Skessuhorn - 01.07.2015, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201518
Í ár höldum við bæjarhátíðina Írska
daga hér á Akranesi í sextánda
sinn.
Það er alltaf tilhlökkunarefni að
sjá litina í írska þjóðfánanum birt-
ast í skreytingum íbúa og fyrirtækja,
appelsínugulan, grænan og hvítan.
Og það eru ekki bara litirnir sem
munu minna á Írland á hátíðinni
heldur verður írsk matargerð kynnt,
veitingahúsin bjóða upp á írska
stemningu, tónleikar verða haldn-
ir með írsku ívafi og við fáum fyrir-
lestur um þróun mála á Norður-Ír-
landi. Og að sjálfsögðu verður rauð-
hærðasti Íslendingurinn valinn.
Dagskráin er öll hin glæsilegasta
og fjölmargt í boði fyrir alla aldurs-
hópa. Við verðum með hátíðina á
nokkrum stöðum í bænum en flest-
ir tónleikar verða haldnir á hafnar-
svæðinu. Setning Írskra daga fer þar
fram á fimmtudag og í beinu fram-
haldi verða haldnir tónleikar fyrir
yngstu kynslóðina ,,Litla lopapeys-
an.“ Föstudagstónleikarnir verða
á hafnarsvæðinu og Lopapeysan er
á sínum hefðbundna stað, í gulu
skemmunni. Á laugardag verður
skemmtidagskrá á Akratorgi og á
sunnudag verður fjölskyldudagskrá
í Garðalundi.
Ég vil fyrir hönd Akraneskaup-
staðar þakka öllum sem komu að
undirbúningi Írskra daga í ár. Starfs-
fólki Akraneskaupstaðar undir for-
ystu Hallgríms Ólafssonar verkefn-
isstjóra, þeim fjölmörgu listamönn-
um sem koma fram og fyrirtækj-
um sem ýmist verða með dagskrár-
atriði eða styrkja hátíðina með öðr-
um hætti.
Góða skemmtun kæru Skaga-
menn, verum góð hvert við annað
og göngum vel um bæinn okkar.
Hátíðarkveðjur,
Regína
Kæru bæjarbúar!
Björn Lúðvíksson listamaður, ljós-
myndari og lífskúnstner hefur tekið
upp á því að mála þjóðfána á steina
og raða á grjótgarðinn við Akranes-
vita. Þetta framtak hefur vakið mikla
lukku hjá ferðamönnum sem hafa,
að sögn Björns, verið duglegir að
láta mynda sig með steinana, jafn-
vel með vitann í bakgrunni. Björn
byrjaði á því að mála íslenska þjóð-
fánann en þegar hann sá hvað þetta
vakti mikla lukku hjá ferðamönnum
ákvað hann að bæta við fleiri fánum.
Hann Byrjaði á því að mála fána
Norðurlandanna en svo hafa fleiri
bæst í hópinn. „Hugmyndin var
að gera eitthvað skemmtilegt fyrir
ferðamenn og á sama tíma að koma
Akranesi á kortið, ferðamennirnir
taka gjarnan myndir af fánunum og
deila á vefnum og merkja Akranes
á myndina,“ sagði Björn um þessa
hugmynd sína. Hann myndi gjarn-
an vilja að Skagamenn væru dug-
legir við að mála eitthvað fallegt á
steina og setja út fyrir garðinn sinn
eða dyrnar hjá sér, það myndi svo
vekja athygli ferðamanna sem væru
duglegir að taka myndir af stein-
unum og deila á vefnum sem væri
mjög gott fyrir bæinn.
arg
Málar steina í
fánalitunum
Björn Lúðvíksson með hluta steinanna sem hann er búinn að mála.
„Það er auðvitað margt sem þarf að
huga að. Allt frá stórum listamönn-
um niður í ferðaklósett. En undir-
búningurinn hefur gengið mjög
vel,“ sagði Hallgrímur Ólafsson,
verkefnisstjóri Írskra daga, þegar
blaðamaður Skessuhorns spjallaði
við hann fyrr í vikunni. Írskir dag-
ar fara fram dagana 2.-5. júlí næst-
komandi en aðeins fimm vikur eru
síðan Hallgrímur tók við starfinu.
„Þetta er mjög knappur tími en
sem betur fer er bærinn með frá-
bært starfsfólk sem veit svörin við
ýmsum spurningum og getur leyst
hin ýmsu vandamál,“ segir hann.
Til að vekja athygli á hátíðinni
hefur meðal annars verið komið á
samstarfi við Ríkisútvarpið. Kvöld-
fréttir á fimmtudag verða lesnar í
beinni útsendingu frá Akranesi og
Sumarfréttir, nýr þáttur söngkon-
unnar Sölku Sólar og Hraðfrétta-
drengjanna Benedikts Valssonar og
Fannars Sveinssonar verður sendur
út frá opnunarhátíðinni eftir frétt-
ir. Á laugardaginn verður útvarps-
þátturinn Svart og sykurlaust í um-
sjón Sólmundar Hólm í beinni út-
sendingu frá hátíðinni.
Virkja kraft unga
fólksins
Dagskrá hátíðarinnar verður að
sögn Hallgríms nokkuð hefðbund-
in í sniðum en þó með nokkrum
áherslubreytingum og nýjungum.
„Mig langaði að gera aðeins meira
úr opnunarhátíðinni. Hún hefur
fengið nafnið „Litla lopapeysan“
og verður aðeins stærri í sniðum en
verið hefur og var því flutt niður á
höfn,“ segir hann. „Við ætlum að
leggja áherslu á að virkja allt það
góða fólk sem við eigum hér í bæn-
um, bæði fyrirtæki og einstaklinga.
Við eigum nefnilega svo mikið af
frambærilegu fólki og þá sérstak-
lega tónlistarfólki,“ segir Hall-
grímur. „Ég hef undanfarin þrjú
ár unnið með nemendum úr fjöl-
brautaskólanum. Í því starfi mínu
hef ég kynnst svo mörgum hæfi-
leikaríkum krökkum og ég er nátt-
úrulega að nýta mér það sem ég
hef séð í því starfi mínu. Ég vonast
til að þetta geti orðið smá stökk-
pallur fyrir þá,“ bætir hann við. Á
Litlu Lopapeysunni verða meðal
annars sýnd atriði úr Grease, sem
settur var upp í Fjölbrautaskóla
Vesturlands í vor og söngleikn-
um Úlfur Úlfur, sem Grundaskóli
setti upp. Auk þess kemur Margrét
Saga Gunnarsdóttir fram, en hún
sló í gegn í síðustu þáttaröð Ísland
Got Talent sem sýnd var í vetur og
enn eru fjölmargir skemmtikraftar
ótaldir. Rætt er við Margréti Sögu
á öðrum stað í blaðinu í dag.
Keppt um írskasta
hreiminn
Slegið verður upp götumarkaði í
miðbænum, í gamla Lansdbanka-
húsinu, á laugardeginum og Akra-
torg mun iða af lífi alla helgina.
Sandkastalakeppnin og dorgveiðin
verður á sínum stað eins og undan-
farin ár. Karnival-stemning verð-
ur á Merkurtúni með leiktækjum
fyrir börnin. Meðal nýjunga má til
dæmis nefna keppnina um írskasta
húsið, þar sem bæjarbúar keppa
um best skreytta húsið. Einnig má
nefna keppnina um írskasta hreim-
inn, sem haldin verður á Vitakaffi á
föstudagskvöldið. „Hver keppandi
þarf að fara með setningu á ensku
með írskum hreim og svo aftur á
íslensku, sömu setninguna. Þetta
verður mjög skemmtilegt,“ segir
Hallgrímur léttur í bragði. „En að-
aláherslan er eftir sem áður lögð á
fjölskylduvæna dagskrá. Þetta á að
vera þannig að allir viðburðir séu
fjölskylduvænir og að fjölskyldan
geti gert allt saman,“ bætir hann
við.
Eins og undanfarin ár verð-
ur brekkusöngur við þyrlupall-
inn á laugardagskvöldið áður en
bæjarbúar halda á ball og dansa
út í nóttina á Lopapeysunni niðri
við höfn. Dagskránni lýkur svo
á sunnudaginn með fjölskyldu-
skemmtun í Garðalundi.
„Að lokum hvet ég Skaga-
menn til þess að taka vel á móti
gestum hátíðarinnar og þakka í
leiðinni fyrir mig,“ segir Hall-
grímur.
kgk
Listamenn úr heimabyggð verða
áberandi á Írskum dögum
Hallgrímur Ólafsson, verkefnisstjóri Írskra daga.
U17 ára landslið kvenna mætti
Englendingum í úrslitakeppni
Evrópumóts U17 ára liða í blíð-
unni á Akranesvelli á fimmtu-
daginn. Jafnt var á með liðunum
í fyrri hálfleik og fengu íslensku
stúlkurnar tvö ákjósanleg mark-
tækifæri sem ekki tókst að nýta.
Þær ensku komust hins vegar yfir
á 28. mínútu og leiddu með einu
marki gegn engu þegar flautað
var til hálfleiks. Síðari hálfleik-
ur var aðeins fjögurra mínútna
gamall þegar Englendingar skor-
uðu sitt annað mark og hertu tök
sín á leiknum. Íslensku stúlkurnar
gáfust hins vegar ekki upp. Á 66.
mínútu minnkaði fyrirliðinn Am-
anda Mist Pálsdóttir muninn með
glæsilegu skoti úr aukaspyrnu,
efst upp í markhornið. Íslenska
liðinu tókst ekki að jafna leikinn
en þær ensku bættu aftur á móti
við þriðja marki sínu eftir horn-
spyrnu á 76. mínútu. Lokatölur á
Akranesvelli 1-3, Englendingum
í vil. Var þetta annað tap Íslands
í mótinu og ljóst að liðið kemst
ekki í undanúrslit í þetta skipt-
ið. Næst mætir liðið Spánverjum
á Kópavogsvelli sunnudaginn 28.
júní.
kgk/ Ljósm. kfia.is.
Tap gegn Englendingum á Akranesvelli