Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 20156
Sýknaður af
ákærum þar sem
vitni vantaði
AKRANES: Dómur var
kveðin upp í Héraðsdómi
Vesturlands í byrjun mánaðar-
ins, þar sem maður var sýkn-
aður af ákæru fyrir nytjastuld
og ölvunarakstur. Aðfararnótt
sunnudagsins 23. júní 2013
var lögreglu á Akranesi til-
kynnt að bláum bíl hefði ver-
ið stolið. Bíllinn fannst mann-
laus rétt austan við Innnes-
veg og ákærði fannst skammt
frá bílnum. Ákærði neitaði alla
tíð sök og bar fyrir sig að hann
hafi verið ofurölvi og gæti því
ekki munað hvað hafi gerst
þetta kvöld. Þar sem enginn
sá manninn aka bílinn var ekki
hægt að sanna sekt hans og var
hann sýknaður af öllum kröf-
um ákæruvaldsins.
–arg
Sea Shepherd í
Tromsö
NOREGUR: Bandarísku um-
hverfissamtökin Sea Shepherd
hafa sent eitt skipa sinna, Sam
Simon, til hafnar í Tromsö
í Norður Noregi. Í Tromsö
liggur einnig flutningaskipið
Winter Bay með farm sinn sem
er 1.800 tonn af frystu lang-
reyðarkjöti frá Hval hf. Win-
ter Bay hefur legið í Tromsö í
júnímánuði eftir siglingu með
hvalkjötsfarminn sem skip-
að var um borð í Hafnarfirði.
Ætlunin er að sigla með kjöt-
ið til Japan um hina svoköll-
uðu norðausturleið sem er í
Íshafinu norður af Rússlandi
og mun áhöfn Winter Bay nú
bíða þess að ísa leysi þar. Skip-
verjar á Sam Simon hafa gef-
ið upp að þeir hafi leitað hafn-
ar í Tromsö vegna vélarbil-
unar auk þess sem þeir eru að
sækja tvo nýja í áhöfn skipsins
sem komu þangað með flugi.
Skipstjóri Sam Simon segir í
samtali við norska fjölmiðla að
áhöfnin fari með friði og hafi
ekkert misjafnt í hyggju. Hún
hafi þó kvikmyndað Winter
Bay við bryggju í Tromsö til
að nota myndskeiðin í heim-
ildakvikmynd. Sam Simon
var látið varpa ankerum á ytri
höfninni í Tromsö og lagð-
ist þannig ekki að bryggju.
Skip norsku strandgæslunn-
ar vaktar Sam Simon. Koma
skipsins til Tromsö hefur vak-
ið blendnar tilfinningar þar í
borg enda hafa liðsmenn Sea
Shepherd sökkt fjölda hval-
veiðibáta bæði í Noregi og á
Íslandi.
-mþh
Pínulítið hag-
stæð vöruskipti
LANDIÐ: Fyrstu fimm mán-
uði ársins 2015 voru fluttar út
vörur fyrir rúma 276,2 millj-
arða króna en inn fyrir tæpa
274,0 milljarða króna fob
(292,0 milljarða króna cif). Af-
gangur var því af vöruskiptum
við útlönd sem nam 2,3 millj-
örðum króna, reiknað á fob
verðmæti.
–mm
Nýr forstöðu-
maður Dvalar-
heimilis
STYKKISHÓLMUR: Kristín
Sigríður Hannesdóttir hefur ver-
ið ráðin forstöðumaður Dvalar-
heimilis aldraðra í Stykkishólmi.
Staðan var auglýst í lok apríl og
er um að ræða 100% stöðu við
hjúkrunar- og stjórnunarstörf.
Kristín tekur við af Hildigunni
Jóhannesdóttur sem mun á næst-
unni láta af störfum að eigin ósk.
Kristín Sigríður Hannesdótt-
ir hjúkrunarfræðingur starfar á
Landsspítalanum. Hún hefur áður
starfað sem hjúkrunarfræðingur
við hjúkrunar- og dvalarheimil-
ið Barmahlíð á Reykhólum, hjá
Heilbrigðisstofnun Patreksfjarð-
ar og á endurhæfingardeild fyr-
ir aldraða í sveitarfélaginu Eger-
sund í suðvesturhluta Noregs. Á
Dvalarheimili aldraðra í Stykk-
ishólmi eru fimm dvalarrými og
13 hjúkrunarrými. Starfsfólk eld-
hússins á Dvalarheimilinu sér um
alla matseld fyrir vistmenn heim-
ilisins og starfsfólkið sem og fyrir
nemendur og starfsmenn grunn-
skólans. Í tengslum við Dvalar-
heimilið eru sextán íbúðir fyr-
ir aldraða og njóta íbúar þeirra
margvíslegrar þjónustu frá starfs-
fólki Dvalarheimilisins.
-grþ
Leggja gangbraut
og byggja útskot
AKRANES: Lengi hefur verið í
umræðunni að breyta bílastæðum
við íþróttahúsið við Jaðarsbakka
á Akranesi. Nú hefur verið tek-
ið ákvörðun um að láta verða af
breytingunum. Leggja á gang-
stétt frá götuljósunum að íþrótta-
húsinu. Þetta er gert svo grunn-
skólabörnin hafi öruggari göngu-
leið alla leið í íþróttahúsið. Verk-
ið var boðið út ásamt verki sem
unnið er að núna við enda ráð-
hússins við Stillholt. Þar er ver-
ið að gera útskot fyrir strætis-
vagna. Það var Þróttur ehf. sem
fékk verkin tvö, tilboð fyrirtækis-
ins hljóðaði upp á rétt rúmar tíu
milljónir króna. -arg
Undanfarið hafa staðið yfir viða-
miklar endurbætur á félagsheim-
ilinu Lyngbrekku á Mýrum.
Gluggar voru endurnýjaðir í fyrra
og síðastliðið haust var skipt um
þakjárn. Nú í sumar er síðan unn-
ið að því að einangra húsið að utan
og setja á það nýja múrhúð. „Það
var heldur betur kominn tími á við-
hald hússins. Það var orðið illa far-
ið en nú horfir til miklu betri veg-
ar. SÓ húsbyggingar hafa einangr-
að húsið að utan. Síðan munu Jón
Þórðarson og Óli Waage múrarar
hér í Borgarbyggð sjá um að múr-
húða það. Þegar því lýkur verða út-
veggir Lyngbrekku reyndar gráir á
lit en við þurfum að sjá hvort ekki
finnist fjármunir til að mála húsið
hvítt á nýjan leik,“ segir Kristján
Finnur Kristjánsson verkefnastjóri
framkvæmdasviðs Borgarbyggð-
ar. Félagsheimilið Lyngbrekka var
byggt fyrir rúmri hálfri öld. Hús-
ið er í eigu Borgarbyggðar og ung-
mennafélaganna Björns Hítdæla-
kappa og Egils Skallagrímssonar.
mþh
Litlu mátti muna að stórslys
yrði undir sunnaverðu Akra-
fjalli klukkan 19:28 þriðju-
daginn 23. júní síðastliðinn
þegar strætisvagni var ekið
framúr á ólöglegum hraða
við vegaskiltið sem stendur
ofan við bæinn Gerði. Atvik-
ið náðist á mynd og var birt á
samfélagsmiðlinum Facebo-
ok. Óhætt er að segja að það
hafi vakið mikla athygli og
viðbrögð.
Flosi Pálsson sem býr á
Akranesi var nýkominn úr
Hvalfjarðargöngum þegar
strætisvagni var ekið framúr hon-
um á miklum hraða. „Hann tók
framúr mér þar sem ég ók á lögleg-
um hraða. Mér blöskraði hreinlega
hvað hann ók hratt með fullan bíl af
farþegum, bæði börn og fullorðna.
Þá gaf ég í á eftir honum til að sjá
á hvaða hraða hann var að keyra.
Ég hélt að svona bílar kæmust ekki
hraðar en í 90 kílómetra á klukku-
stund. Með því að gera þetta sá ég
fljótt að hann var verulega yfir lög-
legum hámarkshraða. Sími var tek-
inn upp í bílnum hjá mér og film-
að á hvaða hraða strætisvagninn ók.
Eins og sjá má ók hann á minnst
105 kílómetra hraða á klukkustund.
Svo reyndi hann skyndilega fram-
úrakstur eins og sjá má á mynd-
bandinu og þá lá nærri við árekstri.
Fólksbíll sem kom úr gagnstæðri
átt þurfti að snarhægja á sér og
beygja út á malarplan sem þarna er
og jepplingur sem var á undan mér
bremsaði og fór út í kant og hleypti
þannig strætisvagninum framfyrir
sig áður en illa fór. Ég vil þó taka
fram að þótt þetta myndband hafi
náðst þá er eflaust um undantekn-
ingartilvik að ræða. Strætóbílstjór-
ar sýna ekki svona aksturslag
og þetta er örugglega undan-
tekning frekar en regla. Við
megum ekki dæma alla stétt-
ina út frá þessu tilviki þó það
hafi vissulega verið alvar-
legt,“ segir Flosi í samtali við
Skessuhorn.
Bílstjóri kallaður
á teppið
Flosi birti myndbandið á Fa-
cebook-síðu sinni. Skessu-
horn fékk leyfi hans til að birta
það með frétt á vef blaðsins.
Óhætt er að segja að það hafi vakið
mikla athygli. Í heildina hafa tug-
ir þúsunda þegar skoðað það á Fa-
cebook-síðu Flosa. Bílstjóri stræt-
isvagnsins var kallaður inn á tepp-
ið vegna þessa atviks. „Þetta lítur
skelfilega út. Þarna var um að ræða
bíl sem er í umsjón verktaka hjá
okkur. Málið er í ákveðnu ferli hér
innan fyrirtækisins,” sagði Jóhann-
es Svavar Rúnarsson framkvæmda-
stjóri Strætó í samtali við Skessu-
horn og bætti við ákveðnum rómi
að talað yrði við bílstjórann.
mþh
Skjáskot úr myndbandi Flosa Pálssonar sem sýnir
strætisvagninn á Akrafjallsvegi.
Strætisvagn á ólöglegum
hraða undir Akrafjalli
Lyngbrekka fær nýja klæðningu í sumar
Búið er að festa einangrun utan á húsið og það bíður múrklæðningar.