Skessuhorn - 01.07.2015, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 19
MIÐNÆTUR OPNUN
FIMMTUD. Í TILEFNI ÍRSKRA DAGA
20% afsl.
*af öllum vörum, alla helgina.
*Gildir ekki af ecco skóm og JA errea vörum.
Írsku daga opnun:
Fim. 10-18 og 20-24 • Fös. 10-18 • Lau. 11-18
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Enn einn möguleikinn fyrir svanga
gesti og gangandi í Stykkishólmi
bættist á föstudaginn við veitinga-
flóruna þar. Bjarki Hjörleifsson og
Jónína Riedel opnuðu veitinga-
vagninn Finsen sem mun bjóða
upp á djúpsteiktan fisk og franskar.
Slíkur réttur nýtur mikilla vinsælda
sem skyndibiti í mörgum nágranna-
löndum, ekki síst á Bretlandseyjum
þar sem hann gengur undir heitinu
„Fish and chips.“ Nafn vagnsins,
Finsen, hefur skírskotun til þess að
hann er nefndur eftir afa Bjarka.
Hann hét Hinrik Finnsson og var
áberandi í verslunarrekstri í Stykk-
ishólmi í mörg ár. Röð myndað-
ist við vagninn strax við opnun og
var gerður góður rómur að veit-
ingunum. Fisk og frönskuvagninn
Finsen er staðsettur við höfnina í
Stykkishólmi þar sem alltaf er mik-
ill fjöldi ferðamanna auk þess sem
heimamenn leggja gjarnan leið sína
þangað. sa/mþh
Fiskur og franskar
hjá Finsen í Stykkishólmi
Hrannar Pétursson hafnarvörður Stykkishólmsbæjar tók við fyrsta skammtinum
af fiski og frönskum frá Jónínu Ridedel veitingakonu í Finsen-vagninum.
Finsen-vagninn sem selur fisk og franskar er við hlið Ískofans sem sinnir sölu á ís.
Ískofinn opnaði fyrir nokkrum dögum.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Við leitum að öflugum leiðtoga í stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri hefur
yfirumsjón með fræðslumálum, félagsþjónustu og íþrótta- og tómstundamálum.
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 13. júlí nk.
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni í starfið.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Borgarbyggð auglýsir eftir öflugum leiðtoga
Verkefni og ábyrgðarsvið:
• Yfirumsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana
fyrir sviðið og stofnanir þess
• Yfirstjórn stofnana sem heyra undir sviðið
• Vinnur að stefnumótun og mannauðsmálum
fyrir sviðið og stofnanir þess
• Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og
reglugerða sem í gildi eru og heyra undir sviðið
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði fræðslumála og stjórnunar
• Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar menntastofnana
og/eða stjórnsýslu
• Menntun á sviði mannauðsmála æskileg
• Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
• Reynsla af faglegri forystu og þróunarstarfi í skólum
• Reynsla af áætlanagerð og opinberri stjórnsýslu
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
• Starf verkefnastjóra á skipulags- og umhverfissviði
• Störf leikskólakennara í Leikskólunum Akra- og Teigaseli
• Starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar
• Starf þroskaþjálfa/iðjuþjálfa í Brekkubæjarskóla
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar
á þar til gerðu eyðublaði
Nánari upplýsingar að finna á www.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5