Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2015, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 01.07.2015, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 31 „Það gekk mjög vel í fyrrasum- ar þrátt fyrir leiðindaveður, þoku og rigningu nánast allan júlí,“ seg- ir Helga Magnea Birkisdóttir veit- ingakona á Prímus kaffi á Helln- um. Hún tók við rekstri þess ásamt Ólafi Sólmundssyni eiginmanni sínum um páskana í fyrra. Prímus kaffi er til húsa í sömu byggingu og gestastofa þjóðgarðsins á Snæfells- nesi. Nú í vetur, eftir fyrsta rekstr- artímabil þeirra í fyrra, var húsnæði Prímus kaffis endurnýjað og stækk- að um helming. Það rúmar nú 120 gesti í sæti. Hyggst lengja opnunartíma í haust Helga Magnea segist himinlifandi með kaffihúsið. Þau hjón eru nú að flytjast búferlum frá Reykjanesbæ til Snæfellsbæjar þar sem þau hafa fest kaup á húsnæði á Arnarstapa. „Núna get ég komist heim til mín eftir vinnu hér á Prímus kaffi. Það munar öllu. Mér finnst yndislegt að búa hér undir Jökli.“ Í fyrra opnaði Prímus kaffi með formlegum hætti á skírdag 17. apríl. „Við lokuðum svo fyr- ir veturinn um miðjan septem- ber. Í haust ætlum við hins veg- ar að hafa opið lengur og vonandi sem lengst inn í veturinn. Það er augljóst að ferðamannatímabil- ið er alltaf að lengjast auk þess sem ferðamönnum fjölgar. Bara það sem af er sumri þá hafa verið miklu fleiri ferðamenn hér sam- anborið við á sama tíma í fyrra. Mér finnst líka fleiri Íslendingar,“ segir Helga. Stólar fyrir 120 gesti Útsýnið frá Prímus kaffi er bæði fagurt og sólríkt á góðviðrisdög- um. Þaðan má sjá vítt til suðurs út yfir Faxaflóann. Norðanmegin eru svo Stapafell og Snæfellsjök- ull. Nú hafa útsýnismöguleikarn- ir verið bættir verulega. „Það er bæði búið að stækka veitingarým- ið hjá okkur um helming nú í vet- ur og síðan gera nýja stóra glugga mót suðaustri með palli fyrir fram- an þar sem fólk getur setið undir beru lofti. Nú sést þannig úr veit- ingasalnum meira til suðausturs yfir Faxaflóann. Það er líka búið að útbúa setustofu á upphækkuð- um palli í enda húsnæðisins. Við getum nú tekið á móti allt að 120 manns. Hingað koma bæði hóp- ar og einstaklingar, þetta er best í bland.“ Helga segir að frá síðasta ári hafi einnig verið bætt við það sem á boðstólum er hjá Prímus kaffi. „Í fyrra vorum við bara með súp- ur, kökur og kalda og heita drykki. Nú höfum við bætt við plokkfiski, kjötbollum og þess háttar. Það er allt eldað hér á staðnum. Hugsun- in er sú að fólk geti komið hing- að og fengið góðan og venjulegan mat á ferðum sínum um svæðið.“ Prímus kaffi hefur opið alla daga vikunnar frá klukkan tíu á morgn- ana til níu á kvöldin. „Ef það er umferð þá höfum við jafnvel opið lengur,“ segir Helga Magnea. mþh Prímus kaffi á Hellnum stækkað um helming Prímus kaffi á Hellnum. Stykkishólmsbær Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100 Auglýst er laust til umsóknar starf ritara bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar. Starf ritara bæjarstjóra fellur undir stjórnsýslu, fjármál- og fjölskyldumál Stykkishólmsbæjar og heyrir undir bæjarstjóra og faglega stjórn og leiðsögn bæjarritara. Helstu verkefni Ritarastörf, umsjón með fundargerðum í stjórnsýslu, bréfaskriftir eftir bæjarráðs- og • bæjarstjórnarfundi auk annarra bréfaskrifta, innskráning mála í skjalavistunarkerfi, umsjón með fundarboðum, almenn ritaraverkefni og umsjón með verkefnaskráningu fyrir bæjarstjóra, reikningagerð fyrir alla starfsemi bæjarins samkvæmt nánara verkskipulagi hverju sinni, ýmiss bókhaldsvinna, umsjón með samþykkt reikninga og færsla þeirra yfir í gjaldkerakerfi. Umsjón með vefsíðu Stykkishólmsbæjar og samskipti við þá sem sinna • kynningarmálum. Önnur almenn störf samkvæmt nánari fyrirmælum bæjarstjóra.• Menntunar- og hæfniskröfur Framhaldsskólamenntun og/eða sérhæfð skrifstofu- eða viðskiptamenntun, • kunnátta og reynsla á sviði bókhalds og skjalagerðar er mikilvæg. Haldgóð þekking á Word og Excel er nauðsynleg.• Þjónustulund, þolinmæði, rík ábyrgðarkennd og hæfni í mannlegum samskiptum.• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.• Starfið er veitt frá 1. ágúst n.k. Launakjör eru samkvæmt samningum sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala og Snæfellsness. Allar upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri Sturla Böðvarsson sturla@stykkisholmur.is og bæjarritari Þór Örn Jónsson thor@stykkisholmus.is í síma 433-8100. Umsóknir skal senda til Bæjarstjórans í Stykkishólmi, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í netfangið sturla@stykkisholmur.is fyrir 15. júlí 2015. Stykkishólmi, 25.júní 2015 Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar SK ES SU H O R N 2 01 5 Sýslumaðurinn á Vesturlandi Starf í Borgarnesi Laust er til umsóknar 100 % starf á skrifstofu Sýslumannsins á Vesturlandi með starfsstöð í Borgarnesi. Starfið felst í vinnu við gjaldkerastörf og umboðsstörf fyrir Tryggingastofnun ríkisins og Sjúkratryggingar Íslands, svo og almenn skrifstofustörf. Hæfniskröfur: Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg svo og jákvæðni, þolinmæði og þjónustulund. Tungumálakunnátta er æskileg. Laun skv. gildandi samkomulagi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Eðvarsdóttir starfsmannastjóri í síma 458-2300 á skrifstofutíma milli kl. 10:00 og 15:00. Umsóknarfrestur er til 13.júlí 2015. Umsóknir ásamt starfsferilskrá berist skrifstofu sýslumanns að Bjarnarbraut 2, 310 Borgarnesi eða á netfangið eva@syslumenn.is Athygli er vakin á því að umsóknin mun gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3.tl.2.mgr.2.gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum nr.464/1996 , sem settar eru skv. heimild í 2.mgr.7.gr.laga nr.70/1996 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Öllum umsóknum verður svarað, þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sýslumaðurinn á Vesturlandi Ólafur K. Ólafsson SK ES SU H O R N 2 01 5 Ólafur Sólmundsson og Helga Magnea Birkisdóttir reka nú Prímus kaffi annað árið í röð og hafa heldur betur stækkað við sig. Veggi veitingastaðarins prýða gamlar ljósmyndir af svæðinu, ljósmyndir úr Vatnshelli, ljósmyndir eftir Árna Guðjón Aðal- steinsson úr Ólafsvík og myndir af verkum þýsk-íslenska listamannsins Wilhelms Beckmann. Menntaskóli Borgarfjarðar leitar að mögulegum einstaklingsherbergjum fyrir nemendur skólans næsta skólaár. Vinsamlegast hafið samband við skólameistara í síma 894-1076 eða á netfangið gudrunbjorg@menntaborg.is SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.