Skessuhorn - 01.07.2015, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201512
Nýjar tölur sem Hagstofan hefur
birt sýna að ótrúlegur vöxtur hefur
verið í þjónustu við erlenda ferða-
menn á Íslandi á síðustu árum. Þeir
kaupa mikið af vörum og þjónustu.
Neysla erlendra ferðamanna jókst
þannig úr rúmlega 92 milljörðum
króna árið 2009 í rúmlega 165 millj-
arða árið 2013, eða um 79% á nafn-
virði. Vafalítið hefur hún svo farið
vaxandi síðan enda virðist straumur
ferðamanna til landsins bara færast
í aukana frekar en hitt.
Neysla íslenskra ferðamanna
innanlands hefur einnig aukist. Þeir
eru þó ekki jafn duglegir að eyða og
hinir erlendur. Innlendir ferðalang-
ar eyddu fyrir tæplega 60 milljarða
árið 2009 en voru komnir í tæp-
lega 88 milljarða fjórum árum síð-
ar. Þetta er þó rúmlega 47% aukn-
ing á nafnvirði sem hlýtur að teljast
þokkalegt séð með augum þeirra
sem lifa af því að selja vörur og
þjónustu til ferðafólks.
Hlutur erlendra ferðamanna sem
fjölda af ferðalöngum jókst úr 52%
árið 2010 í 60% 2013. Nánari upp-
lýsingar má skoða á vef Hagstofu
Íslands (hagstofa.is). mþh
„Það er eiginlega alveg óþolandi sú
vanvirðing sem okkur íbúum sumra
sveita er sýnd, af hálfu Vegagerðar-
innar og þeirra sem útdeila pening-
um hins opinbera. Hér eru gaml-
ir og illa farnir vegir án viðhalds.
Þeir eru kannski heflaðir einu sinni
að vori og einu sinni að hausti og
þá er verkið jafnvel unnið svo illa
að vegirnir verða enn verri yfir-
ferðar en fyrir heflun,“ segir Þór-
arinn Skúlason bóndi á Steindórs-
stöðum í Reykholtsdal. Hann rek-
ur ferðaþjónustu á Steindórsstöð-
um og segir það beinlínis vera stór-
hættulegt að útlendingar og þeir
sem óvanir eru akstri við þessar að-
stæður fari um þessa vegi. „Dæm-
in hafa nýlega sannað að fólk hef-
ur farið sér að voða á vegum eins
og þessum. Við þurfum ekki að fara
lengra en í næstu sveit til að finna
sorglegt dæmi um hvernig fór fyrir
ökumanni bifhjóls sem þekkti ekki
til aðstæða sem þessara. Nú eru
vegirnir hérna allir eins og þvotta-
bretti á eftir heflun sem gerð var
fyrir hálfum mánuði og ekki líklegt
að undir stýri hafi kunnáttumaður
setið. Ef verktaki hefði unnið þetta
verk með þessum hætti fyrir Vega-
gerðina, þá er ég handviss um að
hann hefði ekki fengið greitt fyrir.
Þessir vegir eru ekki rykbundnir og
því bætist við ástandið að fína efn-
ið fýkur strax úr þeim í þurrkum.“
Þarna er Þórarinn að lýsa veginum
frá Reykholti og að Úlfsstöðum í
Hálsasveit, veginum í sunnanverð-
um Reykholtsdal og veginum inn
Flókadal.
Hann bendir á að þeir sem reki
ferðaþjónustu til sveita eigi allt sitt
undir nothæfum vegum. Bílaleigur
eru til dæmis farnar að banna þeim
sem leigja bíla að fara um vegi sem
þessa. Aðspurður segist Þórarinn fá
þau svör frá Vegagerðinni að allir
peningar séu búnir í þennan mála-
flokk. „Það er engu líkara en lit-
ið sé á suma íbúa hér sem þriðja
flokks þegna. Ekki eru svo stjórn-
málamenn að bæta ástandið. Hér
lofuðu til dæmis allir flokkar fyr-
ir sveitarstjórnarkosningarnar fyr-
ir tveimur árum að þeir myndu
láta beina meiri fjármunum í við-
hald og endurbætur héraðsvega.
Að þeirra fyrsta verk yrði að þrýsta
á Vegagerðina og fjárveitingavald-
ið að bæta ástandið. En nei, þeir
voru náttúrlega allir að taka þátt í
Stóru lygakeppninni, eins og þeir
hafa sannað í skólamálunum hér í
okkar sveitarfélagi,“ segir Þórarinn
á Steindórsstöðum.
mm
„Þetta var mjög skrítinn morgunn.
Ég er vön að fara út úr húsi klukk-
an ellefu og fara í göngutúr þar sem
ég enda í félagsstarfi og hádegismat
í félagsstarfinu. Þennan morgun-
inn kom ég mér samt ekki af stað
og ég veit ekki alveg af hverju, það
var í raun engin góð ástæða fyr-
ir því,“ segir Ólöf Guðmunds-
dóttir í Borgarnesi þegar blaða-
maður spurði hana út í morgun-
inn sem hún hjálpaði frændsystkin-
um sem lentu undir steini í garð-
inum hjá henni við Ánahlíð í Borg-
arnesi. Þessi morgunn var eitthvað
öðruvísi en venjulegir morgnar hjá
Ólöfu og hún var, aldrei þessu vant,
heima hjá sér þegar börnin hringdu
bjöllunni klukkan korter yfir ellefu.
Ólöf spjallaði smá við börnin og
þar sem hún var nú komin út með
þeim ætlaði hún að koma sér af stað
í göngutúrinn sinn.
„Ég spurði hvort þau vildu labba
smá með mér og sýna mér hvar þau
ættu heima og svona, ég vissi ekki
hvaða börn þetta voru svo ég ætlaði
aðeins að fylgja þeim svona áleiðis
heim. Strákurinn stökk þá strax af
stað upp brekkuna hér við húsið og
stelpan fylgdi á eftir. Þau voru svo
snögg að ég náði ekki að átta mig
og segja þeim að passa sig á þess-
um steini. Steinninn fer svo af stað
niður brekkuna og tekur börnin
með sér og lendir svo ofan á þeim,
steinninn lá yfir öllu brjóstbakinu
og vinstri hönd og öxl á stelpunni.
Steinninn lá ekki jafn mikið ofan á
stráknum svo ég náði honum und-
an, ég reyndi að ná steininum af
stelpunni líka en gat það ekki. Ég
hringdi strax í 112 og það tók svona
um 10 mínútur fyrir sjúkrabílinn,
lækna og alla að mæta á staðinn.
Þessar mínútur voru þó rosalega
lengi að líða, tíminn líður svo hægt
á svona stundu,“ sagði Ólöf sem
er fegin að það var eitthvað sem
stoppaði það að hún fór í göngu-
túrinn sinn þennan morguninn. Ef
Ólöf hefði ekki verið heima þegar
slysið átti sér stað er ekki hægt að
vita hvað börnin hefðu legið lengi
undir steininum.
Slysið gerðist innst inni í botn-
langa, bakvið hús þar sem lítil um-
ferð er, það er því ólíklegt að ein-
hver hefði heyrt í börnunum. Bið-
in eftir sjúkrabílnum var erfið en
Þorgerður Bjarnadóttir sjúkra-
flutningamaður var fyrst á stað-
inn og náði hún, með aðstoð Ólaf-
ar, litlu stúlkunni undan steininum.
Bæði börnin voru flutt á sjúkrahús
þar sem kom í ljós að þau voru ekki
alvarlega slösuð. Drengurinn er
handleggsbrotinn en fyrir utan það
eru meiðslin minniháttar, mar og
rispur hér og þar. Hann fékk að fara
heim að kvöldi sama dags. Stúlkan
fótbrotnaði og hlaut skurð á höfði
sem þurfti að sauma en þar fyr-
ir utan minniháttar meiðsli. Henni
var haldið á sjúkrahúsinu yfir nótt
og fór heim í hádeginu daginn eft-
ir. Það þykir mildi að ekki hafi farið
verr því grjótið sem valt yfir börnin
er mjög stórt og þungt.
Ólöf fór með blaðamanni út og
sýndi hvernig svona grjót eru þarna
allt í klettunum í kring og það var,
að mati Ólafar, í raun bara tíma-
spursmál hvenær þau færu að velta
af stað. „Það er búið að rigna svo
mikið og moldin búin að renna
til svo það heldur ekkert þessum
steinum lengur. Það átti auðvitað
bara að fjarlægja þetta grjót strax.
Það er mest laust þarna og svona
lítil börn gera sér enga grein fyrir
þeim hættum sem finnast á svona
stöðum,“ segir Ólöf sem skilur ekk-
ert í því að frágangurinn hafi verið
svona á þessum stað. „Það er von-
andi að eitthvað verði gert í þessu
núna,“ bætir hún við að lokum.
arg
Reykkafarar frá Slökkviliði Akra-
ness og Hvalfjarðarsveitar unnu
að því síðdegis á mánudaginn og
fram á kvöld að komast að upptök-
um reyks í rafmagnsrými á annarri
hæð í járnblendiverksmiðju Elkem
Ísland á Grundartanga. Útkallið
barst klukkan 16:50. Að sögn Gests
Péturssonar forstjóra fyrirtækis-
ins var ekki um opinn eld að ræða
heldur lagði reykinn frá búnaði sem
sviðnað hafði í rafmagnsrými. Eng-
in slys urðu á fólki, að sögn Gests,
en fyllsta öryggis er ætíð gætt í að-
gerðum af þessum toga og fram-
leiðslan stöðvuð meðan komist er
að rót vandans. Í ljós kom að þétt-
ir hafði ofhitnað. Við það skapast
ójafnvægi á rafmagni og verksmiðj-
an leysir út. Gestur segir mest um
vert að enginn hafi skaðast við þetta
óhapp. Rekstrartap hafi einkum
orðið meðan framleiðsla lá niðri og
þá verður einn ofn verksmiðjunn-
ar í takmörkuðum rekstri í nokkra
daga. „Þegar kerfið yfirhitnar fer
af stað sjálfvirkt slökkvikerfi sem
dregur úr úr umfangi skaðans. Allt
gekk eins og best verður á kosið
enda fengu við starfsmenn góða að-
stoð frá slökkviliðinu,“ sagði Gest-
ur. mm
Sími er hér lagður ofan í eina dæld
þvottabrettisins sem myndaðist eftir
að heflað var um miðjan júní.
Kvartað undan slæmum vegum eftir heflun
Horft inn Hálsaveit þar sem ekið er frá Reykholti. Í rykmekkinum til vinstri glittir
í íbúaðarhúsið á Úlfsstöðum II. Þó átti þessi vegur að vera rykbundinn um miðjan
júní.
Slökkvilið kallað út að
Elkem eftir að þéttir gaf sig
Ferjan Særún siglir með ferðamenn í útsýnis- og skemmtiferðir frá Stykkishólmi.
Hér er skipið að leggja í ferð í síðustu viku.
Ferðaþjónustan skiptir
stöðugt meira máli
Tilviljun réði því að Ólöf Guðmunds-
dóttir var á staðnum þegar grjótið féll
á börnin.
Tvö börn hætt komin þegar stór
steinn valt yfir þau í Borgarnesi
Steinninn sem valt yfir börnin.
Brekkan sem steinninn valt niður með börnin með sér.