Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 21
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
2. – 5. júlí
2015
Miðvikudagur 1. júlí
10:00 Guðnýjarstofa, Safnasvæðið í Görðum
Sýningin „Saga líknandi handa“ verður opin alla hátíðina á
opnunartíma safnsins. Aðgangur ókeypis!
17:00 Vitakaffi
Opnun ljósmyndasýningar Finns Andréssonar „Á ferð
og flugi“.
18:00 Tónberg, söngvakeppni barna og unglinga
Úrslit í söngvakeppni Huldu Gests og fá sigurvegarar að
syngja á opnunarhátíð Írskra daga á fimmtudagskvöldinu.
20:00 Garðakaffi „Upptaktur að Írskum“ Kalman listafélag
Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur býður fólki upp
á sýnishorn af írskum réttum og kynnir írska matargerð.
Þjóðsögur, spjall og tónlist. Aðgangseyrir kr. 2.000.
Takmarkaður miðafjöldi í boði. Miðapantanir í síma
865-8974 eða á kalmanlistafelag@gmail.com.
Fimmtudagur 2. júlí
15:00-17:00 Akratorg
Fjöliðjan mun gefa gestum og gangandi ferskt límonaði
og blöðrur og hver veit nema þau bregði á leik.
15:00-20:00 Þorpið
Fatamarkaður í Þorpinu.
16:00-17:30 Húsasmiðjan
Hin árlega grillveisla Húsasmiðjunnar á Akranesi á Írskum
dögum. Húsasmiðjan hefur tekið þátt í hátíðinni í mörg ár
og ætla að bjóða gestum og gangandi upp á eina með öllu.
17:00 Akranesviti - opnun sýninga
Sigurbjörg Einisdóttir opnar myndlistar-/grafíksýninguna
„Úr ýmsum áttum“ á jarðhæð í Akranesvita. Sýningin
verður opin út júlí. Einnig mun Elín Þóra Geirsdóttir opna
sína fyrstu myndlistarsýningu á þriðju hæð.
19:00 RÚV í beinni
Fréttir RÚV verða lesnar frá Sólmundarhöfða á Akranesi.
Bogi Ágústsson mætir á Skagann.
19:00 Setning Írskra daga á hafnarsvæðinu
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri setur hátíðina formlega.
19:05-21:00 Litla lopapeysan á hafnarsvæðinu í boði
Norðuráls
Opnunarhátíðin ber nafnið „Litla lopapeysan“ þar sem
ungir og efnilegir tónlistarmenn koma fram ásamt
stórhljómsveit undir stjórn Birgis Þórissonar. Sýnd verða
atriði úr Grease og Úlfur Úlfur. Einnig munu koma fram
söngvararnir Ylfa Flosadóttir, Margrét Saga Gunnarsdóttir
Ísland Got Talent stjarna, Heiðmar Eyjólfsson, Inga
María Hjartardóttir, Hjördís Tinna Pálmadóttir, Kristinn
Bragi Garðarsson, Silla Rún Hjartardóttir og Eiður Andri
Guðlaugsson.
19:35 Sumardagar í beinni
Glænýr sjónvarpsþáttur með þeim Sölku Sól og Benna og
Fannari úr Hraðfréttum verður í beinni útsendingu á „Litlu
lopapeysunni“.
21:30 Vitakaffi
Söngtríóið Stúkurnar halda tónleika með írsku ívafi.
Aðgangur ókeypis!
21:30-01:00 Partýljónið í boði Gamla Kaupfélagsins og
Íslandsbanka
Keppnin um Partýljónið fer fram á Gamla Kaupfélaginu,
skráning á staðnum og á irskirdagar@akranes.is. Sá sem
verður krýndur partýljónið fær 50.000 kr. gjafabréf frá
Íslandsbanka. Að keppni lokinni tekur við trúbbastemning
til kl. 01.00. Frítt inn!
10:00-24:00 Miðnæturopnun í verslunum
Verslanirnar Nína og Ozone verða með írsk tilboð alla
helgina og hver veit nema að írski frændinn Jameson verði
á bakvið búðarborðið.
Föstudagur 3. júlí
10:00-18:00 FM Iceland, Smiðjuvöllum 17 - Írskt kaffi í
boði fyrir alla!
Komdu og smakkaðu dásamlegt Irish coffee sem er
bragðbætt kaffi frá Aurile. Írsk stemmning, vörur í írsku
fánalitunum á tilboði og HAPPDRÆTTI að verðmæti kr.
50.000!
12:00-17:00 Að mála ævintýravegginn
Gallerí Bjarni Þór að Kirkjubraut 1 er með gjörninginn að
mála Ævintýravegginn, þar sem fólk fær útrás fyrir listræna
hæfileika sína. Málning og penslar eru á staðnum. Koma
svo listaspírur!
14:00 Akranesviti - opnun sýningar
Opnun myndlistarsýningar til minningar um Guðmund
Þorvaldsson sem hefði orðið fimmtugur á þessu ári.
Sýningin verður opin út júlí á 2. hæð í Akranesvita.
16:00-22:00 Karnival á Merkurtúni
Fallturn, hringekjur, hoppukastalar, loftbolti og allskyns
söluvagnar.
16:00-22:00 Vatnaboltar
Vatnaboltar verða staðsettir á túninu fyrir aftan Suðugötu
64, við Akratorg. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
16:00-22:00 Paintball og Lazertag við Suðurgötu
Paintball og Lazertag verða staðsett á túninu fyrir aftan
Sementsverksmiðjuna. Frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
16:00-22:00 Söluvagnar víðsvegar um bæinn
Alls kyns söluvagnar munu dreifa sér víðsvegar um bæinn.
17:00 Vitakaffi - Írskasti hreimurinn í boði Vitakaffis
Hversu írskur ert þú á ensku og íslensku? Taktu þátt í
keppinni um írskasta hreiminn og þú gætir mætt í götugrill
með eitthvað alveg írskt í pokahorninu.
18:00 Götugrill
Hin vinsælu götugrill um allan bæ, ekki gleyma að skrá þitt
götugrill á irskirdagar@akranes.is! Partýljónið mun svo kíkja
við í grillið með írska frænda sinn sem ku heita Jameson.
22:00-24:00 Stórtónleikar á Lopapeysusvæðinu
Stórtónleikar niðri við höfnina þar sem fram koma Matti
Matt, Eyþór Ingi, Magni og María Ólafs.
23:00-03:00 Vitakaffi
Arnar og Biggi halda uppi stuði til kl.03:00.
Aðgangur ókeypis!
24.00-04:00 Gamla Kaupfélagið
DJ RED ft nightelf, strákarnir gerðu allt vitlaust á Írskum
dögum í fyrra og ætla nú að endurtaka leikinn. Húsið opnar
að lokinni miðbæjarskemmtun og standa herlegheitin fram
á rauða nótt. Aðgangur ókeypis!
Laugardagur 4. júlí
08:00 Garðavöllur - Opna Guinness mótið
Skráning á golf.is eða í síma 431-2711.
10:00-18:00 FM Iceland, Smiðjuvöllum 17 - Írskt kaffi í
boði fyrir alla!
Komdu og smakkaðu dásamlegt irish coffee sem er
bragðbætt kaffi frá Aurile. Írsk stemning, vörur í írsku
fánalitunum á tilboði og HAPPDRÆTTI að verðmæti kr.
50.000!
10:00 Helgasund til minningar um Helga Hannesson
Sjóbaðsfélag Akraness býður upp á sjósund frá bryggjunni
að Merkjarklöpp á Langasandi u.þ.b 950 metra. Keppendur
eru beðnir um að mæta vel hvíldir og vel nærðir og hafa
í huga að þeir eru á eigin ábyrgð. Athugið að sundið er
háð veðri. Nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu
félagsins - Sjóbaðsfélag Akraness!
10:00 Dorgveiðikeppni í boði Model
Um að gera að dorga í morgunsárið. Verðlaunapeningar frá
Model og glaðningur frá Vodafone.
11:00 Gallerí Urmull, Gallerý Snotra og Kaja organic
Opið frá kl. 11 og fram eftir degi. Komdu og gerðu góð
kaup!
12:00 Bryggjugolf á vegum Golfklúbbsins Leynis
Þessi dagskrárliður hefur stimplað sig inn undanfarin ár og
tilvalið að láta reyna á golfhæfileikana.
12:00-15:00 Samsteypan Mánabraut 20
Ef veður leyfir ætla nokkrir meðlimir Samsteypunnar að
brenna í Raku fyrir utan vinnustofurnar að Mánabraut 20.
Öllum áhugasömum er velkomið að fylgjast með og upplifa
stemninguna sem fylgir þessari gömlu brennsluaðferð á leir.
12:00-17:00 Að mála ævintýravegginn
Gallerí Bjarni Þór að Kirkjubraut 1 er með gjörninginn að
mála Ævintýravegginn, þar sem fólk fær útrás fyrir listræna
hæfileika sína. Málning og penslar eru á staðnum. Koma svo
listaspírur! Gaman væri ef að allir mæti skrautlega klæddir.
12:00-22:00 Karnival á Merkurtúni
Fallturn, hringekjur, hoppukastalar, loftbolti og allskyns
söluvagnar.
12:00-22:00 Vatnaboltar
Vatnaboltar verða staðsettir á túninu fyrir aftan Suðurgötu
64, við Akratorg. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
12:00-22:00 Paintball og Lazertag á Suðurgötu
Paintball og Lazertag verða staðsett á túninu fyrir aftan
Sementsverksmiðjuna. Frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
12:00-17:00 Handverksmarkaður í íþróttahúsinu við
Vesturgötu
Líflegur markaður þar sem allt milli himins og jarðar verður
til sölu. Tilvalið tækifæri til þess að gera góð kaup. Fjöldinn
allur af söluaðilum héðan og þaðan af landinu.
12:45-16:00 Sólmundur Hólm í beinni
Bein útsending frá útvarpsþættinum Svart og sykurlaust á
Rás 2.
13:00 Sandkastalakeppni í boði Guðmundar B Hannah
Verðlaun verða veitt í fjórum flokkum, besti kastalinn,
fallegasta listaverkið, yngsti keppandinn og fjölskyldan
saman.
13:00 Matarmarkaður á Akratorgi
Matur og menning á Akratorgi og jarðhæð á Suðurgötu 57,
Gamla Landsbankahúsinu.
13:00-17:00 Antikmarkaður á Akratorgi
Götumarkaðsstemning - antik, retro og gamlir munir.
13:30 „Rauðhærðasti íslendingurinn“
Keppendur mæta á 3. hæð í Gamla Landsbankahúsinu að
Suðurgötu 57 þar sem fulltrúar Hárhúss Kötlu meta rauðu
lokkana.
14:00-16:00 Töfrar á Akratorgi
Á Akratorgi mun allt iða af lífi. Ungir listamenn munu koma
fram og syngja og dansa, verðlaun fyrir rauðhærðasta
Íslendinginn, verðlaun veitt fyrir írskasta húsið og margt
fleira. Kynnir verður hinn skemmtilegi Lalli töframaður sem
mun sýna okkur töfrabrögð á milli atriða.
14:00-16:00 Ullarsokkurinn
Ungt tónlistarfólk af Akranesi með off veune tónleika á
Merkurtúni.
17:00 Vitakaffi - Átökin á Norður Írlandi - orsök og
afleiðingar.
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, rekur
sögu átakanna á Norður-Írlandi frá upphafi The Troubles
til okkar tíma. Félagar úr Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á
Akranesi, þau Arna Pétursdóttir, Ylfa Flosadóttir og Birgir
Þórisson ásamt Ragnari Skúlasyni, flytja írsk þjóðlög og
baráttusöngva frá tímabilinu. Aðgangur ókeypis!
22:40 Brekkusöngur á þyrlupallinum
Hinn margrómaði brekkusöngur í boði ´71 árgangsins mun
óma um allan Skaga og munu þeir félagar Magni og Matti
Matt stjórna honum af stakri snilld.
23:30 Lopapeysan
Lopapeysuna þarf vart að kynna enda skemmtilegasta ball
sumarsins. Fram koma m.a. Sálin hans Jóns míns, Bubbi og
Dimma, Dikta, Páll Óskar, Salka Sól, Friðrik Dór, Geirmundur
og fleiri. Miðasala fer fram í Eymundsson á Akranesi og á
midi.is.
23:30-04:00 Gamla Kaupfélagið
Barinn opinn, fyrir þá sem vilja en við lofum meira stuði á
Lopapeysunni þar sem starfsmenn Gamla Kaupfélagsins
taka vel á móti ykkur.
Sunnudagur 5. júlí
12:00-17:00 Að mála ævintýravegginn
Gallerí Bjarni Þór að Kirkjubraut 1 er með gjörninginn að
mála Ævintýravegginn, þar sem fólk fær útrás fyrir listræna
hæfileika sína. Málning og penslar eru á staðnum. Koma
svo listaspírur!
12:00 Karnival á Merkurtúni
Fallturn, hringekjur, hoppukastalar, loftbolti og allskyns
söluvagnar.
Fjölskyldudagur í Garðalundi
14:00 Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna í boði Omnis
verslun á Akranesi.
15:15 Alltaf Gaman
Alltaf Gaman sjá um allskyns þrautir sem og afþreyingu
fyrir fólk á öllum aldri.
15:15 Hreystibraut
Hreystibraut stjórnað af Hjalta Úrsus.
15:15 Hestbak
Kvennakórinn Ymur býður börnum upp
á að fara á hestbak.
Fjölskylduhátíðin Írskir dagar
Írsk stemning á kaffihúsum
og veitingastöðum á Akranesi
alla hátíðina!
Grillin verða heit þannig að það er tilvalið að taka
með sér pylsur á grillið, við minnum þó gesti á
að þeir eru á eigin ábyrgð og því er um að gera
að fara varlega. Ekki gleyma að í Garðalundi er
strandblaksvöllur og frisbígolfvöllur.