Skessuhorn - 15.04.2015, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015
Stykkishólmur þykir ekki aðeins
með fallegri kaupstöðum landsins
heldur hefur bærinn vakið athygli
fyrir mörg gömul hús sem gerð hafa
verið upp og haldið vel við. Þau eru
því sannkölluð bæjarprýði. Sá mað-
ur sem komið hefur mikið að endur-
gerð húsanna er Baldur Þorleifsson
byggingameistari. Baldur hefur frá
1998 starfrækt trésmiðjuna Narfeyri
og byrjaði þar einn ásamt aðstoð-
armanni. Síðustu árin hefur Baldur
að jafnaði verið með fjóra til fimm
menn í vinnu og fleiri að sumr-
inu. Þá segist hann bæta laghentum
strákum í hópinn. Baldur segir að
uppistaðan í verkefnunum sé end-
urgerð gamalla húsa og síðan hef-
ur hann líka byggt ný hús og búið
þau í gamlan búning ef svo má segja,
þau hús eru með gamaldags utan-
hússklæðingu og gluggum. Það er
ekki bara í Stykkishólmi sem Baldur
á mörg handtökin í gömlum húsum,
heldur einnig í Flatey og í Reykja-
vík. Þegar blaðamaður Skessuhorns
hitti hann að spjalli í Stykkishólmi á
dögunum kvaðst hann ekki hafa tölu
á hversu mörg gömlu húsin væru
sem hann hefur endurgert eða end-
urbætt. Hann giskar á að þau séu
milli þrjátíu og fjörutíu á tæplega
tuttugu ára tímabili.
Uppalinn í Dölunum
Baldur fæddist í Reykjavík árið
1966 en tveggja ára gamall fluttist
hann ásamt móður sinni og tveim-
ur systkinum á bæinn Harastaði á
Fellsströnd í Dölum. Þar ólst hann
upp en fór sautján ára gamall til
vinnu í Stykkishólm og hefur búið
þar síðan. „Ég ólst upp við öll venju-
leg sveitastörf. Skólanám stundaði
ég á Laugum í Sælingsdal og var í
heimavist. Þar var skemmtilegur
skóli og íþróttum kynntist ég þar
flestum nema körfuboltanum. Þá
var ekki búið að byggja íþróttahús-
ið. Íþróttakennarinn var Jökull Sig-
urðsson frá Vatni, mjög skemmti-
legur maður. Hann vildi helst að all-
ir boltaleikir hjá okkur enduðu með
jafntefli og Jökull kenndi okkur líka
leikfimiæfingar, líklega Möllersæf-
ingarnar og ýmsar teygjuæfingar. Ég
býst við að það sé kannski það sem
vantar í dag hjá íþróttaliðunum að
teygja vel á eftir æfingar, svo sem
til að fyrirbyggja meiðsli. Það verð-
ur ábyggilega misbrestur á því þeg-
ar tímafjöldinn er takmakaður í hús-
unum og tímarnir nýttir sem mest
fyrir tækniæfingar og að spila, eins
og til dæmis í körfuboltanum,“ seg-
ir Baldur. Íþróttirnar hafa líka verið
stór þáttur í hans lífi og í dag er hann
aðstoðarþjálfari Inga Þór Steinþórs-
sonar með kvennalið Snæfells.
Labbaði inn í næstu
trésmiðju
Baldur fór að vinna í sláturhúsi kaup-
félagsins í Stykkishólmi þegar hann
fór þangað haustið 1985. „Þetta var
held ég síðasta haustið sem slátur-
húsið var starfandi. Ómar bróðir
minn var þá háseti á báti frá Stykk-
ishólmi og hann hafði bent mér á
að ég gæti áreiðanlega fengið vinnu
í smíðum þegar vinnan væri búin í
sláturhúsinu, til dæmis væri gott að
vinna í Trésmiðjunni Ösp. Ég var
búinn að vinna talsvert við smíðar
í mótaflokki í sveitinni, byrjaði þar
um fermingaraldurinn. Ég labb-
aði inn í næstu trésmiðju og spurð-
ist fyrir með vinnu. Það var reyndar
ekki Ösp, heldur Trésmiðja Stykk-
ishólms. Ég var strax ráðinn í vinnu
og eftir þrjá mánuði var mér boðið
að koma á samning sem ég þáði. Ég
fann mig ágætlega í smíðunum.“
Byrjaði með kaupum á
Narfeyrarstofunni
Þegar Baldur er spurður hvern-
ig áhugi hans hafi kviknað að ráði
fyrir gömlu húsunum, segir hann
að það hafi verið þegar hann keypti
Narfeyrarstofu, þar sem lengi hefur
verið rekið veitingahús. „Ég keypti
Narfeyrarstofu 1996 ásamt Þorkeli
Þorkelssyni málarameistara, gerði
hana upp og seldi síðan Ingibjörgu
sem rak þar veitingahús mörg fyrstu
árin. Um þetta leyti var Trésmiðj-
an Nes, arftaki Trésmiðju Stykk-
ishólms og Aspar, farin að riða til
falls. Það fyrirtæki var að gera upp
gömlu kirkjuna hér í Stykkishólmi
og ég vann að því verkefni. Það
var komið vel á veg þegar Skipa-
vík tók við verkefnum Trésmiðj-
unnar Ness og flestir starfsmenn
fylgdu með. Rakel Ólsen athafna-
kona hérna í Hólminum hafði beitt
sér fyrir endurgerð gömlu kirkjunn-
ar. Hún hafði á prjónunum að gera
upp gamla Prestshúsið og bauð mér
tveggja ára samning við að gera það
upp. Ég sagðist varla treysta mér til
þess meðfram vinnu hjá Skipavík.
„Nei, þú ættir bara að vera í því að
gera upp gamla Prestshúsið,“ sagði
hún og það varð til þess að ég hætti
hjá Skipavík og upp frá því stofn-
aði ég Narfeyri og fór út í sjálfstæð-
an rekstur. Það má því segja að Rak-
el Ólsen hafi átt stóran þátt í því að
ég fór inn á þessa braut. Síðan hefur
verið nóg að gera. Mest við endur-
gerð gamalla húsa eða að byggja ný
hús í gömlum stíl. Þetta hefur ver-
ið skemmtilegt að glíma við og mun
skemmtilegra en hefðbundin smíða-
vinna. Sum gömlu húsanna hef ég
nánast byggt aftur upp frá grunni,
lítið verið hægt að nýta úr þeim. Ég
er til dæmis með eitt hús núna við
Skúlagötuna á lokametrunum.“
Hvað er bak við
næsta vegg?
Baldur segir að sér finnist mikil áskor-
un felast í því að gera upp gömul hús.
„Á köflum er þetta virkilega spenn-
andi. Maður veit svo sem ekkert hvað
er á bak við næsta vegg. Þar getur allt
verið ónýtt enda er mjög erfitt að
gera tilboð í endurgerð gamalla húsa
og ég geri það ekki,“ segir Baldur.
Þeir sem þekkja til smíða vita að end-
urnýjun og endurbætur á húsum er
nær tvöföld vinna á við nýsmíði. Að
endurnýja á fjórða tug gamalla húsa
á tuttugu árum er mikil vinna og
hlýtur að þýða bæði gott skipulag og
verklag. „Já, þetta kallar á skipulögð
vinnubrögð sem síðan þjálfast með
hverju verkefni. Ég er búinn að koma
mér upp kerfi alveg frá A til Ö sem
unnið er eftir og það er ekkert leng-
ur sem kemur á óvart eða getur talist
flókið að vinna úr,“ segir Baldur. Við
tökum bæjarrúnt í Hólminum og
skoðum nokkur af þeim húsum sem
Baldur og starfsmenn fyrirtækis hans
Narfeyrar hafa gert upp. Baldur seg-
ir að mörg húsanna hafi verið stækk-
uð frá upprunalegri mynd. Þá sé til
dæmis galdurinn til að fá sem mesta
nýtingu í húsunum að færa plássfrek
rými eins og til dæmis snyrtingar og
eldhús í viðbyggingarhlutann. Þessar
viðbyggingar setja gjarnan skemmti-
legan svip á húsin, eins og til dæmis
sú sem er við gamla Prestshúsið en í
henni er eldhúsið.“
Byggði sér sjálfur
hús í Flatey
Baldur hefur unnið talvert að end-
urgerð húsa í Flatey meðal annars í
samvinnu við Þorstein Bergsson hjá
Minjavernd. „Ég vann mikið við að
gera upp hótelið og stóru bygging-
arnar þar. Byggði síðan eftirlíkingu af
gamla skólahúsinu. Í leiðinni byggði
ég mér sjálfur hús í Flatey og er þar
oftast í sumarfríum. Yfir sumarið er
ég stundum að gamni mínu að vinna
í endurbótum á gömlum húsum í
eynni. Það er á döfinni næsta sumar
að gera upp stórt hús þar.“
Íþróttirnar og
fjölskyldan
Eins og fyrr segir hafa íþróttirn-
ar jafnan skipað stóran sess hjá
Baldri. Strax og hann kom í Stykk-
ishólm fór hann að æfa og keppa
með meistaraflokki Snæfells í knatt-
spyrnu. Það lið var öflugt í allmörg
Hefur endurbyggt og lagfært á fjórða tug gamalla húsa
Spjallað við Baldur Þorleifsson hjá trésmiðjunni Narfeyri í Stykkishólmi
Baldur Þorleifsson húsasmíðameistari.
Hús í Hafnargötunni sem Baldur og Narfeyri hafa gert upp, nær
Knútshúsið og fjær Sæmundarpakkhús.
Nokkur hús eru við Silfurgötuna sem Baldur og hans menn hafa
gert upp, meðal annars þetta við Silfurgötu 3.
Gamla Prestshúsið við Silfurgötu. Viðbyggingin í dökkum lit setur mikinn svip á húsið en í því er eldhúsið.
Hús sem nú stendur við Þvergötu í Stykkishólmi en var áður
Lindargata 42 í Reykjavík.