1991, fyrst fyrir Vestfjarðakjördæmi og síðar fyrir Norðvesturkjördæmi þegar það varð til úr kjördæmum Vesturlands, Vestfjarða og Norð- vesturlands. mþh Einar Kristinn Guðfinnsson. Þingforseti hættir að blogga og ætlar að loka heimasíðu sinni Frá afhendingu tækisins. Frá vinstri: Valgeir Þór Magnússon, Erling Pétursson, Mjöll Guðjónsdóttir, Magnús Jósepsson, Eyþór Garðarsson, Sólrún Guðjónsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Jóhann Þór Ragnarsson og Tómas Freyr Kristjánsson. Ljósm. tfk. Lúkas kominn í sjúkrabílinn í Grundarfirði Nýr vefur fyrir bílaviðskipti „Með tilkomu nýrrar vefsíðu, Sjálfsalinn.is, hefur seljendum og kaupendum bíla og annarra far- artækja verið gert kleift að stunda milliliðalaus bílaviðskipti. Vefurinn byggir á öflugri leitarvél þar sem kaupendur geta leitað draumabíls- ins og haft samband við seljanda hans í gegnum tölvupóst eða síma. Þá geta kaupendur og seljendur gengið frá eigendaskiptum með rafrænum hætti í gegnum vefinn,“ segir í tilkynningu frá Sjalfsalinn. is. Á síðunni gefst seljendum far- artækja kostur á að auglýsa gegn föstu mánaðargjaldi. „Sjálfsalinn.is er fyrir alla einstak- linga og var meginmarkmið við uppsetningu vefsins að notenda- viðmót væri eins einfalt og kost- ur er,“ segir Gunnar Gunnars- son, annar stofnandi vefsins. „Fyr- ir seljendur er nóg að skrá fasta- númer ökutækis og í kjölfarið sæk- ir vefurinn allar grunnupplýsingar um farartækið í miðlægan gagna- grunn Samgöngustofu þannig að eigandi þarf aðeins að bæta við upplýsingum á borð við aukabún- að, akstur og verð. Seljandi hefur ávallt aðgengi að auglýsingunni til að breyta upplýsingum á meðan hún er virk.“ -fréttatilkynning Steinunn tekur við gjöfinni úr hendi Maríu. Lionskonur færðu Hollvina- samtökum HVE gjöf Björn tilnefndur rektor HVANNEYRI: Háskóla- ráð Landbúnaðarháskóla Ís- lands samþykkti síðastliðinn mánudag að leggja til skip- un dr. Björn Þorsteinssonar í embætti rekt- ors skólans frá og með 1. maí næst- komandi til næstu fimm ára. Björn hefur gegnt starfi rektors síðustu mánuði eftir að Ágúst Sigurðsson lét af starfi. Björn hefur áratuga reynslu af há- skólastarfi, sem vísindamaður, kennari og stjórnandi, auk þess sem hann hefur stýrt gæða- stjórnun Landbúnaðarháskóla Íslands frá upphafi. Í mati há- skólaráðs segir að hann hafi staðið vel undir þeirri ábyrgð sem honum var falin þegar hann var settur rektor skólans 1. ágúst 2014. Um stöðu rekt- ors komu sjö umsóknir. Auk Björns sóttu um Guðmund- ur Kjartansson, Ívar Jónsson, Jón Örvar G. Jónsson, Sigríð- ur Kristjánsdóttir og Þórunn Pétursdóttir. Í valnefnd áttu sæti Ásgeir Jónsson, Guðfinna Bjarnadóttir og Torfi Jóhann- esson. –þá Boðar frumvarp um veiðigjöld LANDIÐ: Sigurður Ingi Jóhansson sjávarútvegsráð- herra mælir á næstu dögum fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um veiðigjöld. Helstu breytingarnar sem boðaðar eru í frumvarpinu eru að veiði- gjald verði ákveðið til þriggja ára á grundvelli sömu aðferð- ar og beitt var við ákvörðun gjaldanna fyrir yfirstandandi fiskveiðiár 2014/2015. Ákveð- ið verður tiltekið lágmarks- veiðigjald á alla stofna. Sér- stakri veiðigjaldsnefnd verður falið að reikna framlegð og af- komu við veiðar á einstökum nytjastofnum. Upplýsingum um kostnað við veiðar verður safnað með skattframtölum. Sérstakt álag (10 kr/kg) verð- ur lagt á veiðigjald á makríl. Tekið verður upp veiðigjald á hvalveiðar. Veiðigjöldin verða svo innheimt í staðgreiðslu. Nálgast má frumvarpið á vef Alþingis. -mþh

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.